Fyrirtækin að meta áhrifin - Veðjað á uppgang

Kjara­samn­ing­arnir sem und­ir­rit­aðir voru skömmu fyrir þrjú á föstu­dag, í karp­hús­inu, eftir átaka­miklar við­ræður mán­uðum saman, fela í sér stórt og mikið veð­mál um að miklir upp­gangs­tímar séu framundan í íslensku efna­hags­lífi. Um það er við­mæl­endur Kjarnans sam­mála, en fyr­ir­tækin eru sum hver þegar byrjuð að greina áhrifin. Bjart­sýni ríkir þó um að fyr­ir­tæki mun nú taka höndum saman um að reyna að vernda kaup­mátt, og fá hjól atvinnu­lífs­ins til að snú­ast hraðar. Þor­steinn Víglunds­son, fram­væmda­stjóri SA, segir að það sem mestu skipti sé að vernda kaup­mátt­inn og þann árangur sem náðst hefur að und­an­förnu.

Samn­inga­nefnd­ir Flóa­banda­lags­ins, Stétt­Vest, Starfs­greina­sam­bands­ins, VR og Land­sam­bands ís­lenskra versl­un­ar­manna und­ir­rit­uðu kjara­samn­ing­ana við SA.

Skrifað verður und­ir þrjá mis­mun­andi samn­inga, kjara­samn­inga VR og LÍV, kjara­samn­inga SGS og kjara­samn­inga Flóa­banda­lags­ins.

Samn­ing­arnir ná til meira en 65 þús­und vinn­andi ein­stak­linga. Lægstu launa­taxtar VR hækka um 31,1% eða kr. 64.208 á samn­ings­tím­anum. Lág­marks­tekjur verða 300 þús­und krónur á mán­uði frá maí árið 2018, en for­sendur fyrir samn­ingnum eru meðal ann­ars að hann verði stefnu­mark­andi fyrir aðra kjara­samn­inga­gerð á vinnu­mark­aði og að kaup­máttur auk­ist. Ekki sér til lands í deilum rík­is­ins og BHM, en við­ræðum hefur nú verið slitið. Verk­falls­að­gerðir hjá BHM halda því áfram, og hjá rúm­lega tvö þús­und starf­andi hjúkr­un­ar­fræð­ingum, en eins og for­sendur kjara­samn­ing­ana benda til þá vilja stjórn­völd að nýgerður kjara­samn­ingur á almennum vinnu­mark­aði verði leið­ar­stefið í við­ræðum við BHM. Þetta sættir samn­inga­nefnd BHM sig ekki við og vill öðru fremur að aukin menntun verði metin til hærri launa.

kjara
kjara

 

Verða að tala varlega


Kristín Frið­geirs­dóttir, stjórn­ar­for­maður Haga, sagð­ist í sam­tali við Kjarnann í gær ekki geta tjáð sig um hvernig kjara­samn­ing­arnir horfðu við henni, og hvaða áhrif þeir kynnu að hafa á rekstur og verð­lagn­ingu hjá Högum, sem rekur meðal ann­ars Bónus og Hagkaup. Ástæðan er sú að Hagar er skráð á markað, og því þurfi að tala var­lega um þessi mál. Jafn­framt sagði hún að stjórn og stjórn­endur Haga hefðu gert ráð fyrir hóf­legum launa­hækk­unum, en nú tæki við að meta áhrif samn­ing­ana á rekst­ur­inn.

Uppgangur forsenda þess að þetta gangi upp


For­sendan fyrir því að „hlut­irnir gangi upp“ eins og einn við­mæl­enda komst að orði, er að launa­hækk­an­irnar leiði ekki til þess að verð­bólgu­draug­ur­inn fari á stjá og vextir hækki það mikið, að allir hópi tapi. Til þess að þett geti orðið raunin þurfi upp­gangs­tímar að taka við í hag­kerf­inu, sem stuðli að auknum kaup­mætti. Eins og stjórn­endur Seðla­banka Íslands hafa ítrekað bent á, ekki síst Þórarinn G. Pét­urs­son aðal­hag­fræð­ingur og Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, þá er djarf­lega teflt með þessum kjara­samn­ingum þar sem ekki er víst að hag­kerfið muni standa undir launa­hækk­unum til lengdar litið, ef ekki kemur til umtals­verð fram­leiðni­aukn­ing frá því sem nú er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár