Færri treysta Framsókn fyrir skuldamálum heimilanna

Flestir telja að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé best til þess fall­inn að leiða alla mála­flokka tengda efna­hags­málum á Íslandi. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR. MMR skoð­aði við­horf fólks til þess hvaða flokkar væru bestir til að leiða skulda­mál heim­il­anna, end­ur­reisn atvinnu­lífs­ins, efna­hags­mál almennt, skatta­mál, atvinnu­leysi og mál­efni Íbúða­lána­sjóðs.

Rúmlega fjórð­ungur aðspurðra telur að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé best til þess fall­inn að leiða skulda­mál heim­il­anna, en 19 pró­sent telja að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sé bestur í því. Þetta hefur breyst mikið sam­an­borið við jan­úar í fyrra, þegar 34,4 pró­sent svar­enda sögð­ust treysta Fram­sókn­ar­flokknum best.

40,9 pró­sent telja Sjálf­stæð­is­flokk­inn bestan almennt í að leiða efna­hags­mál á Íslandi, aðeins fleiri en í jan­úar í fyrra, þegar 37,7 pró­sent töldu flokk­inn bestan til þess fall­inn að leiða efna­hags­málin. 41,4 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu treystu Sjálf­stæð­is­mönnum best til þess að leiða end­ur­reisn atvinnu­lífs­ins og 38,7 pró­sent í skatta­málum. Þá telja 31,9 pró­sent Sjálf­stæð­is­mönnum best treystandi fyrir mál­efnum Íbúða­lána­sjóðs og 31,5 pró­sentum þykir hann best til þess fall­inn að leiða í atvinnu­leys­is­málum.

933 svör­uðu könnun MMR, en hún var gerð 9. til 14. jan­úar. Vikmörk í könnun af þessu tagi geta verið 3,1 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár