Þingkona myrt í Bretlandi

Jo Cox, þing­kona Verka­manna­flokks­ins, var myrt í bænum Bristall í York­skíri í dag. Árás­armað­ur­inn var öfga­hægri­maður. Allri kosn­inga­bar­áttu fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una í næstu viku var frestað í Bret­landi.

Jo Cox var þingkona fyrir Verkamannaflokkinn.
Jo Cox var þing­kona fyrir Verka­manna­flokk­inn. Mynd: EPA

Jo Cox, þing­kona verka­manna­flokks­ins í Bret­landi, var myrt í hrotta­legri árás þegar hún kom af fundi í kjör­dæmi sínu í Bristall í dag. Lög­reglan hand­tók 52 ára gamlan karl­mann í nágrenni árás­ar­staðs­ins í kjöl­farið.

Ráðist var á Cox síð­degis í dag og hún skotin og stungin mörgum sinnum. Bráðaliðar og læknir sem komu á vett­vang eftir að kall barst úrskurð­uðu hana látna á vett­vangi.

Lögregla stað­festir að maður, öðru hvoru megin við fimm­tugt, hafi særst í sömu árás. Þá rann­sakar lög­reglan frá­sögn vitna af hrópum hins grun­aða. Hann er sagður hafa hrópað „Britain first“, eða „Bretland fyrst“ á meðan árásinni stóð og vísa þannig í flokk með sama nafni yst á hægri væng breskra stjórn­mála.

„Ég heyrði skot­hvelli og hljóp út og sá ein­hverjar konur hlaupa af nær­liggj­andi veit­inga­stað með hand­klæði,“ segir Graeme Howard í sam­tali við The Guardian. Hann seg­ist hafa heyrt mann hrópa „Britain first“. „Það voru mikil öskur og hróp áður en lög­reglan kom á vett­vang. Hann hróp­aði „Britain first“ þegar hann gerði þetta og þegar verið var að hand­taka hann. Honum var haldið niðri af tveimur lög­reglu­mönnum og hún var flutt burt í sjúkra­bíl.“

The Guardian hefur eftir Dee Collins, varð­stjóra lög­regl­unnar í Vestur York­skíri, að umfangs­mikil rann­sókn fari nú fram. Hún stað­festir að vopn hefðu fund­ist á vett­vangi, þar á meðal byssa. Breskir fjöl­miðlar segja að árás­armað­ur­inn sé Thomas Mair en sá býr í húsi sem lög­reglan réðst inn í stuttu eftir að árásin átti sér stað í dag.

Jeremy Corbyn, for­maður Verka­manna­flokks­ins í Bret­landi, sagði á Facebook síðu sinni eftir að fregnir bár­ust af árásinni að allir flokks­menn og allir lands­menn væru í upp­námi eftir að hafa heyrt af morð­inu á Jo Cox. „Jo lést við að sinna sinni sam­fé­lags­legu skyldu í hjarta lýð­ræð­is­ins okkar, þar sem hún hlust­aði á fólkið sem hafði kosið hana til áhrifa,“ skrifar Corbyn.

David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Íhalds­flokks­ins, sagði í yfir­lýs­ingu að Bretar hefðu misst „mikla stjörnu“ í stjór­málum. „Það er rétt­ast af okkur að gera hlé á kosn­inga­bar­átt­unni fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una,“ sagði hann og vísar til atkvæða­greiðsl­unnar 23. júní um hvort Bretland eigi að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu. Cox var stuðn­ings­maður þess að Bretar héldu áfram Evr­ópu­sam­vinn­unni.

Jayda Fransen, vara­for­maður Britain First-flokks­ins, segir að nú sé verið að kanna fregn­irnar innan flokks­ins. „Við erum í áfalli vegna þess­ara frétta og getum ekki stað­fest neitt, því eins og stendur er þetta orðrómur. Þetta er alls ekki hegðun sem við látum óátalda,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár