Eygló segir húsnæðisfrumvörpin á lokametrunum

Vinna við hús­næð­is­frum­vörp er á loka­metr­unum, segir Eygló Harð­ar­dóttir félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra. Hún svar­aði fyr­ir­spurn frá Heiðu Kristínu Helga­dóttur, þing­manni Bjartrar fram­tíðar, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í morgun.

„Hvað veldur því að þessi frum­vörp eru ekki komin fram?“ spurði Heiða Kristín meðal ann­ars, en hús­næð­is­frum­varpanna hefur verið beðið. Þrjú frum­vörp komu fram á síð­asta þingi en náðu ekki langt í með­förum þings­ins og hafa ekki verið lögð fram aftur. Heiða Kristín spurði ráð­herr­ann einnig á hverju vinna við frum­vörpin hefði strandað og um áhrif þeirra á deilur á vinnu­mark­aði, en frum­vörpin voru hluti af lof­orðum rík­is­stjórn­ar­innar til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga í vor.

„Við höfum verið í mjög miklu og nánu sam­starfi við þá aðila sem komu að þess­ari yfir­lýs­ingu um mótun þess­ara frum­varpa,“ sagði Eygló. „Þetta er á loka­metr­unum þannig að ég vænti þess að það geti skýrst núna á næst­unni hvenær frum­vörpin nákvæm­lega koma fram í þing­inu.“ Hún sagð­ist hafa lagt gíf­ur­lega mikla áherslu á það að allir lyk­il­að­ilar sem að mál­unum koma nái saman. „Það er hins vegar mjög flókið að gera nýtt, félags­legt leigu­í­búða­kerfi.“ Þeir sem að mál­unum hafi komið, sem meðal ann­ars eru sam­tök á vinnu­mark­aði og sveit­ar­fé­lög, hafi mis­mun­andi sýn á þessi mál en verið sé að reyna að ná saman. „Það mun líka leiða til þess að það verði auð­veld­ara fyrir þingið að vinna málið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár