Mótmælin reyndust á misskilningi byggð

Fjöldi fólks mis­skilur ný útlend­inga­lög og heldur að þau „galopni“ Ísland fyrir flótta­fólki.

Gunn­laugur Ingv­ars­son, stjórn­ar­maður í Íslensku Þjóð­fylk­ing­unni, heldur að ný útlend­inga­lög, sem sam­þykkt voru á Alþingi 2. júní síð­ast­lið­inn, feli í sér að allir hæl­is­leit­endur sem koma til Íslands eigi rétt á að fá alþjóð­lega vernd. Þetta kom fram þegar Stundin tók við­tal við Gunnlaug á mót­mæl­unum í gær. Ekkert ákvæði lag­anna rennir stoðum undir stað­hæf­ingu hans. Þvert á móti verða hæl­isveit­ingum Útlend­inga­stofn­unar áfram settar þröngar skorður.

Gunn­laugur sagð­ist hafa lesið lögin en hélt þessu samt fram. Þegar Stundin spurði hvort hann meinti að ný útlend­inga­lög fælu í sér að allir hæl­is­leit­endur ættu rétt á að hæl­is­um­sókn þeirra yrði tekin til efn­is­legrar með­ferðar játti hann því. Hins vegar er ljóst að ný útlend­inga­lög kveða heldur ekki á um neitt slíkt. Til að mynda er áfram gert ráð fyrir end­ur­send­ingum á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár