Stöðva notkun bóluefnis AstraZeneca tímabundið

Sótt­varna­læknir segir að notkun bólu­efnis frá AstraZeneca hafi tíma­bundið verið hætt hér á landi vegna til­kynn­inga um alvar­legar auka­verk­anir í nokkrum Evr­ópu­löndum.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Í nokkrum löndum Evrópu hefur verið til­kynnt um blóð­tappa hjá fólki sem nýverið hafði fengið bólu­efni AstraZeneca. Eitt dauðs­fall hefur orðið í Danmörku og hafa stjórn­völd þar ákveðið að hætta notkun bólu­efn­is­ins tíma­bundið af þeim sökum. Íslensk yfir­völd hafa ákveðið að gera slíkt hið sama þar til frek­ari upp­lýs­ingar ber­ast frá Lyfja­stofnun Evrópu.

„Við skulum bíða og sjá hvað verður. Fyrstu nið­ur­stöður benda ekki til þess að tíðni á blóð­tappa sam­hliða bólu­setn­ingu [með bólu­efni AstraZeneca] sé hærri en gengur og ger­ist í sam­fé­lag­inu,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Hins vegar verði að leita af sér allan grun og vinnur Lyfja­stofnun Evrópu nú að því.

[adspot]

Einn greind­ist með veiruna inn­an­lands í gær og var hann í sótt­kví við grein­ingu. Um er að ræða ein­stak­ling sem hafði verið útsettur fyrir smiti. Hann hafði farið í sýna­töku fyrir nokkrum dögum en reynd­ist þá nei­kvæður. Í gær fór hann aftur í sýna­töku og kom þá í ljós að hann er sýktur. Þórólfur segir þetta ekki eiga að koma á óvart og að við þurfum að vera undir það búin að fleiri, sem nú eru í sótt­kví, grein­ist á næst­unni.

Fimm hafa greinst með veiruna sem rakin eru til manns sem kom til lands­ins í lok febr­úar og var nei­kvæður í fyrri skimun á landa­mærum en jákvæður í þeirri seinni. Allir eru þeir sýktir af breska afbrigði veirunnar sem er meira smit­andi en önnur afbrigði.

„Næstu dagar munu skera úr um hvort að ein­hver frek­ari dreif­ing hafi orðið frá hópsmit­inu en mikið hefur verið ski­mað í kringum þá sem hafa verið að grein­ast,“ sagði Þórólfur.

Þórólfur segir að eins og staðan er núna standi ekki til að leggja til harð­ari aðgerðir er núver­andi reglu­gerð rennur út í næstu viku. Hins vegar er einnig „nokkuð í ljós“ að til­slak­anir verði gerðar. Sótt­varna­læknir er með minn­is­blað í smíðum sem hann mun bráð­lega senda heil­brigð­is­ráð­herra. Hans til­lögur munu vænt­an­lega end­ur­spegla „töl­urnar sem við munum sjá næstu daga“.

Hann segir að ef fólk fari að grein­ast utan sótt­kvíar og úti í sam­fé­lag­inu „þá þarf að sjálf­sögðu að hugsa til þess hvort að þörf sé á frek­ari og harð­ari aðgerðum“.

Tíu reynst smitaðir sem voru með neikvæð vottorð

Frá því að nýjar reglur voru teknar upp á landa­mær­unum 19. febr­úar og far­þegar skyld­aðir til að fram­vísa nei­kvæðu COVID-prófi, hafa átta greinst með veiruna inn­an­lands. Þar af voru fjórir í sótt­kví við grein­ingu.

Enginn greind­ist á landa­mær­unum í gær en frá 19. febr­úar hafa 30 greinst þar með veiruna og þar af 17 með virk smit. Af þeim voru 10 með nei­kvæð COVID-próf við kom­una til lands­ins en greindust engu að síður í skimun – sex í fyrri og fjórir í seinni. Þórólfur segir þetta sýna að nei­kvæð PCR-próf séu ekki gull­trygg­ingin fyrir því að við­kom­andi sé ekki smit­aður við kom­una.

„Við getum sagt að góðar líkur eru á því að okkur hafi tek­ist að ná utan um hóp­sýk­ing­una en það er ekki alveg að fullu ljóst því eins og við vitum getur liðið upp undir vika þar til við förum að sjá veik­indi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár