Nýtt veðurtungl sendi myndir af jörðinni

Fyrsta myndin úr nýju veð­ur­tungli evr­ópsku geim­ferða­stofn­un­ar­innar, ESA, og Veð­ur­tungla­stofn­unar Evrópu, EUMETSAT, hefur borist til jarðar og hún sýnir sum­ar­skrúða Evrópu og Afríku í allri sinni dýrð. Veð­ur­tunglið er nýjasta við­bótin í veð­ur­tungla­net EUMETSAT sem Veð­ur­stofa Íslands hefur aðgang að.

Myndin var birt á vef ESA í gær, þriðju­dag, ásamt til­kynn­ingu um að MSG-4 gervi­tunglið væri nú virkt og komið á spor­braut um jörðu eftir að hafa verið skotið til him­ins frá Frönsku Gvæjana í Suður-Ameríku.

Þegar MSG-4 er búið að virkja sig að fullu verður tunglið end­ur­nefnt Meteosat-11 og verður í við­bragðs­stöðu bili ein­hver af evr­ópsku veð­ur­tungl­unum sem nú sjá veð­ur­fræð­ingum fyrir gögnum. Geim­ferð­ar­stofn­unin er ávalt við­búin því að veð­ur­tunglin bili og hefur því eitt í dvala til þess að grípa inni, bjáti eitt­hvað á.

Eins og stendur fylgj­ast fjögur veð­ur­tungl á vegum EUMETSAT með jörð­inni og senda veð­ur­fræð­ingum myndir af Evrópu, Afríku og Indlands- og Atl­ants­hafi á 15 mín­útna fresti. Mynd­irnar nota veð­ur­fræð­ing­arnir svo til að spá fyrir um veðrið. Hér að neðan má sjá veðra­kerfin þró­ast yfir Evrópu í apríl síð­ast­liðnum.

https://www.youtube.com/watch?v=K5qTgJ-IldM

Á vef Mashable er útskýrt hvernig þessi veð­ur­tungl virka. Tunglin halda stöðu sinni yfir fyr­ir­fram ákveðnum punkti á jörð­inni og gera veð­ur­fræð­ingum kleift að fylgj­ast með veðra­kerfum í loft­hjúpi jarðar þró­ast.

Veð­ur­stofa Íslands varð með­limur í EUMETSAT í jan­úar 2014 eftir að Sigurður Ingi Jóhanns­son, þáver­andi umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, skrif­aði undir sam­komu­lag þess efnis. Íslend­ingar leggja til um 0,10 pró­sent fjár­magns­ins til rekst­urs veð­ur­tungl­anna, eða næst minnst. Aðeins er fram­lag Eista minna. Þjóð­verjar, Bretar og Frakkar leggja til mest eða sam­an­lagt helm­ing fjár­magns­ins.

[caption id="attachment_35757" align="alignnone" width="1356"] Jörðin séð úr víðlinsu MSG-4 á dög­unum. Sjáið hvernig Ísland er sveipað skýjum.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár