Heið­ar­dalur Í Vatnsdal upp af Vatns­firði má finna ár og læki með mörgum fossum. Vatnið kemur úr stöðu­vötnum á heið­inni, af hálendi sem kall­ast Gláma. Friðlandið nær inn á heið­ina og það gerir líka rann­sókn­ar­svæði Orku­bús­ins sem vill leysa orku­vanda Vest­firð­inga með virkjun. Mynd: ÓLAFUR MÁR BJÖRNSSON

Nokkrar virkjanir við Vatnsfjörð í athugun

Affriða þyrfti Vatns­fjörð að minnsta kosti að hluta ef hug­myndir um virkjun, eða rétt­ara sagt virkj­anir, eiga að verða að veru­leika. Orkubú Vest­fjarða hefur fengið þar leyfi til rann­sókna, sem og í næsta firði – í óþökk land­eig­enda.

Norski vík­ing­ur­inn Flóki Vil­gerð­ar­son, síðar kall­aður Hrafna-Flóki, hélt eftir miðja níundu öld vestur um haf í leit að nýju landi. Með í för var fleira fólk og búfén­aður enda ætl­unin að setj­ast að á ókunnum slóðum. Hafði hann enn fremur með sér þrjá hrafna til að vísa sér leið. Fyrst kom hann við á Hjaltlandi. Þá í Færeyjum. En ein­hvern tím­ann á ára­bil­inu 860-870 er hann sagður hafa tekið land á Íslandi, nánar til­tekið í Vatns­firði á Barða­strönd – í vest­asta firð­inum sem gengur norður úr Breiða­firði.

Í Landnámu segir að þá hafi fjörð­ur­inn verið fullur af fiski og svo upp­teknir voru norsku land­nem­arnir af veiðum að þeir hug­uðu ekki að hey­skap. Allt búfé þeirra drapst því um vet­ur­inn. Þegar vor­aði gekk Hrafna-Flóki á fjall og sá fjörð fullan af ís. Í Landnámu segir svo: „Vár var heldr kalt. Þá gekk Flóki upp á fjall eitt hátt ok sá …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ragnar Heiðar Þrastarson skrifaði
    En hvernig er með aðra virkjunarkosti á Glámusvæðinu, eins og Hvanneyrardalsvirkjun sem eru öll utan friðlandsins?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár