Segir ríkisstjórnina leggja fram frumvarp nú þegar lítið beri á – eins og til að lauma því framhjá þjóðinni

Þing­maður utan flokka segir frum­varp dóms­mála­ráð­herra um breyt­ingar á útlend­inga­lögum stór­hættu­legt og marg­tuggið.

Andrés Ingi Jónsson
Andrés Ingi Jónsson Mynd: Skjáskot/Alþingi

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður utan flokka, vakti máls á frum­varpi Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra um breyt­ingar á útlend­inga­lögum undir dag­skrár­liðnum störf þings­ins í dag.

Hann sagði að nú þráskall­að­ist rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur við að leggja fram þetta frum­varp í þriðja sinn. Nú á tímum þar sem lítið beri á því, eins og til að lauma því fram­hjá þjóð­inni.

Þing­mað­ur­inn vitn­aði í ávarp Katrínar til þjóð­ar­innar sem hún hélt sunnu­dags­kvöldið síð­ast­liðið en þar sagði hún: „Frá og með morg­un­deg­inum hefjum við veg­ferð okkar, skref fyrir skref í átt að bjart­ari dögum.“ Hann benti á að nú væri kom­inn dag­ur­inn eftir þennan morg­un­dag og hann spurði: „Og hvað ger­ist þá?“

Stórhættulegt og margtuggið frumvarp

„Frekar en að sjá ein­tóm fyr­ir­heit um bjart­ari daga á dag­skrá þing­fundar birt­ist gam­all kunn­ingi. Stór­hættu­legt og marg­tuggið frum­varp dóms­mála­ráð­herra um breyt­ingar á útlend­inga­lögum,“ sagði Andrés Ingi.

Hann rifj­aði það upp að frum­varpið hefði vakið hörð við­brögð þegar Sigríður Andersen, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, birti það á sam­ráðs­gátt­inni fyrir um ári síðan og þegar Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir lagði það fram á þingi.

„Þetta er fólkið sem við sjáum reglulega í fjölmiðlum“

Andrés Ingi sagði að versta breyt­ingin í frum­varp­inu væri lúmsk, bara brott­fall á einum staf­lið, en hefði það í för með sér að stór hópur fólks sem sækir hér um alþjóð­lega vernd ætti svo til enga von á að fá hana.

„Þetta er fólkið sem við sjáum reglu­lega í fjöl­miðlum, fjöl­skyldur á flótta og fólk sem glímir við veik­indi, barns­haf­andi konur, nýburar og börn í íslensku skóla­kerfi. Fólk sem hefur fengið hæli í ríkjum eins og Grikk­landi þar sem fólk býr árum saman í tjald­búðum án aðgangs að raf­magni og vatni.

Ríkjum eins og Ung­verja­landi og Búlgaríu þar sem flótta­fólk á á hættu að vera beitt ofbeldi af lög­regl­unni. Ríkjum sem geta ekki tryggt því mann­sæm­andi aðstæður þannig að fólk leggst á flótta undan kerf­inu sem á að vernda það,“ sagði hann.

Ekki hægt að skreyta sig samstöðu en snúa svona baki við flóttafólki

Þing­mað­ur­inn sagði jafn­framt að fella ætti niður laga­heim­ild­ina sem gerði Íslend­ingum kleift að leyfa þessu fólki að vera. „Verði þetta frum­varp að lögum hefur hvorki Útlend­inga­stofnun né kæru­nefnd útlend­inga­mála einu sinni heim­ild til að taka mál þessa fólks til umfjöll­unar.

Það er ekki hægt að skreyta sig sam­stöðu einn dag­inn en snúa svona baki við flótta­fólki þann næsta,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár