LÍN: Námslán hækka, afborganir lækka og vanskil aukast

Heild­ar­út­lán Lána­sjóðs íslenskra náms­manna fyrir skóla­árið 2013 til 2014 námu 16,2 millj­örðum króna. 11.768 náms­menn fengu afgreidd lán á þessu skóla­ári en greið­endur náms­lána voru ríf­lega 35 þús­und tals­ins. Þetta kemur fram í árs­skýrslu LÍN sem var birt í dag.

Með­al­upp­hæð náms­lána fer hækk­andi og mesta fjölg­unin er meðal náms­manna sem skulda meira en tólf millj­ónir króna. Þá hefur með­al­aldur greið­enda hækkað vegna þess að náms­menn fara í lengra nám en áður og eru eldri þegar þeir hefja nám.

7,6 millj­arðar króna voru lagðir í afskrifta­sjóð LÍN árið 2014, sem er mun meira en þeir 2,8 millj­arðar sem voru settir í sjóð­inn árið 2013. Þetta stafar af því að gjald­þrotum fjölg­aði á milli áranna, úr 0,15 pró­sentum í 0,30 pró­sent, og vegna þess að með­al­af­borgun náms­lána hefur farið lækk­andi milli ára. Færri fengu hins vegar und­an­þágur frá því að borga til baka árið 2014 en árið á undan, eða 4 pró­sent í stað 5 pró­senta.

Van­skilum fjölgar líka milli ára, en þau eru algeng­ust hjá fólki sem býr í útlöndum og þeim sem hafa tekjur undir 250 þús­undum á mán­uði. Vanskil hafa líka auk­ist hjá yngri lán­þegum, sem lána­sjóð­ur­inn segir áhyggju­efni af því að slík þróun getur bent til auk­innar afskrift­ar­þarfar á næstu árum.

Afskrifta­sjóður LÍN stendur í 41,5 millj­örðum króna, og nemur tæp­lega tutt­ugu pró­sentum af heild­ar­út­lánum LÍN. Núvirt virði heild­ar­út­lána LÍN er 133 millj­arðar, 38,5 millj­örðum lægra en bók­fært virði þeirra. Munurinn kemur til vegna þess að sjóð­ur­inn lánar náms­mönnum á lægri vöxtum en sjóð­ur­inn sjálfur fær til að fjár­magna sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár