Tveimur málum lauk með sátt milli aðila – og eitt er nú í skoðun

Einn af skip­herrum Land­helg­is­gæsl­unnar er kom­inn í leyfi á meðan frum­rann­sókn á sam­skiptum um borð í varð­skip­inu Tý fer fram. Ástæða rann­sókn­ar­innar eru ábend­ingar sem bár­ust stjórn­endum Land­helg­is­gæsl­unnar vegna gruns um kyn­ferð­is­lega áreitni.

Þrjú mál er varða kyn­ferð­is­lega áreitni hafa borist á borð stjórn­enda Land­helg­is­gæsl­unnar síð­ast­liðin 4 ár. Tveimur málum hefur verið lokið með sátt milli aðila og er eitt mál nú í skoðun.

Þetta kemur fram í svari Land­helg­is­gæsl­unnar við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Unnið er eftir stefnu og við­bragðs­á­ætlun Land­helg­is­gæslu Íslands gegn ein­elti, ofbeldi og áreitni á vinnu­stað, að því er fram kemur í svar­inu.

Í svar­inu kemur jafn­framt fram að einn af skip­herrum Land­helg­is­gæsl­unnar sé kom­inn í leyfi á meðan frum­rann­sókn á sam­skiptum um borð í varð­skip­inu Tý fer fram. Ástæða rann­sókn­ar­innar séu ábend­ingar sem bár­ust stjórn­endum Land­helg­is­gæsl­unnar helg­ina 18. til 19. sept­em­ber vegna gruns um kyn­ferð­is­lega áreitni.

Tveir óháðir aðilar rannsaka málið

[links]Kyn­ferð­is­leg áreitni er sam­kvæmt við­bragðs­á­ætl­un­inni hvers kyns kyn­ferð­is­leg hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann til­gang eða þau áhrif að mis­bjóða virð­ingu við­kom­andi einkum þegar hegð­unin leiðir til ógn­andi, fjand­sam­legra, nið­ur­lægj­andi, auð­mýkj­andi eða móðg­andi aðstæðna. Hegðunin getur verið orð­bundin, tákn­ræn og/eða lík­am­leg.

„Land­helg­is­gæslan lítur málið alvar­legum augum og brást strax við með því að fá tvo óháða aðila til að ann­ast rann­sókn á umræddum atriðum. Sú rann­sókn stendur yfir,“ segir í svar­inu til Kjarnans.

Meintir þolendur tvær ungar konur

RÚV greindi frá mál­inu þann 21. sept­em­ber síð­ast­lið­inn en í frétt RÚV kemur fram að skip­herra á varð­skipi Land­helg­is­gæsl­unnar hefði verið settur í leyfi vegna gruns um kyn­ferð­is­lega áreitni. Þá herma heim­ildir frétta­stofu RÚV að þolend­urnir í mál­inu sem nú er til rann­sóknar séu tvær ungar konur í áhöfn varð­skips­ins.

Mannlíf fjall­aði einnig um málið 18. sept­em­ber en í frétt mið­ils­ins var því haldið fram að innan sjó­deildar Land­helg­is­gæsl­unnar hefði við­geng­ist ein­elti og kyn­ferð­is­leg áreitni gagn­vart kven­kyns starfs­mönnum. Margar hefðu „hrökkl­ast frá“ Land­helg­is­gæsl­unni í gegnum tíð­ina eða verið sagt upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár