Gunn­hildur Hauks­dóttir Hún dvaldi í tvo mán­uði í Reykja­vík á dög­unum, til að und­ir­búa og fram­kvæma hljóð­verka­gjörn­ing­inn Óróaplott í Gróttu­vita við opnun sýn­ing­ar­innar Earth Homing: Rein­vent­ing Turf Houses / TORF á Sel­tjarn­ar­nesi. Mynd: Hörður Sveinsson

Leitar mennskunnar á flakki um heiminn

Myndlistar­konan Gunnhildur Hauks­dóttir dvaldi nýverið innan um apa á verndar­svæði í Suður-Afríku, í þeim tilgangi að sækja sér innblástur að sköpun marg­slungins lista­verks sem ber vinnu­heitið Mennska / ómennska.

Örlaga­vald­ur­innGunn­hildur sá mynd af apastelp­unni Kumquat sem vakti með henni djúpa löngun til að ferð­ast til Afríku.

Alveg síðan Gunnhildur Hauks­dóttir lá yfir dýra­lífsmyndum sem barn hafði hana dreymt um að fara til Afríku. Það var því draumur sem rættist, þegar henni bauðst nýverið að heimsækja verndar­svæði í Suður-Afríku þar sem hún fékk að fylgja dýra­atferlis­fræðingum eftir meðan þeir skrásettu ferðir og hegðun apa úti í villtri nátt­úrunni. Gunnhildur hafði kynnst dýra­atferlis­fræðingnum Louise Barret í Háskólanum í Lethbridge í Kanada, fyrir milli­göngu gallerí­ista Háskólans. Louise, ásamt manni sínum, apafræðingnum Peter Henzi rekur rannsóknar­stofu á vettvangi í Eastern Cape í Suður-Afríku, þar sem Vervet-apakettir eru til athugunar. „Ég fékk að fylgja vettvangs­fólkinu og reyndi að þvælast ekki fyrir því. Það var lagt af stað klukkan fimm á morgnana. Þá var farið á svefnstað apanna og beðið eftir að þeir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár