Svíþjóðardemókratar vilja vantraust á Löfven

Mattias Karlsson, leið­togi Sví­þjóð­ar­kemókrata á sænska þing­inu, óskaði eftir því þegar leið­toga­kapp­ræður fóru fram í dag, að fá að leggja fram van­traust­s­til­lögu gegn Stefan Löfven for­sæt­is­ráð­herra. Aðeins tvær vikur eru síðan Löfven aflýsti fyr­ir­hug­uðum kosn­ingum á miðju kjör­tíma­bili eftir upp­nám við afgreiðslu fjár­laga í des­em­ber.

Til að geta lagt fram van­traust­s­til­lögu gegn ráð­herra í Svíþjóð þarf þing­maður að fá 35 stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn til að standa með sér. Ekki mega líða meira en 3 þing­fundir frá því að beiðni um van­traust hefur verið lögð fram. Ein­faldan meiri­hluta þing­heims (175 jákvæð atkvæði) þarf til að stað­festa van­traust­s­til­lög­una.

„Sví­þjóð­ar­demókrat­arnir nota hræðsu­að­ferðir við með­ferð fjár­laga og halda því áfram. Á sama tíma er flokk­ur­inn að brenna margar brýr að baki sér,“ segir Henrik Oscarsson, stjórn­mála­fræð­ingur við Gauta­borg­ar­há­skóla, við AFP-frétta­stof­una.

Ólíklegt þykir að van­traust­s­til­lagan verði stað­fest í þing­inu þegar greidd verða um hana atkvæði. Sví­þjóða­demókrat­arnir hafa 49 þing­menn eftir að hafa tvö­faldað fylgi sitt í síð­ustu kosn­ingum og þurfa því 126 atvæði til við­bótar frá öðrum öflum í sænska þing­inu.

[caption id="attachment_15418" align="alignnone" width="1024"] Löfven hefur ekki átt sjö dag­ana sæla síðan hann tók við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra af Fredrik Rein­feldt í októ­ber.[/caption]

Náði naumlega að afstýra kosningum


Löfven hafði boðað til kosn­inga fyrr í des­em­ber­mán­uði í kjöl­far þess að minni­hluta­stjórn undir hans for­sæti mistókst að koma fyrsta fjár­laga­frum­varpi sínu í gegnum þingið, en hún tók við völdum í kjöl­far þing­kosn­inga sem fóru fram í sept­em­ber síð­ast­liðnum.

Skoð­anna­kann­anir bentu til þess að Sví­þjóð­ar­demókratar, flokkur þjóð­ern­is­sinna sem vill herða mjög inn­flytj­enda­lög­gjöf lands­ins, myndi styrkja sig mjög ef kosið yrði aftur í mars. Flokk­ur­inn vann stór­sigur í síð­ustu kosn­ingum þegar hann fékk 12,9 pró­sent atkvæða, sem er það mesta sem hann hefur nokkru sinni hlotið. Aðrir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar eins og til dæmis Hægri­flokk­ur­inn (Modera­terna) hafa einnig mælst með aukið fylgi síðan í kosn­ing­unum síð­asta sumar.

Löfven náði á síð­ustu stundu að gera samn­ing við mið­hægri­flokka og afstýra falli minni­hluta­stjórn­ar­innar í lok des­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár