Kína og Norður-Kórea opna viðskiptastöð á landamærum sínum

Nágranna­ríkin Kína og Norður-Kórea ætla að opna við­skipta­stöð syðst á landa­mærum sínum í hafn­ar­borg­inni Dandong. Þetta hefur Reuters eftir rík­is­frétta­miðlum í Kína í dag.

Opnun við­skipta­stöðvar milli land­anna er meðal nýj­ustu aðgerða ríkj­anna til að efla efna­hags­leg tengsl þrátt fyrir aukna spennu milli landana að und­an­förnu. Við­skipta­hlið­inu er ætlað að opna í októ­ber en áætl­unin hefur þegar verið sam­þykkt af borg­ar­yf­ir­völdum í Dandong.

„Íbúar á innan við 20 kíló­metra svæði frá landa­mær­unum verður gert kleift að versla toll­frjálst við íbúa í Norður-Kóreu. Hámarks­dags­verslun eru 8.000 kín­versk júan [um 170.000 íslenskar krónur],“ segir í frétt kín­verskrar frétta­veitu.

Kína er helsta við­skipta­land Norður-Kóreu sem er ann­ars mjög ein­angrað á alþjóða­vett­vangi. Komm­ún­ista­stjórnin í Sov­ét­ríkj­unum studdi ávallt vel við félaga sína í Norður-Kóreu en eftir fall Sov­ét­ríkj­anna árið 1990 hefur komm­ún­ista­flokk­ur­inn í Noður-Kóreu helst leitað til Kína.

Samband Kína og Norður-Kóreu hefur hins vegar stirðnað und­an­farin ár eða síðan Kóreu­menn hófu að gera til­raunir með kjarna­vopn. Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa for­dæmt til­raun­irnar og aðild­ar­lönd hert við­skipta­þving­anir á Norður-Kóreu. Á sama tíma hefur Kína styrkt tengsl sín við Suður-Kóreu, sem er fjóprða stærsta hag­svæði í Asíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár