Spáir því að flokkurinn snúist gegn Trump

Leiðtogi demókrata seg­ist trúa því að þing­menn repúblik­ana muni ekki sitja hjá ef Trump náðar sjálfan sig eða fjöl­skyldu sína.

Chuck Schumer er leiðtogi demókrata á bandaríska þinginu.
Chuck Schumer er leið­togi demókrata á banda­ríska þing­inu. Mynd: EPA

Chuck Schumer, leið­togi demókrata á banda­ríska þing­inu, telur ólík­legt að þing­menn Repúblikana­flokks­ins muni leyfa Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, að reka Robert Mueller eða náða sjálfan sig af ákærum á hendur sér.

Mueller var ráð­inn til þess að rann­saka meint áhrif Rússa á banda­rísku kosn­ing­arnar á síð­asta ári og sam­skipti kosn­inga­bar­áttu Trumps við rúss­neska ráða­menn og umboðs­menn þeirra. Fyrir vikið hefur Mueller sætt gagn­rýni for­set­ans sem segir sög­urnar allar upp­spuna frá A-Ö, jafn­vel þótt sýnt hafi verið fram á annað.

Frá þessu er greint á vef Bloomberg.

Schumer seg­ist ekki geta ímyndað sér að kollegar hans í meiri­hluta repúblik­ana, þar með talið Mitch McConnell leið­toga þing­flokks­ins og Paul Ryan þing­for­seta, muni láta afskipti Trumps óhreyfð.

[adspot]

„Það yrðu ein­hver mestu brot á reglum rétt­ar­rík­is­ins, á lýð­ræð­is­hefðum og því sem lýð­ræðið okkar snýst um,“ sagði Schumer í sjón­varps­við­tali á banda­rísku stöð­inni ABC í gær. „Slíkt mundi valda nátt­úru­ham­förum í Washington.“

Donald Trump gaf í skyn, í við­tali við banda­ríska dag­blaðið The New York Times í síð­ustu viku, að búið væri að draga rauða línu utan um meint leyni­makk með Rússum, sem Mueller mætti ekki stíga yfir. Á laug­ar­dag var for­set­anum svo tíð­rætt á Twitter um náð­un­ar­vald sitt.

Trump getur ekki rekið Robert Mueller enda starfar sá í umboði Rod Ros­en­stein, aðstoð­ar­dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna. Ros­en­stein gegnir skyldum dóms­mála­ráð­herra vegna þess að dóms­mála­ráð­herr­ann Jeff Sessions er sjálfur til rann­sóknar í þessu máli.

Vara Trump við að náða sig eða fjölskyldu sína

Nýr sam­skipta­stjóri Donalds Trump, Anthony Scaramucci, hóf störf á föstu­dag­inn. Hann hefur sagt fjöl­miðla ein­beita sér of mikið að hugs­an­legum sam­skiptum Trumps við Rússa. Hann sagði í sam­tali á Fox-sjón­varps­stöð­inni að for­set­inn hafi rætt um náð­un­ar­vald sitt á skrif­stofu sinni í Hvíta hús­inu í síð­ustu viku. Scaramucci segir for­set­ann samt ekki þurfa að nota það.

[links]„Það er eng­inn í kringum hann sem þarf á náðun að halda,“ sagði Scaramucci. „Hann var bara að tala um náð­un­ar­valdið almennt.“

Scaramucci sagði einnig í þætti á CNN-sjón­varp­stöð­inni að for­set­inn væri ekki sann­færður um að Rússar hafi haft áhrif á kosn­ing­arnar, jafn­vel þó leyni­þjón­usta og lög­reglu­yf­ir­völd telji að það hafi raun­veru­lega verið þannig. „Hann sagði mér: Hey, þú veist, þetta er kannski gerðu þeir þetta, kannski gerðu þeir þetta ekki,“ segir Scaramucci um orð for­set­ans.

Öld­unga­deild­ar­þing­maður repúblik­ana, Rand Paul, telur allar líkur á að Trump geti náðað sjálfan sig en segir það vera vonda hug­mynd. „Ég mundi vara hvern sem er í hinum póli­tíska heimi við að náða sjálfan sig eða fjöl­skyldu­með­limi sína.“

Donald Trump yngri, sonur for­set­ans, hefur sjálfur við­ur­kennt að hafa átt í sam­skiptum við Rússa í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í fyrra. Hann deildi tölvu­póst­sam­skiptum sínum um fund með rúss­neskum lög­manni sem sagð­ist eiga skemm­andi upp­lýs­ingar um Hillary Clinton, for­seta­fram­bjóð­anda demókrata, á Twitter.

Enn hefur ekki verið gefin út ákæra í þessu máli en lög­spek­ingar telja fund­inn geta hafa verið í and­stöðu við lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár