Bjarni fundar um endalokin

Þingmenn Sjálfstæðis­flokksins funda nú í Valhöll. Björt framtíð tilkynnti um slit á stjórnar­samstarfinu vegna trúnaðar­brests sem tengist máli dæmds kynferðis­brotamanns. Faðir forsætis­ráðherra veitti Hjalta meðmæli en stjórn­völd héldu því leyndu.

Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra fundar nú með þing­flokki Sjálfstæðis­flokksins í Valhöll, en ljóst er að líf fyrstu ríkis­stjórnar hans er á enda.

Björt framtíð tilkynnti um slit á stjórnar­samstarfinu við Sjálfstæðis­flokkinn og Viðreisn í gærkvöldi. 

Stutt­orðurBjarni sagði fáein orð við fjöl­miðla­menn áður en hann gekk inn á fund­inn.

Ástæðan sem Björt framtíð gefur er trúnaðar­brestur í máli Hjalta Sigurjóns Hauks­sonar, manns sem dæmdur var árið 2004 fyrir að brjóta gegn stjúpdóttur sinni nær daglega í tólf ár. Faðir forsætis­ráðherra veitti Hjalta meðmæli þegar hann sótti um og fékk uppreist æru, en því var haldið leyndu fyrir almenningi, Alþingi og samstarfs­flokkum sjálfstæðis­manna í ríkis­stjórn. Virðreisn hefur kallað eftir því að boðað verði sem fyrst til kosninga, en Benedikt Jóhannesson formaður flokksins hafnar því hins vegar að trúnaðar­brestur hafi orðið.

„Það er margt sem mig langar til að tala um, það eru þessi tíðindi vikunnar og sú staða sem síðan myndast í kjölfarið,“ sagði Bjarni við fjölmiðla áður en hann gekk inn í Valhöll á fund þing­flokksins áðan. Hann hyggst veita viðtöl síðar í dag.

„Það er margt sem mig langar að tala um“

Fram kom í viðtali RÚV og Stöðvar 2 við Guðlaug Þór Þórðarson utan­ríkis­ráðherra að hann ætti ekki von á því að breyting yrði á stuðningi við Bjarna Benediktsson sem formann Sjálfstæðis­flokksins. 

„Það er mjög skiljanlegt að fólki sé brugðið og fyllist óhugnaði í tengslum við þessi mál,“ sagði Guðlaugur. „Bjarni hefur haft stuðning Sjálfstæðis­manna og ég ekki von á því að það verði einhvern breyting á því. 

Þing­flokk­ur­inn fundar nú um næstu skref eftir að Björt fram­tíð til­kynnti um stjórn­ar­slit.

Hjalti Sigurjón Hauksson var dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi árið 2004 fyrir að hafa brotið gegn stjúpdóttur sinni nær daglega í tólf ár. Stundin greindi frá því þann 25. ágúst síðastliðinn að Hjalti hefði fengið uppreist æru, og í gær var staðfest að Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Benedikts­sonar forsætis­ráðherra, væri einn þeirra sem veitt hefðu Hjalta meðmæli vegna umsóknar hans.

Dómsmála­ráðuneytið og þingmenn Sjálfstæðis­flokksins hafa beitt sér af mikilli hörku fyrir því að leynd ríki um nöfn umsækjenda um uppreist æru, meðmælenda þeirra og máls­meðferð dómsmála­ráðuneytisins.

Þetta var gert undir þeim formerkjum að um viðkvæmar persónu­upplýsingar væri að ræða sem ættu lögum samkvæmt að fara leynt. Engu að síður viðurkenndi dómsmála­ráðherra, Sigríður Andersen, í gærkvöldi að hafa greint Bjarna Benedikts­syni frá því í sumar að faðir hans hefði veitt Hjalta Sigurjóni meðmæli. Svo virðist sem þetta hafi verið dropinn sem fyllti mælinn hjá Bjartri framtíð. 

Sigríður Á. Andersendóms­mála­ráð­herra kaus að birta ekki upp­lýs­ingar um mál manna sem fengið hafa upp­reist æru.
Kristján Þór Júl­í­us­sonmennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra
Unnur Brá Kon­ráðs­dóttirfor­seti Alþingis

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið undanfarið ár