Svanhildur Hólm Valsdóttir, sem starfað hefur sem aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, árum saman hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.
Í tilkynningu sem birt er á vef Viðskiptaráðs er haft eftir Ara Fenger, formanni ráðsins, að það é afar spennt fyrir því að fá Svanhildi til liðs við sig. „Hún hefur mikla reynslu og þekkingu á efnahags- og viðskiptalífinu sem er dýrmætt á þessum víðsjárverðu tímum. Viðskiptaráð er mikilvæg rödd íslensks atvinnulífs og hjá okkur eru spennandi verkefni framundan, sem Svanhildur mun koma inn í af krafti.“
Svanhildur, sem er fædd árið 1974, er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og er auk þess með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, mun hefja störf 1.desember næstkomandi.
[adspot]Svanhildur hefur verið aðstoðarmaður Bjarna frá árinu 2012. Hún var framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins í þrjú ár þar á undan en starfaði einnig um árabil sem fjölmiðlamaður, meðal annars í Kastljósi og sem þáttastjórnandi í Íslandi í dag á Stöð 2.
Hún hafði áður sinnt félagsstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, og var í stjórn og svo annar varaformaður SUS árin 1997 til 2001.
Svanhildur var á meðal þeirra sem sóttu um starf útvarpsstjóra RÚV þegar það var auglýst á síðasta ári. Stefán Eiríksson var ráðinn í það starf.
Hún tekur við starfi framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs af Ástu Sigríði Fjeldsted, sem réð sig sem framkvæmdastjóra Krónunnar fyrr á þessu ári og hóf störf þar 1. október síðastliðinn. Ásta Sigríður hafði verið framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs frá árinu 2017.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir