Reiðhjól í reiðuleysi

Danir eru hjól­reiða­þjóð, og Dönum sem hjóla fjölgar stöðugt. Á Kaup­manna­hafn­ar­svæð­inu búa rúm­legar tvær millj­ónir og talið er að reið­hjólin séu um það bil helm­ingi fleiri. Þau eru þó ekki öll í vörslu eig­end­anna.

Danir full­yrða iðu­lega að þeir séu mesta hjól­reiða­þjóð í heimi og segja Kaup­manna­höfn höf­uð­borg hjól­reið­anna. Enginn dómur skal hér lagður á þessar full­yrð­ingar en víst er að járn­hest­ur­inn, eins og Danir kalla reið­hjólið gjarna er mik­il­vægt sam­göngu­tæki í borg­inni við sundið. Um það bil helm­ingur borg­ar­búa hjólar til dag­legra starfa. Hjólin eru af öllum gerðum, gömul og ný, sum gljá­fægð en önnur hálf­gerðar ryð­hrúgur þar sem ískrar í keðj­unni þegar stigið er. Allir hjóla: kenn­arar og kontóristar, bak­arar og bryggju­verðir, frétta­menn og fánastanga­smiðir, lög­fræð­ingar og lag­anna verðir, skradd­arar og skúr­inga­fólk, ráð­herrar og rit­höf­undar, hefð­ar­frúr og hunda­temj­arar o.s.frv.

Margir láta sér ekki nægja eitt hjól, eiga kannski eitt „hvers­dags­hjól“ og svo annað sem notað er í lengri hjóla­ferðir. Enginn veit með vissu hve mörg reið­hjól fyr­ir­finn­ast á ,,stór Kaup­manna­hafn­ar­svæð­inu“ en talið er að þau séu næstum helm­ingi fleiri en íbú­arnir sem eru rúm­lega tvær millj­ónir.

Mörgum hjólum stolið

Fyrir skömmu var birt árleg grein­ar­gerð Kaup­manna­hafn­ar­borgar um hjól­reiðar í borg­inni. Þar er að finna tölur um flest það sem við­kemur hjól­reiðum: lengd nýrra hjóla­stíga, heild­ar­lengd slíkra stíga í borg­inni, fjölda þeirra borg­ar­búa sem hjóla, breyt­ingar frá fyrra ári o.s.frv. Sem sé sægur upp­lýs­inga um allt sem við­kemur þessum sam­göngu­máta.

Danska lög­reglan fær dag­lega rúm­lega tvö hund­ruð til­kynn­ingar um stolin reið­hjól, lang­flest í Kaup­manna­höfn. Lög­reglan telur að hún fái þó ekki til­kynn­ingar um nándar nærri öll hjól sem stolið er og árlega séu að minnsta kosti 100 þús­und hjól tekin ófrjálsri hendi. Þeir sem hafa eign­ast hjól sitt með lög­legum hætti og fengið það skráð, og keypt trygg­ingu, fá hjólið bætt. Dönsku trygg­inga­fé­lögin greiða árlega út jafn­gildi um það bil sex millj­arða íslenskra króna vegna þessa. Mjög fáa reið­hjóla­þjófn­aði tekst að upp­lýsa og dómar vegna slíkra þjófn­aða ein­ungis örfáir á hverju ári.

Hverjir stela reiðhjólum?

Lög­reglan segir að skipta megi reið­hjóla­þjófum í fjóra flokka. Fyrst eru það þeir sem nappa hjóli til að vera fljót­ari á áfanga­stað og skilja svo hjólið eftir þegar þangað er komið. Þetta er all­nokkur hópur. Svo eru það þeir sem stela hjóli og slá eign sinni á það. Kannski af því að þeirra eigin hjóli hefur verið stolið. Í þriðja flokknum eru þeir sem stela hjólum, kannski eftir pönt­unum, og selja svo áfram. Þetta er ekki stór hópur en lög­reglan segir að „veltan“ hjá þeim sem stundi þessa iðju sé umtals­verð. Í fjórða hópnum eru þeir sem lög­reglan kallar „næt­ur­vinnu­menn“. Gjarna útlend­ingar sem fara um að næt­ur­lagi, á sendi­ferða­bíl, sem þeir fylla af reið­hjólum og bruna svo úr landi og selja góssið utan Dan­merkur. Lög­reglan segir að þessum „næt­ur­vinnu­mönnum“ hafi fjölgað mikið á allra síð­ustu árum og svo virð­ist sem víða í Evrópu sé auð­velt að selja stolin reið­hjól.

Þúsundir hjóla í reiðuleysi

Í áður­nefndri grein­ar­gerð Kaup­manna­hafn­ar­borgar kemur fram að í dag séu að minnsta kosti 32 þús­und reið­hjól sem hafi verið yfir­gefin, eins og lög­reglan orðar það. Ástandið er verst við lest­ar­stöðv­arnar, þar eru þús­undir reið­hjóla sem eng­inn virðsti eiga. Þetta segir starfs­fólk borg­ar­innar baga­legt því mik­ill skortur er á hjóla­stæðum við stöðv­arnar, og reyndar eru nán­ast öll hjóla­stæði, á almanna­færi, í borg­inni yfir­full alla daga. Sömu sögu er að segja um reið­hjóla­stæði við fjöl­býl­is­hús og versl­ana­mið­stöðvar, allt yfir­fullt.

Starfs­fólk borg­ar­innar fjar­lægir árlega um það bil 15 þús­und reið­hjól sem skilin hafa verið eftir á gang­stéttum og stígum, í almenn­ings­görðum og víðar. Þetta hrekkur þó ekki til og í grein­ar­gerð borg­ar­innar kemur fram að æski­legt væri að fjölga starfs­fólki sem vinnur við að fjar­lægja reið­hjólin sem eng­inn virð­ist eiga eða kæra sig um. En fylgja þarf ákveðnum reglum í þessum efnum.

Hvað verður um reiðhjólafjallið?

Eins og áður sagði er það starfs­fólk borg­ar­innar sem sér um að fjar­lægja hjól sem hafa verið skilin eftir á almanna­færi. Rekstr­ar­fé­lögum fjöl­býl­is­húsa ber að sjá um slíka hluti á sínu svæði. Höfundur þessa pistils bjó um ára­bil í nýlegu fjöl­býl­is­húsi í Kaup­manna­höfn. Þarna eru um það bil 300 íbúðir, í eins konar fer­hyrn­ingi utan um garð. Í garð­inum eru reið­hjóla­stæði. Árlega voru yfir­gefin hjól í tuga­tali fjar­lægð úr garð­inum, og þannig er það sjálf­sagt enn. Fyrst þarf að setja sér­stakt merki eða borða á hvert ein­asta hjól. Þar er til­tek­inn frestur, og jafn­framt til­kynnt að hjól sem verði enn með borð­anum þegar frest­ur­inn er úti verði fjar­lægð. Þegar sá dagur kemur er hjól­unum safnað á einn stað og svo beðið eftir lög­regl­unni, það getur tekið nokkurn tíma, allt upp í mánuð. Lög­reglan metur svo hvert ein­asta hjól og sé það talið minna en 500 króna virði (9 þús­und íslenskar) fer hjólið í end­ur­vinnslu. Sé um verð­mæt­ara hjól að ræða þarf að geyma það til­tek­inn tíma áður en það endar á upp­boði. Þetta fyr­ir­komu­lag, sem þarna er lýst er almennt fylgt, enda bundið í reglu­gerðum.

Und­an­farið hefur Kaup­manna­hafn­ar­borg, með aug­lýs­ingum, hvatt íbú­ana til að koma hjólum, sem þeir ekki ætli sér að eiga lengur, í end­ur­nýt­ingu. Til dæmis til góð­gerða­sam­taka og verk­stæða sem gera við notuð hjól og selja. Þannig öðlist notuð hjól nýtt líf.

Samtök danskra hjól­reiða­manna segja núver­andi fyr­ir­komu­lag varð­andi yfir­gefnu hjólin bæði flókið og sein­virkt, brýnt sé að ein­falda reglu­verkið. Sífellt sé verið að hvetja borg­ar­ana til að nota hjól­hest­inn en þá þurfi að búa svo um að alls­staðar sé hægt að „leggja“ lög­lega. Í dag skorti mikið á að svo sé í höf­uð­borg­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár