Höfðu rússnesk stjórnvöld áhrif á kjör Donald Trump?

Banda­ríska leyni­þjón­ustan CIA hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Rússar hafi haft afskipti af nýliðnum for­seta­kosn­ingum í Banda­ríkj­unum til þess að reyna að hjálpa Donald Trump að kom­ast í Hvíta húsið. Þetta hefur Washington Post eftir ónefndum, hátt­settum emb­ætt­is­manni innan CIA.

Þetta eru nið­ur­stöður leyni­legrar athug­unar CIA, sem kemst að því að til­gangur Rússa hafi ekki aðeins verið að draga úr trausti á banda­rískt kosn­inga­kerfi heldur bein­línis að hjálpa Donald Trump. Búið er að finna ein­stak­linga sem eru sagðir tengj­ast rúss­neskum stjórn­völdum, sem hafi látið WikiLeaks í té þús­undir tölvu­pósta frá lands­nefnd Demókra­ta­flokks­ins og fleirum, til dæmis fólki innan úr her­búðum Hillary Clinton.

Starfs­lið Trump vís­aði þessum nið­ur­stöðum á bug í stuttri yfir­lýs­ingu í gær­kvöldi að banda­rískum tíma. „Þetta er sama fólkið og sagði að Saddam Hussein byggi yfir ger­eyð­ing­ar­vopnum. Kosn­ing­unum lauk fyrir löngu síðan með einum stærsta kjör­manna­ráðs­sigri í sög­unni. Það er kom­inn tími til að halda áfram og gera Banda­ríkin frá­bær aftur,“ stóð í yfir­lýs­ing­unni. Trump hefur sjálfur sagt að hann hafi enga trú á því að Rússar hafi skipt sér nokkuð af málum. Tölvu­póst­arnir sem voru birtir á WikiLeaks hefðu getað tengst Rúss­landi, en líka Kína eða bara ein­hverju fólki í New Jersey.

Málið var kynnt fyrir öld­ung­ar­deild­ar­þing­mönnum í síð­ustu viku. Það er hins vegar ekki algjör sam­staða um málið innan leyni­þjón­ustu­stofn­ana, til dæmis vegna þess að það eru engar beinar upp­lýs­ingar um það að emb­ætt­is­menn rúss­neskra stjórn­valda hafi stýrt því að tölvu­póst­arnir færu til WikiLeaks. Fólkið sem hafi stjórnað hafi ekki verið starfs­menn rík­is­stjórn­ar­innar, heldur milli­liðir.

Julian Assange, stofn­andi WikiLeaks, hefur sagt að rúss­nesk stjórn­völd séu ekki upp­spretta lek­ans.

Barack Obama Banda­ríkja­for­seti hefur fyr­ir­skipað að mögu­leg tölvu­inn­brot Rússa í kosn­inga­bar­átt­unni verði skoðuð til fulls, og full­trúa­deild þings­ins hefur ýtt á það að stjórn­völd upp­lýsi almenn­ing um það nákvæm­lega hvað stjórn­völd í Moskvu eigi að hafa gert til að hafa áhrif á kosn­ing­arnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár