Elton John gagnrýndi Pútín svo Pútín hringdi

Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands, hringdi í tón­list­ar­mann­inn Elton John eftir að sá síð­ar­nefndi gagn­rýndi for­set­ann og sagð­ist vilja hitta hann til að ræða „fárán­lega“ hegðun rúss­neskra stjórn­valda gagn­vart sam­kyn­hneigðu fólki. Frá þessu er greint á vef The Guardian.

Elton John var staddur í Úkraínu, þar sem hann hitti meðal ann­ars for­set­ann Petró Porosjenko, að berj­ast fyrir rétt­indum hinsegin fólks. Réttindi LGBT-fólks eru fótum troðin í Rúss­landi og Úkraínu. Þaðan hafa til dæmis birst mynd­bönd þar sem veg­far­endur ráð­ast á og nið­ur­lægja menn sem hald­ast í hendur úti á götu.

„Takk Vladimír Pútín fyrir að hafa sam­band og ræða við mig í síma í dag,“ skrif­aði John í mynda­texta á Instagram-reikn­ing sinn við mynd af Pútín. „Ég hlakka til að hitta þig í eigin per­sónu og ræða við þig um jafn­rétti LGBT-fólks í Rúss­landi.“


Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Kreml og bar­áttu­sam­tökum Eltons John gegn alnæmi hafa þeir Pútín ekki kom­ist að stað né stund fyrir fund þeirra. Söngv­ar­inn, sem er nokkuð vin­sæll í Rúss­landi, hefur lengi barist fyrir því að lög um „óhefð­bundið kyn­ferð­is­legt sam­band“ verði afnumin í Rúss­landi. Hann hefur meira að segja for­dæmt lögin á tón­leikum sínum í Moskvu og Pét­urs­borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár