Starfsmönnum ungverska sjónvarpsins bannað að birta myndir af börnum flóttamanna

Starfs­menn rík­is­sjón­varps­ins í Ung­verja­landi hafa fengið skip­anir um að sýna ekki myndir af börnum flótta­manna í fréttum um flótta­fólk. Skjáskot af skipun stjórnar sjón­varp­stöðv­ar­innar til blaða­manna lak í aðra fjöl­miðla í dag. Frá þessu er greint á vef The Guardian.

Rík­is­stjórn Ung­verja­lands skipar í stjórn rík­is­sjón­varps­ins þar. Stjórn stofn­un­ar­innar hefur neitað því að hafa beiðið fjöl­miðla­fólk að reyna að tak­marka sam­kennd almenn­ings með flótta­fólki. Heldur hafi skip­unin átt að vernda börnin.

Stjórn­völd í Búdapest hafa lokað Keleti-lest­ar­stöð­inni þar fyrir flótta­fólki sem reynir að kom­ast vestar í álf­una, meðal ann­ars til Þýska­lands eins og Kjarninn greindi frá fyrr í dag. Flótta­menn hafa brugð­ist illa við því og mót­mæla að gerðum lög­reglu við lest­ar­stöð­ina. Fjöl­miðlaum­fjöllun um mót­mælin hefur hins vegar verið af skornum skamti í Ung­verja­landi.

Eftir að Fidesz-flokkur popúlist­ans Viktor Orbán komst til valda árið 2010 var fjöl­miðla­lögum breytt á umdeildan máta og hefur Orbán for­sæt­is­ráð­herra verið gagn­rýndir fyrir yfir­gang gagn­vart frjálsum fjöl­miðlum í kjöl­farið. Fjöl­miðla­mála­nefnd Evr­ópu­sam­bands­ins hefur til dæmis haft efa­semdir um að stefna ung­verskra stjórn­valda sé í sam­ræmi við reglu­gerðir sam­bands­ins.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Lögregla hefur meinað flótta­fólki að fara inn í lest­ar­stöð­ina í Búdapest. Ung­verskir fjöl­miðlar fjalla tak­markað um mót­mælin.[/caption]

Síðasta haust voru drög að sér­stökum inter­netskatti lögð í Ung­verja­landi sem varð til þess að meira en 100 þús­und manns mót­mæltu á götum höf­uð­borg­ar­innar. Fallið var frá þessum áformum að lokum.

Í fyrra sóttu 40.000 flótta­menn um hæli í Ung­verja­landi og hefur fjöldi flótta­fólks auk­ist stöðugt síðan þá. Um 95 pró­sent þessa fólks kemst inn í landið yfir landa­mærin við Serbíu en nú hafa ung­versk stjórn­völd reist fjög­urra metra háa girð­ingu á landa­mær­unum svo eng­inn kemst yfir.

Almenn­ings­á­litið í Ung­ver­landi gagn­vart flótta­mönnum hefur frá ára­mótum snú­ist við. Í lok árs 2014 sögð­ust 3 pró­sent Ungverja telja flótta­menn vera meðal stærstu þjóð­mál­anna en í sam­kvæmt könnun Repu­blikon Institute sem kynnt var á dög­unum telja nú 66 pró­sent Ungverja að „flótta­fólk valdi hættu í Ung­verja­landi og þess vegna ætti það ekki að fá að kom­ast þangað.“ Aðeins 19 pró­sent sögðu það skyldu Ung­verja­lands að taka á móti þessu fólki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár