78 aðilar vilja byggja 2.333 íbúðir

Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun segir áhyggjur af því að kröfur hlut­deild­ar­lána kæmu í veg fyrir að sótt yrði um þau og hag­kvæmt hús­næði byggt, virð­ast hafa verið óþarfar.

Af þeim 2.333 íbúðum sem byggingaraðilarnir hyggjast reisa eru 1.368 á höfuðborgarsvæðinu og 965 á landsbyggðinni.
Af þeim 2.333 íbúðum sem bygg­ing­ar­að­il­arnir hyggj­ast reisa eru 1.368 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 965 á lands­byggð­inni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls hafa 78 bygg­ing­ar­að­ilar skráð sig í sam­starf við Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun (HMS) um að byggja íbúðir sem fjár­magna má með hlut­deild­ar­láni. Samtals hyggj­ast þessir aðilar byggja 2.333 íbúðir, en þar af er ríf­lega helm­ing­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Hlut­deild­ar­lán er nýtt úrræði fyrir tekju- og eigna­minni ein­stak­linga, en því er ætlað að hjálpa fyrstu kaup­endum undir ákveðnum tekju­mörkum sem eiga ekki fyrir útborgun í íbúð en hafa aftur á móti greiðslu­getu til að greiða af hús­næð­is­láni. Þau eru ein­göngu veitt til kaupa á nýjum, hag­kvæmum íbúðum sem sam­þykktar eru af HMS og þurfa þær að upp­fylla skil­yrði hvað varðar stærð og verð.

Í til­kynn­ingu frá HMS eru rifjuð upp þau sjón­ar­mið sem voru viðruð í aðdrag­anda sam­þykktar frum­varps um hlut­deild­ar­lán að kröfur um hámarks­verð gætu orðið til þess að lítið yrði byggt af íbúðum „en þær áhyggjur virð­ast hafa verið óþarfar“.

Lög um hlut­deild­ar­lán tóku gildi 1. nóv­em­ber og er gert ráð fyrir að fyrstu lán­unum verði úthlutað til ein­stak­linga fljót­lega.

Af þeim 2.333 íbúðum sem bygg­ing­ar­að­il­arnir hyggj­ast reisa eru 1.368 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 965 á lands­byggð­inni, flestar á Suð­ur­nesjum og Suð­ur­landi. Nú þegar er búið að gefa út sam­þykki fyrir 468 íbúðum sem upp­fylla skil­yrði hlut­deild­ar­lána, af þeim eru 200 íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 268 á lands­byggð­inni, flestar í Reykja­nesbæ og Akureyri.

Hlut­deild­ar­lánin munu að mati HMS stuðla að auknu fram­boði íbúða sem henta tekju­lægri hópum, ýta undir að sveit­ar­fé­lög bjóði ódýr­ari lóðir og hvetja til nýsköp­unar í bygg­ing­ar­að­ferðum. „Mikil eft­ir­spurn er eftir minni íbúðum en bygg­ing­ar­að­ilar hafa hingað til séð sér meiri hag í bygg­ingu stærri dýr­ari íbúða eða minni lúxus­í­búða,“ segir í til­kynn­ingu HMS. Tilkoma hlut­deild­ar­lán­anna mun verða þeim hvatn­ing til að byggja meira fyrir þann hóp sem á rétt á nýju lán­unum.

HMS gerir ráð fyrir að veita lán til kaupa á um 500 íbúðum á næstu 12 mán­uðum, en lán­unum verður úthlutað sex sinnum á ári.

Umsókn­ar­frestur fyrir síð­ustu úthlutun árs­ins 2020 rennur út þann 13. des­em­ber næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár