Bandaríkin minnka útblástur um 32% til ársins 2030

Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, hefur sett nýjar loft­lags­reglur með ein­hliða ákvörðun emb­ætt­is­ins um að losun koltví­oxíðs út í and­rúms­loftið verði minnkuð um 32 pró­sent árið 2030 miðað við losun árs­ins 2005. Ákvörð­unin hefur mætt þó nokk­urri and­stöðu frá repúblikönum og orku­fyr­ir­tækjum.

Regl­urnar snúa að hverju ríki innan Banda­ríkj­anna fyrir sig enda er fram­leiðsla þeirra mis­mun­andi. Þær hvetja ein­stök ríki til að hverfa frá brennslu kola til raf­orku­fram­leiðslu og í átt til end­ur­nýt­an­legra orku­gjafa, svo sem kjarn­orku og vind­orku. Í ávarpi Obama sagði hann að regl­urnar myndu bæði lækka orku­reikn­ing almenn­ings í land­inu og stuðla að vel­sæld þeirra sem helst ættu undir höggi að sækja vegna hlýn­unar Jarðar.

„Við eigum bara eitt heim­ili. Það er bara ein Jörð. Það er ekk­ert plan B,“ sagði Obama. „Við erum fyrsta kyn­slóðin sem finnur fyrir áhrifum hnatt­rænnar hlýn­unar. Við erum síð­asta kyn­slóðin sem getur gert eitt­hvað í því.“

Áætlunin var ekki lögð fyrir banda­ríska þingið heldur und­ir­rituð ein­hliða af for­set­anum. Repúblikanar í banda­ríska þing­inu voru fljótir að gagn­rýna áætlun for­set­ans og segja nýju regl­urnar eiga eftir að hafa nei­kvæð áhrif á orku­fyr­ir­tækin og að orku­verð eigi eftir að hækka í kjöl­farið. „Ég ætla að gera allt sem ég get til að stoppa þetta,“ sagði Mich McConnell, leið­togi meiri­hlut­ans í öld­ung­ar­deild Banda­ríkja­þings.

Aðrir úr röðum repúblik­ana hafa kallað þessa áætlun Obama „orku­skatt“. „Ég held að þessi áætlun sé of dýr og hroka­full móðgun við Banda­ríkja­menn sem eiga erfitt með að ná endum saman,“ sagði John Boehner, for­seti full­trúa­deildar þings­ins.

Þá hafa orku­fyr­ir­tæki og ríki sem fram­leiða raf­orku og elds­neyti hótað því að kæra ákvörðun for­set­ans og leyfa dóm­stólum að skera úr um lög­mæti regl­anna.

Þetta útspil stjórnar Obama hefur þegar haft áhrif á kosn­inga­bar­átt­una til emb­ættis for­seta. Hillary Clinton, sem gefur kost á sér sem for­seta­efni demókrata, hefur sagst ætla að verja áætl­un­ina kom­ist hún til valda í Washington.

Margir af helstu leið­togum heims­ins hafa fagnað þess­ari áætlun Obama. Francois Hollande, Frakk­lands­for­seti, sagði hug­rekki Obama mikið í að ná þessu í gegn. „Þetta mun hjálpa mikið til þegar kemur að lofts­lags­ráð­stefn­unni í París,“ sagði hann. Ban Ki-Moon, aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna, tók í sama streng. „Áætlun Obama er til fyr­ir­myndar um nauð­syn­lega fram­tíð­ar­sýn sem þarf til að minnka útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda,“ sagði í yfir­lýs­ingu frá skrif­stofu aðal­rit­ar­ans.

Langur undirbúningur

Obama kynnti sýn sína á hlut­verk Banda­ríkj­anna í mót­væg­is­að­gerðum gegn hlýnun lofts­lags í ræðu í Georgetown háskól­anum í Washington fyrir tveimur árum. Þar útskýrði hann hug­myndir stjórn­valda um viða­miklar aðgerðir til að minnka losun spill­andi efna út í and­rúmslofið og und­ir­búa Banda­ríkin fyrir lofts­lags­breyt­ing­arnar.

„Áður en við getum leitt önnur lönd í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum, þurfum við að ná þeim,“ sagði Obama. Þessi reglu­gerð sem nú hefur verið und­ir­rituð er mik­il­væg fyrir for­seta­tíð Obama og verður eflaust, ef hún stenst próf dóm­stóla, álitin lyk­il­þáttur í for­seta­tíð hans. Í kosn­inga­bar­átt­unni 2008 gerði hann lofts­lags­málin að aðal­máli en á lofts­lags­ráð­stefn­unni í Kaup­manna­höfn ári síðar mistókst hins vegar að ná sátt um minnkun útblást­urs koltví­oxíðs. Hefur kröfum vest­rænna ríkja til van­þró­aðri hag­kerfa verið kennt um.

Á póli­tíska svið­inu heima fyrir hefur verk­efni rík­is­stjórnar Obama verið að sann­færa þá sem ekki telja hlýnun Jarðar vera af manna­völdum heldur nátt­úru­lega þróun. Í ræð­unni í Georgetown eyddi for­set­inn til dæmis tölu­verðum tíma í að rekja rök fyrir því hvers vegna hlýn­unin ætti sér stað vegna áhrifa mann­kyns.

Línurnar lagðar fyrir loftslagsráðstefnu í París

Stjórn Barack Obama hefur und­an­farið tekið mik­il­væg skref til að koma sér í væna samn­ing­stöðu á loft­lags­ráð­stefn­unni í París í des­em­ber. Í

nóv­em­ber í fyrra und­ir­rit­uðu Banda­ríkin og Kína

sam­komu­lag um að minnka útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda út í and­rúms­loftið. Obama sagði það skref hafa verið mik­il­vægt vegna þess gríð­ar­lega fjölda fólks sem býr í Kína og hversu ótrú­lega hratt hag­kerfið þar er að þró­ast.

„Að setja þeim mark­mið sendir kröftug skila­boð til heims­ins um að öll ríki, þróuð eða van­þróuð, verða að kom­ast yfir gamlan ágrein­ing, horfa blákalt á vís­indin og kom­ast að góðu sam­komu­lagi um lofts­lags­mál á næsta ári. Ef Kína og Banda­ríkin geta kom­ist að sam­komu­lagi um þetta þá getur heim­ur­inn það líka, við getum klárað þetta og það er mik­il­vægt að við klárum þetta,“ sagði Obama í ræðu í Ástralíu síðar í sömu viku.

Miklar vonir eru bundnar við lofts­lags­ráð­stefn­una í París en þar er mark­miðið að búa til laga­lega bind­andi þver­þjóð­legt sam­komu­lag um lofts­lags­málin. Und­ir­bún­ingur fyrir ráð­stefn­una hefur staðið und­an­farin ár, ekki síst með stefnu­mótun ein­stakra þjóða í orku­málum.

Nýverið til­kynntu íslensk stjórn­völd mark­mið lands­ins í lofts­lags­málum til árs­ins 2030. Íslensk stjórn­völd munu leit­ast við að ná sam­eig­in­legu mark­miði með Evr­ópu­sam­bands­ríkj­unum og Noregi um 40 pró­sent minnkun los­unar koltví­oxíðs sé miðað við árið 1990.

Á ráð­stefn­unni í París verður meiri krafa gerð til þró­aðra ríkja en þró­un­ar­ríkja, að því er segir í frétta­til­kynn­ingu umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins síðan í júní. Þar segir einnig af aðferð­inni sem freist­ast verður til að nota. Ólíkt því þegar Kýótó-sam­komu­lagið var gert, þegar samið var um los­un­ar­mark hvers ríkis, er hverju ríki ætlað að setja sér eigin mark­mið til árs­ins 2030.

Banda­ríkin skil­uðu lofts­lags­mark­miðum sínum í mars en þar er gert ráð fyrir að lofts­lags­mengun Banda­ríkj­anna verði minnkuð um 26 til 28 pró­sent árið 2025, miðað við árið 2005. Regl­urnar sem Obama und­ir­rit­aði á mánu­dag eru mik­il­vægur liður í stefnu­mótun stjórn­valda vest­an­hafs í loft­lags­málum. Auk þess telja frétta­skýrendur að þetta útspil Obama sé mik­il­vægt til að liðka fyrir sam­komu­lagi á lofts­lags­þing­inu. Banda­ríkin séu nú í góðri samn­ings­stöðu gagn­vart öðrum ríkjum.

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Rafmagn í Banda­ríkj­unum er víða fram­leitt með brennslu jarð­efna eins og kola. Með nýjum reglum Obama er hvati fyrir ríki til að hverfa frá slíkum raf­orku­verum og yfir í end­ur­nýj­an­lega orku.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár