Lög gegn hatursumræðu og kynþáttafordómum á netinu í Frakkland

Eftir árás­irnar á Charlie Hebdo ítrek­uðu stjórn­völd í Frakk­landi að nú væri mik­il­væg­asta verk­efnið að styrkja eina helstu stoð lýð­veld­is­ins: tján­ing­ar­frelsið. Allir yrðu að geta tjáð sig, hver með sínum hætti - jafn­vel yrði að verja rétt fólks til þess að móðga fólk og særa. Opin og gagn­rýnin umræða væri grund­völlur lýð­ræð­is­sam­fé­lags. En á sama tíma eru frönsk yfir­völd með í und­ir­bún­ingi ný lög og átak gegn hat­ursum­ræðu og kyn­þátt­þátta­for­dómum á net­inu. Með því er hægt að loka ákveðnum vef­síðum sem þykja hat­urs­fullar og sær­andi. Hvernig getur þetta tvennt farið saman? Aukið eft­ir­lit sam­hliða auknu mál­frelsi?

Dóms­mála­ráð­herra Frakk­lands, Christine Taubira, fer fyrir þessu átaki. Hún segir kyn­þátta­hatur fara ört vax­andi í land­inu og Evrópu allri, sér­stak­lega gegn gyð­ingum og múslimum, og við því verði að bregð­ast. Aukið eft­ir­lit yfir­valda með hat­ursum­ræðu á net­inu verði fram­kvæmt á svip­aðan hátt og eft­ir­lit með barnaklámi. Fólk verði þefað uppi og því refsað.

[caption id="attachment_21572" align="alignnone" width="844"] Christiane Taubira fer fyrir átak­inu gegn hat­ursum­ræð­unni á net­inu. Hún er afar umdeild í Frakk­landi en ötul bar­áttu­kona fyrir mann­rétt­indum.[/caption]

Glæpur og refsing


Netið er sýnd­ar­heimur. Eru þá ill­virki í slíkum heimi aðeins sýnd­ar­glæpir eða sýnd­arill­virki? Netið er orðið helsti grunn­þáttur sam­fé­lags­ins. Þar fara fram flest okkar sam­skipti, við­skipti, fréttir, umræður; þar kvikna ástir, þar geysa stríð. Netið er eitt risa­stórt þjóð­ar­torg og heims­völlur. Taubira, dóms­mála­ráð­herra Frakk­lands, sagði nýlega að sömu lög ættu að gilda á net­inu og ann­ars staðar, og ef ofbeldi er bannað í raun­heimi gildir það líka á net­inu. Framundan væri mis­kunn­ar­laus bar­átta yfir­valda gegn gyð­inga­hatri og öðrum kyn­þátta­for­dómum.

Christiane Taubira
Christiane Taubira

Mörgum brá í brún við þess­ari yfir­lýs­ingu. Stríðs­yf­ir­lýs­ing gegn ákveð­inni umræðu á net­inu þykir brjóta í bága við almennar hug­myndir um óskorað mál­frelsi – sem hamrað hefur verið á síð­ast­liðin miss­eri. Má móðga múslima og birta myndir af Múhameð spá­manni, en á sama tíma ekki gera grín að hel­för­inni? Margir ótt­ast ný lög sem leyfa eitt og banna annað og saka stjórn­völd um að þvinga fram ný lög í miklu umróti eftir morðin á rit­stjórn Charlie Hebdo.

Átök í frönsku samfélagi


Frakk­land er mesta fjöl­menn­ing­ar­land Evrópu. Hér búa flestir gyð­ingar og múslimar. Hvergi í Evrópu búa fleiri inn­flytj­endur. Það er ekki sjálf­gefið að slíkt sam­fé­lag virki. Það kostar mikla vinnu og þrek að byggja upp slíkt sam­fé­lag og láta það ganga án árekstra. En fyrir vikið verður til kröft­ugt, lit­skrúð­ugt og jafn­vel hag­kvæmara sam­fé­lag; stórt og mik­il­vægt mark­aðs- og menn­ing­ar­svæði; skemmti­legur sam­komu­staður með mag­vís­legum áhrifum sem dregur til sín við­skipti, listir, vís­indi – og ferða­menn. Stærstu, mik­il­væg­ustu og rík­ustu borgir heims: París, London, Istanbúl, Hong Kong, New York og fleiri eru einmitt dæmi um slík sam­fé­lög.

[quote font="0" align="right"]Á net­inu og á sam­fé­lags­miðl­inum hefur geisað hat­ursum­ræða og hat­urs­fullir ísla­mistar reynt í gegnum sam­fé­lags­miðla og ýmsar lok­aðar síður að lokka til sín ráð­villt ungt fólk.[/quote]

Í marg­breyti­leik­anum verður alltaf nún­ingur milli þjóð­fé­lags­hópa en meðan allt er í sátt getur hann jafn­framt hreyfi­afl þess og helsti kostur. Hins vegar er mjög auð­velt að brjóta sam­stöð­una niður og etja hópum saman. Það hefur því miður verið að ger­ast í Frakk­landi og víða ann­ars staðar und­an­farin ár. Vegna átak­anna fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs hefur vaxið upp spenna sumra araba gegn gyð­ingum. Í mót­mælum gegn stríð­inu á Gaza síð­ast­liðið sumar var til að mynda ráð­ist á bæna­hús og versl­anir gyð­inga í París. Margir gyð­ingar segj­ast upp­lifa aukið óör­yggi, vax­andi hatur og hafa jafn­vel íhugað að flytj­ast búferlum til Ísraels. Á sama tíma hafa múslimar kvartað undan ofsóknum og for­dómum.

Á net­inu og á sam­fé­lags­miðl­inum hefur geisað hat­ursum­ræða og hat­urs­fullir ísla­mistar reynt í gegnum sam­fé­lags­miðla og ýmsar lok­aðar síður að lokka til sín ráð­villt ungt fólk. Þessi stig­vax­andi spenna hefur síðan verið að brjót­ast upp á yfir­borðið með óeirðum og ofbeldi á báða bóga.

Netið og förukonurnar


Átak yfir­valda gegn hat­ursum­ræð­unni hefur vakið upp ýmsar spurn­ingar: Verður mál­frelsið skert? Er þetta yfir­höfuð hægt? Ná lög yfir­leitt utan um slíkt? Stjórn­völd segj­ast vilja lægja öld­urnar í sam­fé­lag­inu. Minnka hat­rið og draga úr ofbeldi og for­dómum. Þess vegna sé brýnt að koma á reglum á net­inu þar sem sam­tal sam­fé­lags­ins fer að stórum hluta fram. Þegar franskir borg­arar eru farnir víg­bú­ast og myrða sam­landa sína eins og gerð­ist í árásinni á Charlie Hebdo – verði yfir­völd og allt sam­fé­lagið að bregð­ast við. Það þurfi að reyna að upp­ræta hat­rið og ráð­ast að upp­tökum umræð­unnar — á net­inu.

[caption id="attachment_21575" align="alignnone" width="840"] Fórn­ar­lamba hryðju­verka­árásanna minnst. Franska þingið þarf að takast á við það flókna verk­efni að efla mál­frelsi en hefta hat­ursum­ræðu.[/caption]

Fórnarlamba hryðjuverkaárásanna minnst. Franska þingið þarf að takast á við það flókna verkefni að efla málfrelsi en hefta hatursumræðu.
Fórn­ar­lamba hryðju­verka­árásanna minnst. Franska þingið þarf að takast á við það flókna verk­efni að efla mál­frelsi en hefta hat­ursum­ræðu.

Þegar Hall­gerður Langbrók upp­nefndi Njáls­syni tað­skegg­linga bár­ust tíð­indin að Ber­þórs­hvoli með föru­konum sem flökk­uðum um sveitir og fluttu tíð­indi. Þessi rógur varð upp­hafið að ofbeld­is­verkum og víga­ferlum sem end­uðu um síðir í brenn­unni frægu. Eins og svo oft á þjóð­veld­is­öld, og sem greint er frá í Íslend­inga­sögum, er upp­haf átaka oftar en ekki ill­mælgi, móðg­anir eða hat­ursum­ræða sem erfitt var að sækja refs­ingu fyrir sam­kvæmt lögum. Þá var gripið til víga­ferla. Föru­kon­urnar voru sam­fé­lags­miðlar síns tíma; þær báru tíð­indin á milli fólks og bæja án þess að bera sér­staka ábyrgð á þeim.

Þeir sem vilja koma böndum á netið segja hat­ursum­ræð­una þar vera ávísun á átök og ofbeldi. En eins og í Njálu er erfitt að koma lögum yfir slíkt athæfi; það er flókið og vara­samt að fjalla um meið­yrði, þá eins og nú, og sú hætta alltaf fyrir hendi að í slíkri óreiðu taki fólk lögin í sínar hendur.

Og svo kom Charlie Hebdo árásin…


Blóð­baðið í byrjun árs minnti fólk á að ekki væri allt með felldu í Frakk­landi. Þetta grimmd­ar­verk íslam-fas­ist­anna (eins og þeir eru nú kall­aðir) virð­ist ætla verða vatn á myllu ýmissa öfga­hópa. Síðan hefur verið ráð­ist á moskur og múslimum ógnað. Í jan­úar var til­kynnt um 199 árásir í garð múslima, sem er meira en á öllu síð­asta ári. Á sama tíma hefur gyð­ingum verið hótað og í síð­ustu viku voru 250 leg­steinar gyð­inga van­helg­aðir í Austur-Frakk­landi. Í flestum til­vikum er þetta ungt fólk sem frönsk yfir­völd vilja reyna hemja og temja með aðhaldi og eft­ir­liti á Netinu sem gæti samt reynst þrautin þyngri.

Simon Wiesenthal-stofn­unin sem rann­sakað hefur hel­för­ina, nas­ista, hægri öfga­menn og hat­urs­glæpi segir að gyð­inga­hatur hafa farið vax­andi síð­ast­liðin tutt­ugu ár. Með til­komu sam­fé­lags­miðla á borð við Facebook og Twitter hafi hat­rið fengið útrás og hafi náð hámarki á þessu ári.

Er hægt að banna hatursumræðu?


Margt er nú þegar bannað með lögum á net­inu. Barnaklám, eit­ur­lyfja­sala, heima­síður og tengsla­net barn­a­níð­inga hafa verið upp­rætt – hvers vegna þá ekki hat­urs­síður þar sem ráð­ist er sér­stak­lega á ákveðna hópa? - spyrja frönsk stjórn­völd. Mál­frelsi fylgir ábyrgð og það eru alltaf ákveðin tak­mörk í öllum frjálsum ríkjum á því hvað má segja og hvað ekki. Frönsk yfir­völd segja nýju reglu­gerð­ina vernda grund­vall­ar­rétt­indi borg­arar­anna og hún muni á engan hátt skerða eðli­legt tján­inga­frelsi.

[quote font="0" align="right"]Frönsk stjórn­völd segj­ast vera full með­vituð um ann­marka og vand­kvæði við gerð slíkrar reglu­gerðar en láta það samt ekki stoppa sig og hvetja um leið önnur Evr­ópu­ríki til þess að fylgja for­dæmi sínu.[/quote]

Gagn­rýnendur benda hins vegar að með þessu sé verið að feta vafa­saman slóð. Þau ríki sem helst hafa beitt sér fyrir slíkum reglu­gerðum eru síst þekkt fyrir mál­frelsi og lýð­rétt­indi. Samtökin „No Hate Speech Movement“ sem berst gegn hat­ursum­ræðu á Netinu og er fjár­mögnuð af Evr­ópu­ráð­inu segir slíkt nán­ast ógjörn­ing og í raun til­gangs­laust. Erfitt sé að koma böndum á það sem ger­ist á Netinu í krafti nafn­leyndar og þar sem engin landa­mæri gildi.

Frönsk stjórn­völd segj­ast vera full með­vituð um ann­marka og vand­kvæði við gerð slíkrar reglu­gerðar en láta það samt ekki stoppa sig og hvetja um leið önnur Evr­ópu­ríki til þess að fylgja for­dæmi sínu. Það verði að taka á vax­andi ofbeldi og kyn­þátta­hatri í álf­unni og það verði ekki gert nema með sam­eig­in­legu átaki. Franskir ráða­menn áttu fund hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum með ýmsum sér­fræð­ingum og ráða­mönnum Evrópu í lok jan­úar og ræddu aðgerðir til þess að sporna við hat­ursum­ræðu og kyn­þátt­ta­for­dómum á sam­fé­lags­miðlum. Í síð­ustu viku fór franski inn­an­rík­is­ráð­herr­ann, Bernard Cazeneuve, í sér­staka ferð í Síli­kondalin í Kali­forníu til þess að ráð­færa sig við helstu sér­fræð­inga hjá Facebook, Apple, Twitter og Google.

Ekki er enn ljóst hvers konar aðgerðir þetta bein­línis verða. Opnaður verður vefur þar sem hægt verður að til­kynna til lög­reglu grun­sam­legar og hat­urs­fullar síður, ekki síst ef grunur leikur á um hryðju­verka­starf­semi. For­eldrar hafa verið hvattir til þessa að upp­lýsa börn og ung­linga og ræða við þau alvar­lega um ábyrgð og hættur á net­inu.

Nú er spurn­ing hvort skerða verði frelsið til að við­halda jafn­rétti og bræðra­lagi?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár