Guðrún Hafsteinsdóttir leiðir Sjálfstæðisflokkinn í Suðurkjördæmi

Fyrr­ver­andi for­maður Samtaka iðn­að­ar­ins keyrði tæpa 6.000 kíló­metra í próf­kjörs­bar­áttu og leiðir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Suð­ur­kjör­dæmi í næstu kosn­ingum. Þing­menn­irnir Vil­hjálmur Árnason og Ásmundur Frið­riks­son urðu í 2. og 3. sæti í próf­kjöri flokks­ins.

Guðrún Hafsteinsdóttir mun leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi til kosninga í haust.
Guðrún Haf­steins­dóttir mun leiða lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi til kosn­inga í haust. Mynd: Samtök iðnaðarins

Guðrún Haf­steins­dóttir, mark­aðs­stjóri Kjöríss og fyrr­ver­andi for­maður Samtaka iðn­að­ar­ins, verður næsti odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi. Hún hafði betur gegn Vil­hjálmi Árnasyni þing­manni flokks­ins í slagnum um odd­vita­sætið í kjör­dæm­inu, en próf­kjör flokks­ins fór fram á laug­ar­dag og lágu loka­tölur ekki fyrir fyrr en um kl. 3 aðfara­nótt sunnu­dags.

Vil­hjálmur hlaut annað sætið í próf­kjör­inu og í því þriðja varð þing­mað­ur­inn Ásmundur Frið­riks­son. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á í dag þrjá þing­menn í kjör­dæm­inu, en Páll Magn­ús­son, sem leiddi flokk­inn til kosn­inga árið 2016 og 2017, ákvað að gefa ekki kost á sér til end­ur­kjörs.

Suð­ur­kjör­dæmi, sem hefur stundum verið kallað „bibl­íu­beltið“ vegna þess fjölda karla sem rað­ast hafa í efstu sætin á listum flokk­anna í kjör­dæm­inu í und­an­förnum kosn­ingum, mun nú að lík­indum eiga fyrsta þing­mann sem er kona, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk rúman fjórð­ung atkvæða í kjör­dæm­inu í kosn­ing­unum árið 2017.

Skilur Ásmund

Suð­ur­kjör­dæmi er stórt. Nýi odd­vit­inn Guðrún sagði við fylgj­endur sína á Facebook á laug­ar­dag að hún væri búin að öðl­ast „djúpan skiln­ing“ á því af hverju Ásmundur Frið­riks­son keyrði mikið og sagð­ist sjálf hafa keyrt yfir 5.500 kíló­metra í próf­kjörs­bar­átt­unni, þegar allt væri saman tekið.

[adspot]

Alls tóku 4.647 manns þátt í því að velja full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi. Auðir og ógildir seðlar voru 114 tals­ins og gild atkvæði því 4.533.

Úrslit prófkjörsins voru svona:

  1. Guðrún Haf­steins­dóttir hlaut 2.183 atkvæði í 1. sæti.
  2. Vil­hjálmur Árnason hlaut 2.651 atkvæði í 1.-2. sæti.
  3. Ásmundur Frið­riks­son hlaut 2.278 atkvæði í 1.-3. sæti.
  4. Björgvin Jóhann­es­son hlaut 1.895 atkvæði í 1.-4. sæti.
  5. Ing­veldur Anna Sig­urð­ar­dóttir hlaut 2.843 atkvæði í 1.–5. sæti.
  6. Jarl Sig­ur­geirs­son hlaut 2.109 atkvæði í 1.-6. sæti.

Aldís Haf­steins­dóttir, bæj­ar­stjóri í Hvera­gerði og systir Guðrúnar, full­yrti á Facebook að sig­ur­inn væri í höfn löngu áður en loka­tölur bár­ust frá taln­ing­ar­mið­stöð­inni á Selfossi. Hún birti þar mynd af Guðrúnu, sem ávarp­aði stuðn­ings­menn sína kl. 2:15 og þakk­aði fyrir stuðn­ing­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár