Eigandi Arnarlax greiddi 30 milljarða fyrir laxeldisleyfi í Noregi sem Ísland gefur

Stærsti hlut­hafi lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax á Bíldudal keypti tæp­lega fjórð­ung allra nýrra lax­eld­is­leyfa sem norska ríkið gaf út í síð­ustu viku. Kaup­verðið var 30 millj­arðar króna. Ísland inn­heimtir hins vegar ekk­ert gjald fyrir leyfi Arnarlax til að fram­leiða 12 þús­und af eld­is­laxi, en þau myndu kosta 44 millj­arða í Noregi.

Stærsti eigandinn
Stærsti eig­and­inn Gustav Witzoe er stærsti hlut­hafi Salmar sem átt­aði sig frekar snemma á því að hægt var stunda góð við­skipti með íslensk lax­eld­is­fyr­ir­tæki þegar stöðugt verður dýr­ara og erf­ið­ara að kom­ast yfir ný fram­leiðslu­leyfi í Noregi.

Stærsti eig­andi lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax á Bíldudal, norski lax­eld­is­ris­inn Salmar AS, greiddi í síð­ustu viku tæp­lega 30 millj­arða íslenskra króna, 1,98 millj­arða norskra króna, fyrir ný fram­leiðslu­leyfi á eld­is­laxi í Noregi.

Kaup Salmar á leyf­unumKaup Salmar AS á leyf­unum í Noregi voru tillkynnt í síð­ustu viku.

Frá þessu greindi fyr­ir­tækið í til­kynn­ingu til Norsku kaup­hall­ar­innar í síð­ustu viku auk þess sem fjallað var um málið í norskum fjöl­miðlum. Félagið keypti þá fram­leiðslu­leyfi fyrir 8 þús­und tonn af eld­is­laxi á upp­boði hjá norska rík­inu. 

Tekið skal fram að Noregur hefur stundað lax­eldi í stórum stíl í ára­tugi og voru leyfi til lax­eldis gefin þar lengi vel. Eins og Stundin hefur fjallað voru um 97 pró­sent lax­eld­is­leyf­anna í Noregi gefin á sínum tíma. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár