Fjárfestar ættu að hugsa sér til hreyfings

Mikil tæki­færi gætu falist í vexti fyr­ir­tækja sem fram­leiða útvistar- og íþróttafatnað á næstu árum, segja sér­fræð­ingar Morgan Stanley.

Grein­endur Morgan Stanley bank­ans í Banda­ríkj­unum telja að fjár­festar geti náð góðri ávöxtun á næstu árum, ef þeir fjár­festa í fyr­ir­tækjum sem eru lík­leg til að ná árangri með sölu á útvistar- og íþróttafatn­aði (activewear). Í nýrri skýrslu frá bank­anum kemur fram, að mark­aður með slíkan fatnað gæti stækkað um 83 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 11 þús­und millj­örðum króna, á næstu þremur árum.

Heild­ar­mark­að­ur­inn er nú um 300 millj­arða Banda­ríkja­dala, en vegna mik­illar eft­ir­spurnar frá Asíu, einkum Kína, er mark­að­ur­inn að stækka mikið.

Leiðandi vöru­merki eins og Nike, Under Armour, Puma og New Balance, gætu notið góðs af þess­ari auknu eft­ir­spurn. En óvissan liggur í því hvort fjár­festar verði til­búnir að leggja þessum fyr­ir­tækjum til aukið fjár­magn til að grípa tæki­færi.

Regluleg hreyfing stækkar markaðinn

Það sem helst ýtir undir stækkun mark­aðar með útvi­starfatnað eru tvö atriði. Annars vegar aukin kaup­geta milli­stétt­ar­fólks í Asíu. Þar vegur Kína þyngst, en talið er að milli­stéttin þar í landi muni vaxa um 50 millj­ónir manna á næstu tveimur árum, og svo áfram hraðar til fram­tíðar litið. Aukin kaup­geta hjá stórum hópi mun auka mögu­leika á vexti.

Hins vegar er það síðan aukin vit­und­ar­vakn­ing hjá fólki fyrir reglu­legri hreyf­ingu. Margir kaupa sér góðan fatnað til að stunda hreyf­ingu, þó áformin um reglu­lega hreyf­ingu gangi jafn­vel ekki eftir.

Grein­endur Morgan Stanley segja að við­horfskann­anir í Kína sér­stak­lega sýni að fólk, einkum það sem hefur tölu­verða kaup­getu, sé að hugsa sér til hreyf­ings, í bók­staf­legri merk­ingu. Um 15 pró­sent fleiri hafi svarað því til að það hreyfi sig í það minnsta þrisvar í viku árið 2014 heldur en árið 2007. Þetta eru miklar stærðir, þegar heim­fært er yfir á íbúa­fjölda þar sem 20 pró­sent af íbúum jarðar býr, 1,4 millj­arðar í Kína.

Ef fyr­ir­tækjum sem fram­leiða úti­vistar- og íþróttafatnað tekst að tengja sig enn betur inn á mark­aði, þá gæti verið mikið vaxt­ar­tæki­færi í kort­unum, að mati Morgan Stanley.

Bandaríkin stærsti markaðurinn

Stærsta ein­staka mark­aðs­svæði fyrir úti­vistar- og íþróttafatnað er Banda­ríkín, en veltan á mark­aði þar í landi var 96 millj­arða Banda­ríkja­dala árið 2014. Asíu­mark­aður er svipað stór og Evrópa, eins og ótrú­legt að það hljómar, eða um 56 millj­arða Banda­ríkja­dala.

Nike er stærsta fyr­ir­tækið á þessu mark­aði, en heild­ar­tekjur þess í fyrra námu 30,6 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 3.600 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár