Ragnar Þór dregur framboð sitt til baka

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hefur hætt við fram­boð sitt til for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, er hættur við fram­boð sitt til for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands. Þetta herma heim­ildir mbl.is og RÚV. 45. þing ASÍ hófst í gær og kosn­ing í emb­ætti hefst eftir hádegi á morgun.

Ólöf Helga Adolfs­dóttir, rit­ari Eflingar, er ein í fram­boði til for­seta ASÍ.

mbl.is segir Ragnar hafa vísað í stöðu­upp­færslu Halldóru Sveins­dóttur, for­manns Bárunnar, þegar hann greindi frá ákvörðun sinni. Í færslu sinni á Facebook gagn­rýnir hún Ragnar harð­lega og spyr hvort að það að koma sterk út úr þing­inu þýði hreins­anir í ASÍ, aðra hóp­upp­sögn starfs­manna verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar?

Samkvæmt heilmildum Kjarnans hafa Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, og Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins, sem gefa kost á sér í emb­ætti 2. og 3. vara­for­seta, dregið fram­boð sín til baka. Það sama á við um Hörð Guð­brands­son, for­mann Verka­lýðs­fé­lags Grinda­víkur. Sólveig Anna sagð­ist í sam­tali við frétta­mann RÚV ekki ætla að mæta á þing ASÍ þegar því verður fram haldið á morgun.

„Ég mun að sjálf­sögðu ekki mæta og ég veit ekk­ert hvað ger­ist hér á morgun á þessu þingi,“ sagði Sólveig Anna. Ragnar Þór gaf ekki kost á við­tali.

[links]Drífa Snæ­­dal sagði af sér emb­ætti for­­seta 10. ágúst og sagði hún sam­­skipti við ýmsa kjörna full­­trúa innan sam­­bands­ins og sú blokka­­myndun sem þar hefði átt sér stað gera sér ókleift að starfa áfram sem for­­seti.

Ragnar Þór greindi frá fram­boði sínu um miðjan sept­em­ber. Í sam­tali við Kjarn­ann sagði hann að í aðdrag­and­anum hafi hann átt fundi með for­ystu­fólki úr aðild­ar­fé­lögum innan ASÍ til að kanna hvort stuðn­ingur væri við þær hug­myndir sem hann hefði um fram­­tíð sam­­bands­ins og áherslu­breyt­ingar í störfum þess næðu út fyrir þann hóp stétt­­ar­­fé­laga sem staðið hefðu „dá­­lítið þétt sam­an“ og átti hann þar við stétt­­ar­­fé­lög í Grinda­vík, Akra­­nesi og svo Efl­ingu stétt­­ar­­fé­lag.

Mót­fram­boðið kom svo í síð­ustu viku þegar Ólöf Helga til­kynnti sitt fram­boð til for­seta. Í fram­boðstil­kynn­ingu sinni sagði Ólöf Helga að Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ing­ar, vilji nú í valda­banda­lagi við Ragnar Þór Ing­ólfs­son og Vil­hjálm Birg­is­son, taka yfir ASÍ. Í gegnum hóp­upp­sagnir á skrif­stofu Efl­ingar fórn­uðu þau trú­verð­ug­leika verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og félags­fólki fyrir eigin valda­hags­muni. Óljóst er hvað þrí­eykið vill með sam­band­ið. En það hefur komið skýrt fram að þau munu ekki hafa rúm fyrir aðrar skoð­anir en sínar eigin og vilja stjórna í krafti meiri­hluta­ræð­is. Allir sem mót­mæla þeim fá yfir sig fúk­yrða­flaum – og þegar önnur sjón­ar­mið eru sett fram er þeim mætt með hót­unum og offorsi.“

Einn af möguleikunum að skilja sig frá ASÍ

Sólveig Anna fór yfir sögu ágrein­ings innan ASÍ síð­ustu fjögur ár í greina­flokki á Kjarn­anum í sumar. Þar sagði hún meðal ann­ars að áður fyrr var ASÍ bæði breyt­ing­ar­afl fyrir rétt­læti í íslensku sam­fé­lagi og mót­stöðu­afl gegn órétt­læti. „Í dag er Alþýðu­sam­band Íslands það ekki. Þvert á móti hefur sam­bandið orðið með­virkt með íslenska auð­valds­kerf­inu, sem er ótrú­legt í ljósi þess að ef ein­hver stofnun ætti að hafna þess konar með­virkni þá er það Alþýðu­sam­band­ið,“ skrifar Sólveig meðal ann­ars.

Í grein­ar­flokki sínum segir hún tvær leiðir vera færar fyrir íslenska verka­lýðs­hreyf­ingu út úr þeim vanda sem alþýðu­sam­bandið glímir við.

Ann­ars vegar sú að Alþýðu­sam­bandið horf­ist í augu við þá breyttu stöðu sem upp er kom­in, lagi sig að henni og breyti um kúrs. Farið verði í djúpa og alvar­lega vinnu við að end­ur­meta stefn­una. „Ég legg til að í þeirri vinnu verði við­ur­kennt að verk­efni íslenskrar verka­lýðs­hreyf­ingar er ekki lok­ið. Þvert á móti er raun­veru­legt og stórt verk að vinna í bar­áttu við auð­stétt­ina og sér­hags­muna­öfl­in. Skylda sam­bands­ins er að þróa og leiða þetta verk­efni, og vera óhrætt við að skora á hólm þær ýmsu stofn­anir valds­ins sem standa vörð um óbreytt ástand, sama hvort það eru líf­eyr­is­sjóð­ir, fjár­mála­kerf­ið, Sam­tök atvinnu­lífs­ins eða rík­is­stjórn­in. Þá þarf Alþýðu­sam­bandið að við­ur­kenna fyrir sjálfu sér að eina vopnið sem getur leitt til árang­urs í verka­lýðs­bar­áttu eru verk­föll eða trú­verðug hótun um beit­ingu þeirra.“

Tak­ist ASÍ ekki að breyta um kúrs er aðeins ein önnur leið fær, að mati Sól­veigar Önnu. „Hún er sú að þau félög sem vilja starfa í verka­lýðs­hreyf­ingu sem er raun­veru­legt fram­fara- og mót­stöðu­afl skilji sig frá sam­band­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsfélög

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár