Biden sagði Rússum að kenna ekki neinum öðrum en Pútín um lakari lífskjör

Joe Biden for­seti Banda­ríkj­anna hélt kraft­mikla ræðu til þess að marka lok heim­sóknar sinnar til Póllands síð­degis í dag og sagði Vladimír Pútín hrein­lega „ekki geta verið lengur við völd“. Blaða­maður Kjarnans end­aði óvænt í áhorf­enda­sk­ar­anum í Varsjá.

Joe Biden Bandaríkjaforseti flytur ræðu sína í Varsjá síðdegis í dag.
Joe Biden Banda­ríkja­for­seti flytur ræðu sína í Varsjá síð­degis í dag. Mynd: Arnar Þór

Vladimír Pútín for­seti Rúss­lands getur ekki verið lengur við völd, sagði Joe Biden for­seti Banda­ríkj­anna í ræðu frammi fyrir fjölda áheyr­enda í garði kon­ung­lega kast­al­ans í gamla bænum í Varsjá í Póllandi í kvöld. Annar eins fjöldi fylgd­ist svo með ávarpi for­set­ans á risa­skjá á torgi fyrir utan kast­al­ann.

Blaða­maður Kjarnans fékk óvænt miða inn á ávarp for­set­ans upp í hend­urnar frá starfs­manni Hvíta húss­ins, sem var að deila afgang­smiðum til almenn­ings á torg­inu eftir að fyr­ir­menni í stjórn­mála-, menn­ingar- og við­skipta­lífi Póllands höfðu gengið inn á torgið í kast­a­la­garð­inum.

Í ræð­unni, sem mark­aði enda­lok þriggja daga Evr­ópu­reisu for­set­ans, sagði Biden að Vest­ur­lönd og raunar öll lýð­ræð­is­ríki heims þyrftu að sýna still­ingu, búa sig undir löng átök og halda sam­stöðu sinni til streitu. Stríðið í Úkraínu hverf­ist um stærri bar­áttu á milli lýð­ræðis og alræðis, sagði Biden í ræðu sinni.

Getur Pútín ekki verið lengur við völd, nei?

Biden fór ófögrum orðum um Vladimír Pútín í ræð­unni, en gekk þó ekki svo langt að end­ur­taka fyrri orð sín um að Pútín væri stríðs­glæpa­maður, sem vöktu upp hörð við­brögð í Kremlin fyrr í mán­uð­inum. Hann sagði þó sem áður segir, að Pútín „gæti ekki verið lengur við völd“.

Þessi orð röt­uðu all­víða inn í fyrstu fyr­ir­sagnir frétta af ræðu for­set­ans hér í Varsjá, en banda­rískir blaða­menn hafa fengið frek­ari skýr­ingar á því frá fjöl­miðlateymi Hvíta húss­ins að orða­lagið hafi ekki átt að gefa í skyn að Biden vildi hafa frum­kvæði að því að steypa for­set­anum af stóli, heldur hefði hann ein­ungis átt við völd og áhrif for­set­ans yfir nágranna­ríkjum Rúss­lands, eins og Ashley Parker stjórn­mála­skýr­andi hjá Washington Post sagði frá á Twitter.

Hróðugur yfir hruni rússnesku rúblunnar

Biden sagði orð Pútíns þess efnis að árás á Úkraínu væri nauð­syn­leg þar sem það þyrfti að „afnas­ista­væða“ Úkraínu algjör­lega óboð­legar lygar og sagði rúss­neska for­set­ann einnig fara fram með ofboðs­legu afli og upp­lýs­inga­föls­unum til þess að svala fýsn sinni í aukin völd.

Biden lýsti sig ánægðan með mikla sam­stöðu vest­rænna ríkja og sagði að hrak­andi efna­hags­leg staða Rúss­lands vegna við­skipta­þving­ana væri Pútín einum að kenna. Virtist Biden kampa­kátur er hann tal­aði um hrun rúss­nesku rúblunnar og að það þyrfti núna um 200 rúblur til þess að kaupa einn Banda­ríkja­dal.

We’ve tur­ned the ruble into rubble, sagði hann.

Hann sagði einnig að stríðið í Úkraínu myndi aldrei enda með sigri Rúss­lands, þar sem frjálst fólk neiti því að lifa í heimi von­leysis og myrk­urs.

Einnig ávarp­aði hann íbúa Rúss­lands, og sagði að ef þau gætu heyrt í honum vildi hann færa þeim þau skila­boð að ein­ungis Pútín væri ábyrgur fyrir því að lífs­kjör þeirra myndu fara þverr­andi á næst­unni. Hann sagði líka að Rússland væri nú þegar byrjað að líða fyrir aðgerð­irnar í Rúss­landi, 200 þús­und manns hefðu þegar kosið að flytja í burtu og speki­lek­inn (e. brain drain) frá land­inu væri nú þegar orð­inn gríð­ar­legur.

[adspot]

Í ræð­unni tók hann af öll tví­mæli um að rúss­nesk árás á eina ein­ustu tommu af land­svæði NATÓ-ríkja yrði svarað af fullum krafti sam­ein­aðs Atl­ants­hafs­banda­lags. Hann sagði þá fjöl­mörgu banda­rísku her­menn sem eru í Póllandi og víðar í Evrópu hér til þess að verja NATÓ, en ekki til þess að sækja fram gegn Rúss­landi.

Faðmaði flóttamenn fyrr í dag

For­set­inn ræddi um veru sína í Póllandi und­an­farna tvo daga í ræð­unni, en í gær fór hann að landa­mærum Úkraínu og heim­sótti banda­ríska og pólska her­menn og kynnti sér mót­töku­stöðvar flótta­fólks. Í dag fór hann svo á íþrótta­leik­vang hér í Varsjá sem breytt hefur verið í tíma­bundnar flótta­manna­búðir fyrir þús­undir manna og ræddi við konur og börn sem eru á flótta frá Úkraínu.

„Þau eru að spyrja sig erf­ið­ustu spurn­ingu sem mann­vera getur spurt sjálfa sig: Guð minn góður, hvað mun verða um mig, hvað mun verða um fjöl­skyld­una mína,“ sagði Biden.

For­set­inn sagði að hann þyrfti ekki að tala sama tungu­mál og flótta­fólkið til þess að sjá hvernig þeim liði, hryggðin í augum þeirra skini í gegn.

Hann end­ur­tók síðan nýleg lof­orð sín um að Banda­ríkin myndu taka á móti 100 þús­und flótta­mönnum frá Úkraínu, en þess má geta að það er senni­lega á bil­inu einn þriðji til einn fimmti af þeim úkra­ínsku flótta­mönnum sem eru í pólsku höf­uð­borg­inni um þessar mundir.

Olli úkraínskri flóttakonu vonbrigðum

Almennt hefur ræðu Bidens í Varsjá verið nokkuð vel tekið af vest­rænum álits­gjöfum. Júlía, fer­tug flótta­kona frá Kharkív í Úkraínu, sem Kjarninn ræddi við bæði fyrir og eftir að hann flutti ræð­una, sagð­ist þó hafa orðið fyrir von­brigðum.

„Ég skildi ekki alveg allt sem hann sagði en ég heyrði hann ekki segja neitt um að loka himn­inum,“ segir Júlía, með tárin í aug­unum, en Úkra­ínu­menn hafa kallað ákaft eftir því að Atl­ants­hafs­banda­lagið verji úkra­ínskar borgir fyrir loft­árásum Rússa með því að koma á flug­banni yfir land­inu.

Það hafa vest­rænir leið­togar þó úti­lokað með öllu, enda felst í því skuld­bind­ing um að skjóta niður rúss­neskar flug­vélar yfir Úkraínu. Og eng­inn veit hvernig það gæti endað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár