ESB aðeins gefið brot af því bóluefni sem stefnt var að

ESB: 7,9 millj­ónir. Kína: 24,2 millj­ónir. Banda­ríkin: 59,8 millj­ónir. Evr­ópu­sam­bandið hefur aðeins afhent fátækum ríkjum 4 pró­sent af þeim bólu­efna­skömmtum sem til stóð að gefa á árinu.

Bóluefni flutt um flugvöll í kæliboxi.
Bóluefni flutt um flug­völl í kæli­boxi. Mynd: EPA

Evr­ópu­sam­bandið hefur dreg­ist veru­lega aftur úr bæði Kína og Banda­ríkj­unum þegar kemur að því að gefa bólu­efna­skammta til fátæk­ari ríkja. Í skjölum sem fjöl­mið­ill­inn Politico hefur undir höndum kemur fram að sam­bandið hafi aðeins gefið 7,9 millj­ónir skammta, 4 pró­sent af þeim 200 millj­ónum sem aðild­ar­ríkin hétu að veita fátæk­ari ríkjum heims­ins. Á sama tíma hafa Banda­ríkin gefið 59,8 millj­ónir skammta og Kín­verjar 24,2 millj­ónir. Skjalið sem Politico vitnar í er vinnu­skjal leið­toga­ráðs Evrópu (European Council) og er dag­sett 2. ágúst.

[adspot]

Í skjal­inu eru teknir saman kaup­samn­ingar á bólu­efnum og samn­ingar um gjafir en einnig útli­stuð þau svæði sem mik­il­væg eru fyrir ESB í póli­tísku ljósi í þeim efnum.

Í aðild­ar­ríkjum ESB búa 365 millj­ónir full­orð­inna ein­stak­linga. Löndin hafa sam­an­lagt tryggt sér um 500 millj­ónir skammta af bólu­efnum frá lyfja­fram­leið­endum og á von á að þeir verði orðnir um millj­arður í lok sept­em­ber, segir í nýlegri frétt Reuters-frétta­stof­unnar um sama mál.

[links]Þegar kemur að útflutn­ingi bólu­efna stendur ESB framar flestum og hefur flutt yfir 500 millj­ónir skammta til 51 lands, en aðal­lega rík­ari landa heims. Einnig er tekið fram í skjal­inu að sam­bandið hafi heitið 3,4 millj­örðum evra í COVAX-sam­starfið (um 500 millj­örðum íslenskra króna), alþjóð­legt sam­starf sem á að tryggja fátæk­ustu ríkjum heims bólu­efni.

Kín­verjar hafa tryggt sér kaup á 1 millj­arði skammta af bólu­efnum og hafa selt yfir 390 millj­ónir þeirra til 94 landa. Gjafa­skammt­arnir (rúm­lega 24 millj­ónir) eru því aðeins brot af heild­inni.

Af þeim tæp­lega 60 millj­ónum skömmtum sem Banda­ríkin hafa gefið til þessa hafa 37 millj­ónir farið inn í COVAX-sam­starfið. Auk þess hafa banda­rísk stjórn­völd þegar lagt til um 4 millj­arða doll­ara (490 millj­arða króna) til sam­starfs­ins, segir í frétta­skýr­ingu Politico um málið. Þar kemur einnig fram að í næstu viku standi til að gefa 20 millj­ónir skammta til við­bótar og að í heild verði þeir orðnir 500 millj­ónir fyrir lok næsta árs.

Byrjað að örva borgara ríkari landa

Í mörgum Afr­íku­ríkjum hefur aðeins í kringum 1 pró­sent íbú­anna verið bólu­settur. Á sama tíma eru mörg rík­ari lönd, m.a. Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmin, Þýska­land, Bretland, Ísrael og Ísland að byrja að gefa full­bólu­settu fólki örv­un­ar­skammta.

Sér­fræð­ingar Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar telja enn ekki nægj­an­leg gögn til staðar til að mæla með örv­un­ar­skömmtum.

„Ætlum við virki­lega að sætta okkur við 1,5 pró­sent bólu­setn­ing­ar­hlut­fall í Afríku á meðan það er þegar orðið 70 pró­sent í sumum löndum?“ spurði Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, for­stjóri WHO á fundi fyrir síð­ustu helgi. Í dag biðl­aði hann svo til auð­ug­ari ríkja um að bíða með að gefa örv­un­ar­skammta bólu­efnis þar til í lok sept­em­ber.

WHO stefnir enn að því mark­miði að hvert ríki heims verði búið að bólu­setja að minnsta kosti 10 pró­sent íbúa sinna fyrir lok sept­em­ber. „Við erum langan veg frá því að ná þessum mark­miðum,“ sagði Ghebr­eyesus og að dreif­ing bólu­efna væri enn órétt­lát. Innan við tvö pró­sent af öllum skömmtum sem hefur verið dreift í heim­inum hafa farið til Afríku. „Það ætti að vera ör á sam­visku okkar allra,“ sagði Bruce Aylward, læknir, far­alds­fræð­ingur og einn helsti ráð­gjafi for­stjóra WHO á fund­inum í síð­ustu viku.

Nóg til

Aðeins þrjú ríki heims hafa bólu­sett yfir 70 pró­sent íbúa. Ísland er eitt þeirra.

Nóg af bólu­efni er á Íslandi til að gefa þeim 50 þús­und ein­stak­lingum sem fengu Janssen-bólu­efnið örv­un­ar­skammt, segir í frétt mbl.is í dag. Þar er haft eftir Distica, fyr­ir­tæk­inu sem sér um dreif­ingu og geymslu bólu­efna hér á landi, að birgðir Íslands séu drjúgar. Á lager eru til 75.000 skammtar af Pfizer, 7.400 skammtar af Moderna, 7.200 skammtar af Janssen og 5.500 skammtar af AstraZenica. Þetta eru í heild 95.100 skammar.

Þá er einnig umtals­vert magn af bólu­efni vænt­an­legt á næstu vikum; um 33.000 skammtar af Pfizer og um 96.000 skammtar af Moderna. Það gera því sam­tals 129.000 skammta til við­bótar þeim birgðum sem þegar eru til.

Kjarninn hefur beint fyr­ir­spurn bæði til heil­brigð­is­ráðu­neytis og for­sæt­is­ráðu­neytis um hvort og þá hversu margir bólu­efna­skammtar hafi verið gefnir til fátæk­ari ríkja. Engin svör hafa enn borist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár