Samskiptin við hakkara „með vitund embættisins“

Íslenski rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur­inn fékk pgp-lykil frá hakk­ar­anum. Lög­reglan kemur mann­inum til varnar og sakar fjöl­miðla um að gefa í skyn að hann „hafi sýnt af sér óeðli­lega hátt­semi“

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fól rann­sókn­ar­lög­reglu­mann­inum Ragnari H. Ragn­ars­syni, hjá tölvu­rann­sókna- og raf­einda­deild lög­regl­unnar, að kanna verð og nota­gildi njósn­a­bún­aðar og voru sam­skipti hans við starfs­mann ítalska fyr­ir­tæk­is­ins Hacking Team liður í slíkum störfum.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá emb­ætti lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem kemur Ragnari til varnar og vísar því á bug að hann „hafi sýnt af sér óeðli­lega hátt­semi“. Telur lög­reglan að fjöl­miðlar hafi gefið slíkt í skyn um Ragnar í frétta­flutn­ingi sínum í gær. Í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar segir Gunnar Rúnar Svein­björns­son, kynn­ing­ar­full­trúi lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, að Ragnar hafi ekki farið út fyrir heim­ildir sínar og sinnt þessu verki með vit­und emb­ætt­is­ins. Þá hafi lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ekki keypt nefndan hug­búnað, hvorki af þessu fyr­ir­tæki né öðrum. 

Óljóst hver misskilningurinn var

Þegar blaða­maður hafði sam­band við Gunnar Rúnar fyrr í morgun vildi hann ekki svara spurn­ingum um málið í síma. Hins vegar tók hann fram að lög­reglan hygð­ist „leið­rétta þarna mis­skiln­ing“. Enn er óljóst í hverju sá mis­skiln­ingur er fólg­inn. 

Þegar óskað var eftir sam­tali við ein­hvern sem gæti tjáð sig fyrir hönd tölvu­rann­sókna- og raf­einda­deildar lög­regl­unnar fékk Stundin þau svör að lög­regla myndi ekki tjá sig um málið að öðru leyti en með frétta­til­kynn­ingu. Núver­andi yfir­maður deild­ar­innar er Theódór Krist­jáns­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár