Félag atvinnurekenda fær ekki fulltrúa í nefnd sem endurskoðar búvörusamninga

Félag atvinnu­rek­enda fær ekki full­trúa í sam­ráðs­hópi um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga, þvert á það sem for­maður atvinnu­vega­nefndar þings­ins hafði boðað. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Félagi Atvinnu­rek­enda, en fram­kvæmda­stjóri þess, Ólafur Steph­en­sen, hefur sent Gunnari Braga Sveins­syni sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra bréf þar sem þess er óskað að þetta verði end­ur­skoðað.

Lög­bund­inn frestur til að skipa hóp­inn rann út á þriðju­dag, en ekki var búið að því þá. Félag atvinnu­rek­enda benti á þetta.. Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, sagð­ist þá í sam­tali við Kjarn­ann gera ráð fyrir því að málið yrði klárað í vik­unni. Ástæða seink­un­ar­innar sé sú að búið hafi verið að finna for­mann sem svo hafi gengið úr skaft­in­u.

Í dag var svo til­kynnt að búið væri að skipa for­mann og óska eftir til­nefn­ingum ASÍ/BSRB, Bænda­sam­tak­anna, Neyt­enda­sam­tak­anna, Samtaka afurða­stöðva og Samtaka atvinnu­lífs­ins um full­trúa í hóp­inn. Bænda­sam­tökin fá tvo full­trúa.

Félag atvinnu­rek­enda segir að verið sé að halda félag­inu fyrir utan starfs­hóp­inn, þrátt fyrir að hafa verið leið­andi afl í allri umræðu um aukið frelsi á sviði land­bún­að­ar­mála. Samkvæmt búvöru­lög­unum sé félagið líka lög­bund­inn umsagn­ar­að­ili. „Það liggur því fyrir að allir lög­bundnir umsagn­ar­að­ilar sam­kvæmt búvöru­lögum munu eiga sæti í starfs­hópnum, nema Félag atvinnu­rek­enda.“

„Sú ákvörðun ráð­herra að halda mik­il­vægum hags­muna­að­ila þannig utan við sam­ráð, sem átti að stuðla að því að sem flest sjón­ar­mið yrðu leidd saman, getur ekki talizt góð stjórn­sýsla. FA vekur enn­fremur athygli á því að eins og starfs­hóp­ur­inn verður skip­aður að til­lögu ráð­herra munu ríkið og land­bún­að­ur­inn eiga meiri­hluta í honum. Sú gagn­rýni, sem sett var fram af hálfu FA og margra ann­arra hags­muna­sam­taka – og meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar tók mark á – var einmitt að ekki gengi að ríkið og land­bún­að­ur­inn vél­uðu ein um mál sem varð­aði jafn­mikla fjár­muni og jafn­víð­tæka hags­muni. Í þessu ljósi fer Félag atvinnu­rek­enda fram á það við ráð­herra að hann end­ur­skoði ákvörðun sína um skipan starfs­hóps­ins.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár