Starfandi fólki í fjölmiðlum á Íslandi hefur fækkað um helming á tveimur árum

Nýjar tölur frá Hagstofu Íslands sýna að starf­andi fjöl­miðla­fólki hefur fækkað gríð­ar­lega hratt á þessu kjör­tíma­bili. Frá árinu 2018 og til síð­ustu ára­mót fækk­aði þeim sem störf­uðu í fjöl­miðlum um 731.

Samhliða því að þeim sem starfa í fjölmiðlum fækkar hefur launasumma geirans dregist verulega saman.
Samhliða því að þeim sem starfa í fjöl­miðlum fækkar hefur launa­summa geirans dreg­ist veru­lega saman. Mynd: Bára Huld Beck

Árið 2013 störf­uðu 2.238 manns í fjöl­miðlun á Íslandi. Í fyrra voru þeir tæp­lega 876 tals­ins. Fækkunin hefur ágerst hratt á síð­ustu árum. Frá árinu 2018 og fram að síð­ustu ára­mótum fækk­aði starf­andi fólki í fjöl­miðlum 45 pró­sent, eða 731 manns.

Þetta kemur fram í nýbirtum Menn­ing­ar­vísum Hagstofu Íslands. Tekið er sér­stak­lega fram að starf­andi telj­ist þeir sem starfa í aðal- og auka­starfi í grein­inni en að þekja sjálf­stætt starf­andi sé ekki full­komin í töl­unum.

Samhliða fækkun starfs­manna fjöl­miðla hefur launa­summa, árleg summa stað­greiðslu­skyldra launa­greiðslna launa­fólks, einnig dreg­ist saman meðal rekstr­ar­að­ila í fjöl­miðlun. Árið 2018 var launa­summan 8,1 millj­arður króna. Í fyrra var hún hins vegar komin niður í 5,3 millj­arða króna og hafði því dreg­ist saman um 35 pró­sent á tveimur árum.

Mikil umræða en litlar aðgerðir

Bág rekstr­ar­staða fjöl­miðla hefur verið til umræðu hér­lendis árum saman. Árið 2016 var skipuð nefnd til að fjalla um vand­ann, svo var rituð skýrsla sem skilað var rúmum tveimur árum síðar með sjö til­lögum til úrbóta, þá var unnið úr til­lögum hennar og loks smíðuð frum­vörp.

[adspot]Einungis ein þeirra til­lagna, styrkja­kerfið fyrir einka­rekna fjöl­miðla þar sem 400 millj­ónum króna er útdeilt til þeirra, hefur náð í gegn. Ekkert hefur verið gert með til­lögur um að breyta stöðu RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði, lækka virð­is­auka­skatt á tekjur þeirra enn frekar, heim­ila aug­lýs­ingar sem hafa verið bann­aðar hér­lendis en eru leyfi­legar í flestum öðrum löndum. Þá lagði nefndin til að settar yrðu skýrar reglur um gagn­sæi í aug­lýs­inga­kaupum hins opin­bera þannig að opin­berum aðilum beri að birta sund­ur­lið­aðar upp­lýs­ingar um kaup á aug­lýs­ingum.

Til við­bótar við ofan­greint hefur það haft mikil áhrif á rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla að aug­lýs­inga­tekjur hafa flætt frá hefð­bundnum íslenskum miðlum til alþjóð­legra sam­fé­lags­miðla- og net­fyr­ir­tækja sem greiða ekki skatta af þeim tekjum hér­lendis.

Styrkja­frum­varpið svo­kall­aða var sam­þykkt í síð­asta mán­uði og úrræðið gildir í tvö ár. Þær breyt­ingar voru gerðar á frum­varp­inu í með­förum þing­manna að upp­hæðin sem hvert fjöl­miðla­fyr­ir­tæki getur fengið var tvö­földuð, úr 50 í 100 millj­ónir króna, án þess að heild­ar­upp­hæðin sem er til úthlut­unar hafi hækkað sam­hliða. Fyrir vikið færð­ust yfir 100 millj­ónir króna frá yfir 20 minni fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum til þriggja fjöl­miðla­fyr­ir­tækja: Árvakurs, Sýnar og Torgs, sem gefur út Frétta­blaðið. Þessi þrjú fyr­ir­tæki fá tvær af hverjum þremur krónum sem úthlutað er.

Fjölmiðlafrelsi á Íslandi dregst hratt saman

Stuðn­ingur við rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla er umtals­verður á hinum Norð­ur­lönd­unum.

[links]Í vísi­tölu sam­tak­anna Blaða­manna án landamæra raða þau sér í efstu sætin yfir þau lönd þar sem ríkir mest fjöl­miðla­frelsi. Noregur er í fyrsta sæti, Finn­land er í öðru sæti, Dan­mörk í þriðja sæti og Sví­þjóð í fjórða sæti.

Ísland situr hins vegar í 16. sæti á lista sam­tak­anna og féll um eitt sæti á milli ára.

Mestur er stuðn­ing­ur­inn í Noregi, því landi þar sem fjöl­miðla­frelsi mælist mest í heim­inum. Þar er enn fremur vilji til að auka við opin­bera styrki frekar en að draga úr þeim enda hefur reynslan af þeim verið jákvæð. Hinn 7. mars 2017 skil­aði nefnd sem skipuð var af norskum stjórn­völdum hvít­bók sem inni­hélt til­lögur til að efla fjöl­miðla þar í landi. Meðal þeirra til­lagna sem settar voru fram í hvít­bók­inni var að auka styrk­veit­ingar til smærri fjöl­miðla, ein­falda umsókn­ar­ferlið og gæta jafn­ræðis milli fjöl­miðla óháð því hvernig efni er miðlað.

Til­lög­urnar eru enn til með­ferðar hjá norskum stjórn­völdum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár