Snjóhús lausn á húsnæðisskorti?

Bretar eru þekktir fyrir áhuga sinn á háðsá­deilum í formi frétta og mynda­sagna. Eftir sjald­gæfa snjó­komu í Lundúnum í byrjun vik­unnar birti grín­vef­ur­inn the Daily Mash frétt þess efnis að margir íbúar borg­ar­innar von­uð­ust eftir nægum snjó til að byggja sér snjó­hús – það væri eina leiðin fyrir ungt fólk til að eign­ast eigið hús­næði í borg­inni. Við fyrstu sýn mætti ætla að hér væri um að ræða hreinan upp­spuna, en því miður er sann­leiks­korn í þessum spé­spegli.

Hús­næð­is­verð í stærstu borgum Bret­lands hefur hækkað gríð­ar­lega síð­asta ára­tug­inn, og hefur hækk­unin að ein­hverju leyti verið drifin áfram af fólks­fjölgun í bland við end­ur­nýjun og upp­bygg­ingu í eldri hverfum. Slík upp­bygg­ing hefur meðal ann­ars átt sér stað í tengslum við stóra við­burði á borð við sam­veld­is­leik­ana í Manchester 2002 og Ólymp­íu­leik­ana í Lundúnum árið 2012 – óum­deil­an­lega hefur þetta blásið lífi í svæði og hverfi sem áður voru í nið­ur­níðslu.

Sumir hafa dottið í lukkupottinn – aðrir sitja í súpunni


Í breskum fjöl­miðlum hefur skap­ast mikil umræða um þessa þróun og horfur á fast­eigna­mark­aði til fram­tíðar. Sú kyn­slóð sem nú fer brátt á eft­ir­laun í Bret­landi virð­ist heldur betur hafa dottið í fast­eignalukku­pott­inn. Í Lundúnum má heyra sögur af fólki sem hefur hagn­ast gríð­ar­lega á fast­eigna­kaupum með því að kaupa rétta eign á réttum tíma – þannig virkar jú mark­að­ur­inn, en rétt er að hafa í huga að oft voru þetta eignir sem sveit­ar­fé­lögin seldu úr félags­lega kerf­inu á góðum afslætti.

[caption id="attachment_19485" align="aligncenter" width="641"] Miðað við ástand fast­eigna­mark­að­ar­ins í Lundúnum er borin von fyrir flest ungt fólk að kom­ast inn á fast­eigna­mark­að­inn.[/caption]

Miðað við ástand fasteignamarkaðarins í Lundúnum er borin von fyrir flest ungt fólk að komast inn á fasteignamarkaðinn.
Miðað við ástand fast­eigna­mark­að­ar­ins í Lundúnum er borin von fyrir flest ungt fólk að kom­ast inn á fast­eigna­mark­að­inn.

Það má velta því fyrir sér hvort eðli­legt sé að á 20 árum hafi verð á þriggja svefn­her­bergja íbúð í rólegu úthverfi í norð­ur­hluta Lundúna hækkað úr 92.000 pundum (um 18,5 millj­ónum íslenskra króna á gengi dags­ins í dag) árið 1994 upp í 660.000 pund (rétt um 133 millj­ónir á sama gengi) árið 2014. Samhliða þessum hækk­unum eru mögu­leikar ungs fólks til að kaupa sér fyrstu eign orðnir tak­mark­aðir. Sér­stak­lega á þetta við um þá sem eru á með­al­launum og stendur ekki til boða aðstoð fjöl­skyldu við fjár­mögnun á útborgun. Leigu­mark­að­ur­inn er því orð­inn eini raun­hæfi kost­ur­inn fyrir stóran hóp fólks.

Leitað lausna innan sveitarfélaganna


Sveit­ar­fé­lagið Isl­ington, sem er hluti af Lundúnum, hefur kynnt nokkrar hug­myndir sem ætlað er stuðla að auknu fram­boði á ódýr­ara hús­næði. Sveit­ar­fé­lagið ætlar meðal ann­ars að setja upp leigu­miðlun sem ekki verður rekin í hagn­að­ar­skyni og er ætlað að tengja leigj­endur sem eiga rétt á húsa­leigu­bótum við leigu­sala á mark­aði. Á móti hyggst sveit­ar­fé­lagið tryggja leigu­greiðslur í ákveð­inn tíma ásamt því að tryggja að leiga sé greidd fyr­ir­fram, sem myndi því á sama tíma höfða til leigu­sala. Isl­ington ætlar einnig að stuðla að því að byggt verði meira af félags­legu hús­næði og í far­vatn­inu eru áætl­anir um að auð­velda fast­eigna­eig­endum að breyta skrif­stofu­rými í íbúð­ar­hús­næði. Sveit­ar­fé­lagið vonar því að þetta, ásamt fleiri úrræðum, muni skapa fjöl­breytt­ari mögu­leika í leigu­málum ásamt því að halda leigu­verði niðri.

Undanþága frá uppbyggingu á ódýrara húsnæði


Fjár­festum og bygg­inga­verk­tökum ber einnig skylda til að stuðla að upp­bygg­ingu á ódýr­ara hús­næði sam­hliða bygg­ingu eigin verk­efna, meðal ann­ars með því að greiða í svo­kall­aða „affor­da­ble housing“ sjóði. Frá því í des­em­ber á síð­asta ári hefur breska ríkið þó veitt und­an­þágu frá þess­ari reglu í til­fellum þró­un­ar­verk­efna þar sem eldri hús eru gerð upp. Fjallað hefur verið um að þeir sem helst hagn­ast á und­an­þágu sem þess­ari verði stórir fjár­fest­inga­sjóðir frá Abu Dhabi og Qatar sem eru umsvifa­miklir á fast­eigna­mark­aði í borg­inni. Talið er að þetta muni leiða til þess að fram­boð á ódýru hús­næði mun drag­ast saman enn frekar.

[caption id="attachment_19488" align="aligncenter" width="640"] Brýn þörf er á að ráð­ist verði í bygg­ingu ódýr­ari íbúða í London til að gera fleirum kleyft að kaupa sér þak yfir höf­uðið.[/caption]

Slæm áhrif á fjölbreytileika borgarinnar


Allt hefur þetta áhrif á ótrú­leg­ustu stöðum. Ákveðnir hlutar Lundúna eru þekktir víða um heim fyrir það að fóstra fjöl­breytta menn­ing­ar­kima sem oft hafa ekki fengið að blómstra ann­ars staðar. Hvort sem það eru hópar frá ákveðnum löndum eða menn­ing­ar­svæðum, hinsegin fólk eða ungt tón­list­ar­fólk, þá hefur borgin alltaf verið eft­ir­sókn­ar­verð fyrir þessa sér­stöðu sína. Þar er Soho hverfið gott dæmi, en síhækk­andi leigu­verð gerir það að verkum að staðir sem hafa þjónað áður­nefndum hópum eru hægt og rólega verið að fær­ast í aðra borg­ar­hluta.

Brýn þörf er á að ráðist verði í byggingu ódýrari íbúða í London til að gera fleirum kleyft að kaupa sér þak yfir höfuðið.
Brýn þörf er á að ráð­ist verði í bygg­ingu ódýr­ari íbúða í London til að gera fleirum kleyft að kaupa sér þak yfir höf­uðið.

Félags­skap­ur­inn „Save Soho“ var stofn­aður til að berj­ast gegn þess­ari þróun og heldur því fram að með end­ur­upp­bygg­ingu hverf­is­ins muni það á end­anum verða ger­sneitt af karakter. Borg­ar­stjóri Lundúna, Boris Johnson, er að vissu marki sam­mála mál­stað þeirra og í bréfi sem hann sendi sam­tök­unum tekur hann undir að „menn­ing sé DNA borg­ar­innar“. Spurn­ingin er því hvort vilji sé meðal stjórn­mála­manna að skapa hvata fyrir fast­eigna­eig­endur til að hlúa áfram að þessum fjöl­breyttu menn­ing­ar­kimum borg­ar­innar og varð­veita þannig karakter hennar.

Kisur og morgunkorn


Áður­nefnd þróun borg­ar­innar á sér þó líka margar jákvæðar hliðar. Í aust­ur­hluta borg­ar­innar – í hverfum sem áður ein­kennd­ust af hárri glæpa­tíðni og nokk­urri fátækt – er nú komið ungt fólk sem byggt hefur upp líf­lega lista­senu, litlar sér­versl­anir og kaffi­hús af ýmsum toga líkt og gerð­ist upp­haf­lega með Soho. Nú má í einu þess­ara hverfa finna allt frá fyrsta kisu­kaffi­húsi borg­ar­innar (og lík­leg­ast Evrópu) yfir í nýlegt kaffi­hús með rúm­lega 120 teg­undir af morg­un­korni á boðstólnum.

Það má því segja að ungt fólk sem býr við síhækk­andi leigu­verð og fjar­læga drauma um kaup á eigin hús­næði geti þó alla veg­ana yljað sér við til­hugs­un­ina um fjöl­breytt úrval morg­un­korns og kisur til að klappa yfir kaff­inu – þó þau þurfi lík­leg­ast að slá lán fyrir kaffi­boll­anum úr eft­ir­launa­sjóði for­eldra sinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár