Íslendingar munu geta sótt heilbrigðisþjónustu til Evrópu

Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp sem mun gera Íslend­ingum kleift að leita heil­brigð­is­þjón­ustu í öðrum ríkjum innan EES. Frum­varpið er til­skipun frá Evr­ópu­sam­band­inu og meg­in­til­gang­ur­inn er að tryggja rétt­indi sjúk­linga um heil­brigð­is­þjón­ustu yfir landa­mæri, og jafn­framt að auð­velda við­ur­kenn­ingu á lyf­seðlum sem eru gefnir út í öðrum aðild­ar­ríkjum.

Ef frum­varpið verður sam­þykkt munu sjúkra­tryggðir hér á landi geta sótt heil­brigð­is­þjón­ustu ann­ars staðar í Evrópu og fengið end­ur­greiddan kostnað við það, að því marki sem sjúkra­trygg­ingar á Íslandi greiða fyrir sam­bæri­lega þjón­ustu hér á landi. Meg­in­reglan verður sú að ekki sé gerð krafa um að sótt sé um sam­þykki fyr­ir­fram. Hvorki vel­ferð­ar­ráðu­neytið né fjár­mála­ráðu­neytið segj­ast gera ráð fyrir því að margir muni nýta sér þetta.

„Markmið til­skip­un­ar­innar er að greiða fyrir aðgengi að öruggri hágæða­heil­brigð­is­þjón­ustu yfir landa­mæri, tryggja frjálst flæði sjúk­linga innan sam­bands­ins og stuðla að sam­vinnu um heil­brigð­is­þjón­ustu á milli aðild­ar­ríkja, að teknu til­liti til vald­heim­ilda aðild­ar­ríkj­anna til að skipu­leggja og veita sína eigin heil­brigð­is­þjón­ustu,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu. Ætlunin er ekki að hvetja sjúk­linga til að leita sér með­ferða erlendis heldur aðeins að „tryggja rétt þeirra til frjálsrar farar milli aðild­ar­ríkja til að sækja sér heil­brigð­is­þjón­ustu með þeim tak­mörk­unum sem settar eru í hverju ríki fyrir sig.“

Frum­varpið tekur þó ekki til lang­tímaumönnun aldr­aðra, heima­hjúkrun eða aðstoð í þjón­ustu­í­búðum. Til­skip­unin gildir ekki heldur um líf­færa­ígræðslur eða bólu­setn­ingar gegn smit­sjúk­dómum. Þá er í frum­varp­inu skil­greint hvað telst vera alþjóð­lega við­ur­kennd lækn­is­með­ferð

Evr­ópu­dóm­stóll­inn hefur við­ur­kennt ýmis rétt­indi innan Evr­ópu­sam­bands­ins sem varða heil­birgð­is­þjón­ustu, einkum um end­ur­greiðslu fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu sem er veitt í öðru aðild­ar­ríki en því sem fólk er búsett og sjúkra­tryggt í. „Evr­ópu­dóm­stóll­inn hefur stað­fest að hvorki sér­stakt eðli heil­brigð­is­þjón­ustu né hvernig hún er skipu­lögð eða fjár­mögnuð geti orðið til þess að heil­brigð­is­þjón­usta verði und­an­þegin grund­vall­ar­regl­unni um frelsi til að veita þjón­ustu innan sam­bands­ins. Ríkjum er þó heim­ilt að tak­marka end­ur­greiðslu kostn­aðar vegna heil­brigð­is­þjón­ustu yfir landa­mæri á grund­velli almanna­hags­muna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár