Bjarni baðst lausnar fyrir ráðuneytið en þing verður ekki rofið

Bjarni Bene­dikts­son fund­aði með for­seta Íslands sem veitti ráðu­neyti Bjarna lausn. Rík­is­stjórnin starfar áfram sem starfs­stjórn.

Bjarni Benediktsson verður forsætisráðherra í starfstjórn þar til ný ríkisstjórn hefur verið mynduð.
Bjarni Bene­dikts­son verður for­sæt­is­ráð­herra í starf­stjórn þar til ný rík­is­stjórn hefur verið mynduð. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bjarni Bene­dikts­son gekk á fund for­seta Íslands í morgun og baðst lausnar fyrir sig og sitt ráðu­neyti. Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, féllst á það og óskaði eftir því að rík­is­stjórnin myndi starfa í starfs­stjórn þar til ný rík­is­stjórn verði mynduð.

[links]Bjarni óskaði ekki eftir því að Guðni myndi stað­festa þing­rof. Alþingi starfar þess vegna áfram fram að kosn­ingum. Ný rík­is­stjorn verður ekki mynduð fyrr en eftir kosn­ingar, sem Bjarni hefur lagt til að fari fram 4. nóv­em­ber næst­kom­andi. Bjarni von­ast til þess að geta samið um þá dag­setn­ingu við þing­flokka á Alþingi.

Spurður hvort honum sé stætt í rík­is­stjórn segir Bjarni að það sé venjan að ráð­herrar eru beðnir um að sitja áfram. Ráð­gjafa­ráð Við­reisnar hefur ályktað um að Viðreisn geti ekki starfað í rík­is­stjórn þar sem Bjarni og Sigríður Andersen gegna ráð­herra­emb­ætti. Bjarni seg­ist ekki sækja umboð sitt til ráð­gjafa­ráðs­ins.

„Menn verða að rísa undir þeirri skyldu að starfa áfram,“ segir Bjarni. Spurður um hvað þeir Guðni hafi rætt sagði Bjarni: „Við áttum bara mjög fínan fund, ræddum um stjórn­málin og þessa atburði sem hafa verið á und­an­förnum árum.“

Spurður hvort þetta mál hafi haft per­sónu­leg áhrif á Bjarna og fjöl­skyldu hans, þar sem faðir hans hefur verið til umfjöll­unar vegna þess að hann vott­aði með­mæli fyrir dæmdan barn­a­níð­ing. „Það getur ekk­ert mál komið upp á milli okkar feðganna, sem truflar okkar trúnað og traust,“ svar­aði Bjarni.

„Mín von­brigði eru ekki per­sónu­leg von­brigði. Ég er ekki í stjórn­málum til þess að upp­fylla per­sónu­legan metnað. Mín von­brigði eru ein­fald­lega brosnar vonir fyrir það ráðu­neyti sem ég var að skila inn umboði fyrir núna.“

Þétt dagskrá á Bessastöðum

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, tekur á móti öllum for­mönnum stjórn­mála­flokka sem eiga sæti á Alþingi í dag. Næstur for­mann­ana er Katrín Jak­obs­dóttir sem á tíma hjá for­seta klukkan 13 í dag.

  • 11:00 – Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins
  • 13:00 – Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs
  • 13:45 – Birgitta Jóns­dóttir, for­maður þing­flokks Pírata
  • 14:30 – Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins
  • 15:15 – Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar
  • 16:00 – Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar
  • 16:45 – Logi Már Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár