Uppistöðulón eins og eyðimörk

Dýrahræ liggja millj­ónum saman á víða­vangi. Eftir þriggja ára sögu­lega þurrka er alvar­leg hætta á vatns­skorti víða. Ástralía logar enn.

Vatn til landbúnaðar er á sumum svæðum af skornum skammti. Hér stendur fólk á þurrum botni uppistöðulóns í Stanthorpe í Ástralíu.
Vatn til land­bún­aðar er á sumum svæðum af skornum skammti. Hér stendur fólk á þurrum botni uppi­stöðu­lóns í Stant­horpe í Ástralíu. Mynd: EPA

Óttast er að uppi­stöðu­lón í Nýja Suður-Wales í Ástralíu þurrk­ist upp og að bæir verði þar með án vatns. Mjög lítið vatn er nú í lón­inu og ólík­legt er að úrkoma sem spáð er um helg­ina muni breyta ein­hverju þar um.

Burrendong-stíflan í Macquarie-ánni miðlar vatni til bæja og land­bún­að­ar­svæða í mið­hluta þessa fjöl­menn­asta fylkis Ástralíu. Fyrir þremur árum var vatns­bú­skap­ur­inn góður, lónið yfir­fullt, en síðan hefur tekið við mikið þurrka­tíma­bil sem hefur haft gríð­ar­legar afleið­ingar í för með sér; ham­fara­kennda skóg­ar­elda, svæð­is­bund­inn vatns­skort og mögu­lega skort á stærri svæðum ef fram heldur sem horfir.

Í bænum Cobar hefur fólk um hríð þurft að fara spar­lega með vatn, m.a. starfs­menn kola­náma sem eru margar á svæð­inu. Vatns­afls­virkjun, sem einnig nýtti vatn uppi­stöðu­lóns­ins, hefur verið stöðvuð tíma­bundið.

Til að bregð­ast við vand­anum er meðal ann­ars stefnt á að veita vatni úr Windamere-lón­inu, sem er í um 200 kíló­metra fjar­lægð, inn á það svæði þar sem vatns­skortur er mestur. Vatni yrði á beint í aðra á og þaðan í Bor­rendong-lónið.

Um helg­ina er spáð rign­ingu og munu yfir­völd taka ákvörðun í næstu viku um hvort neyð­ar­á­á­ætl­anir komi til fram­kvæmda.

Í ítar­legri frétt dag­blaðs­ins Sydney Morning Herald er rætt við sér­fræð­inga sem telja ólík­legt að úrkoma næstu daga muni nokkru skipta fyrir vatns­bú­skap uppi­stöðu­lóns­ins. „Jarð­veg­ur­inn er svo þurr í augna­blik­inu að hann virkar eins og svampur,“ hefur blaðið eftir Stuart Khan, sér­fræð­ingi við Háskól­ann í Nýja Suður-Wales. „Þegar þannig er komið þarf mjög mikla rign­ingu til.“

Uppi­stöðu­lónið við Burrendong-stífl­una er eins og eyði­mörk. Svæðið er gjör­ó­líkt því sem áður þekkt­ist, t.d. á flóða­ár­unum 1990 og 2010, er lónið varð yfir­fullt. Allt frá árinu 2016 hefur vatns­yf­ir­borðið farið lækk­andi sam­hliða for­dæma­lausum þurrkum.

Þetta hefur þegar haft áhrif á úti­vist og ferða­mennsku á þessu svæði, segir í frétt Sydney Morning Herald.

[links]Vatns­veita Nýja Suður-Wales segir að „sögu­legir“ þurrkar und­an­farin ár skýri vatns­leysið í lón­inu.

Þessir miklu þurrkar hafa haft áhrif á vatns­bú­skap á fleiri stöðum og ham­fara­eld­arnir sem nú hafa geisað mán­uðum saman og ekki sér fyrir end­ann á munu einnig hafa áhrif á fersk­vatn í Ástralíu. Aska fellur í ár og vötn og mengar þau og endar svo í haf­inu. En önnur hætta er einnig fyrir hendi. Þegar það mun loks rigna af ráði, sem gæti orðið tölu­verð bið á, gæti marg­vís­legt brak frá eld­unum skol­ast út í ár og vötn. Þetta gæti valdið mengun en líka skemmdum, t.d. á virkj­ana­mann­virkjum.

Þá er ónefnd sú stað­reynd að hálfur til einn millj­arður dýra hefur farist í eld­unum. Hræ þeirra liggja á víða­vangi og gætu mengað vatns­ból manna og ann­arra dýra.

[links]Banda­ríkja­menn höfðu lofað Áströlum aðstoð við slökkvi­starfið og ætl­uðu að senda fjórar stórar flug­vélar sem geta borið mikið vatn og dreift yfir eldana. För þeirra til Ástralíu hefur hins vegar seinkað vegna hvirf­il­bylja í Alabama þar sem vél­arnar eru og eld­fjalls sem gýs á Fil­ipps­eyjum og spillir flug­leið­inni. Áströlum hefur þegar borist aðstoð frá Singapúr, Papúa Nýju-Gíneu, Fiji og Nýja-Sjálandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár