Ljósmæður öskureiðar við heilbrigðisráðherra

Lýsa megn­ustu van­þóknun á ummælum Svan­dísar Svav­ars­dóttur. Fráleitt að rétt­læta launa­lækkun ljós­mæðra með því að þær hafi valið að vera í sér­stöku stétt­ar­fé­lagi.

Ljósmæður furðu lostnar
Ljós­mæður furðu lostnar Ljós­mæður eru hinar reið­ustu yfir ummælum Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra á Alþingi í gær. Þar hafi hún látið orð falla sem megi skilja sem svo að ljós­mæður geti sjálfum sér kennt um að þær lækki í launum að loknu námi, með þvi að velja að vera í eigin stétt­ar­fé­lagi. Mynd: Shutterstock

Ljós­mæður eru reiðar og lýsa yfir megn­ustu van­þóknun vegna ummæla Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra á Alþingi í gær. Í yfir­lýs­ingu sem Ljós­mæðra­fé­lag Íslands og Bandalag háskóla­manna sendu frá sér í morgun segir að Svandís hafi þar látið orð falla sem megi skilja sem svo „að hún telji að ljós­mæður geti sjálfum sér um kennt að þær lækki í launum við að bæta við sig námi. Þessa stöðu megi rekja til þess að ljós­mæður hafi valið að vera í sér­stöku stétt­ar­fé­lagi innan BHM. Ráð­herr­ann gaf í skyn að hags­munum ljós­mæðra yrði betur borgið ef Ljós­mæðra­fé­lag Íslands, sem var stofnað árið 1919, yrði lagt niður og ljós­mæður sæktu um aðild að Félagi íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga.“

Í yfir­lýs­ing­unni segir enn­fremur að ljós­mæður og BHM lýsi yfir undrun sinni og van­þóknun á ummæl­unum. Áslaug Íris Vals­dóttir Petty, for­maður Ljós­mæðra­fé­lags Íslands, segir í sam­tali við Stundina að ljós­mæður séu móðg­aðar vegna þess­ara orða ráð­herr­ans. „Þetta eru afskap­lega óheppi­leg ummæli og alls ekki til að liðka fyrir í kjara­deil­unni sem nú stendur. Við höfum svo sem heyrt það á að minnsta kosti einum samn­inga­fundi að við getum þá bara farið og verið hjúkr­un­ar­fræð­ingar. Þetta er svo vit­laus umræða að það nær ekki nokk­urri átt. Ljós­mæðra­fé­lagið er að verða 100 ára og var stofnað löngu áður en for­krafa um hjúkr­un­ar­fræði­nám kom til, það var ekki fyrr en árið 1982. Í mínum huga er þetta alveg glóru­laust, á að meta verð­mæti starfa út frá því í hvaða stétt­ar­fé­lagi fólk er? Svona leysir ekki nokkurn skap­aðan hlut. Það er mikil óánægja meðal ljós­mæðra vegna þessa og þessi orð ráð­herra koma okkur mjög á óvart.“

„Þetta er svo vit­laus umræða að það nær ekki nokk­urri átt“

Í yfir­lýs­ing­unni segir enn fremur að það blasi við að full­kom­lega óeðli­legt sé að ljós­mæður lækki í launum við að bæta við sig tveggja ára ströngu háskóla­námi ofan á hjúkr­un­ar­fræði­nám. „Fráleitt er að rök­styðja eða rétt­læta slíka launa­lækkun með vísan til þess að ljós­mæður hafi valið að vera í sér­stöku stétt­ar­fé­lagi innan heild­ar­sam­taka háskóla­mennt­aðra á íslenskum vinnu­mark­aði. Staðan í kjara­við­ræðum ljós­mæðra við ríkið er alfarið á ábyrgð stjórn­valda sem hafa hafnað því að koma til móts við sjálf­sagðar og eðli­legar kröfur ljós­mæðra.“

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár