Brynjar kemur fyrir í gögnunum sem áttu að fara leynt

Fyrr­ver­andi lög­reglu­maður sem var dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn þremur ungum stúlkum fékk upp­reist æru árið 2010 sam­kvæmt gögnum sem afhent voru fjöl­miðlum í kjöl­far úrskurðar úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál.

Brynjar Níelsson, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, var verj­andi lög­reglu­manns­ins fyrr­ver­andi sem fékk upp­reist æru árið 2010.

Maðurinn var dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi fyrir kyn­ferð­is­brot gegn þremur ungum stúlkum árið 2003. Hann mis­not­aði tvær þeirra á fimm ára tíma­bili, frá 11 til 16 ára ald­urs og þá þriðju þegar hún var 12 ára.

Á meðal með­mæl­enda manns­ins eru þeir Grétar Sæmunds­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn og Friðrik Smári Björg­vins­son yfir­lög­reglu­þjónn, en að því er fram kemur í frétt RÚV í dag kann­ast hvor­ugur þeirra við að hafa und­ir­ritað með­mæli vegna umsóknar um upp­reist æru. Raunar eru bréfin dag­sett áður en dómur Hæsta­réttar yfir mann­inum féll.

Minnst þrír af sjö, sem skrif­uðu undir bréf sem fylgdi umsókn fyrr­ver­andi lög­reglu­manns um upp­reist æru, vissu ekki að bréfin yrðu notuð til þess.  

Þetta kemur fram í gögnum dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins sem Stundin fékk afhent eftir að úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál komst að þeirri nið­ur­stöðu að almenn­ingur ætti rétt á upp­lýs­ing­unum, þvert á afstöðu dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins og full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd.

Sem for­maður nefnd­ar­innar fékk Brynjar gögn um upp­reist æru dæmdra manna afhent í byrjun ágúst en lagði mikla áherslu á að þau færu leynt. Stundin hefur áður greint frá því að einn af með­mæl­endum kyn­ferð­is­brota­manns­ins Roberts Downey sé vinur Brynjars til margra ára og að Brynjar hafi, sem lög­maður, átt fund með barn­a­níð­ingnum Hjalta Sig­ur­jóni Hauks­syni eftir að hann var ákærður fyrir kyn­ferð­is­brot gegn stjúp­dóttur sinni á sínum tíma. Þá upp­lýsti Stundin um að Brynjar hefði rang­lega vísað því á bug að hafa starfað fyrir sama nekt­ar­dans­stað og Robert Downey.

Í gær sagði Brynjar í við­tali við Vísi.is að hann væri mót­fall­inn því að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd rann­sak­aði emb­ætt­is­færslur for­sæt­is­ráð­herra og dóms­mála­ráð­herra í þeim málum sem leiddu til þess að rík­is­stjórnin sprakk. 

Brynjar Níelsson var skip­aður verj­andi lög­reglu­manns­ins fyrr­ver­andi á sínum tíma. Maðurinn var svo sæmdur óflekk­uðu mann­orði þann 10. maí 2010 í sam­ræmi við lög og stjórn­sýslu­venjur, að til­lögu Rögnu Árna­dóttur, þáver­andi dóms­mála- og mann­réttinda­ráð­herra.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár