Þörf á að byggja um 2.200 íbúðir á ári til að mæta eftirspurn

Íbúða­lána­sjóður vinnur að gerð lík­ans til að meta und­ir­liggj­andi þörf fyrir nýjar íbúðir. Fyrstu nið­ur­stöður benda til þess að mikil mann­fjölgun leiði til þess að skortur á nýjum íbúðum hafi verið van­met­inn.

Á tímabilinu 2000-2016 voru byggðar um 1.800 íbúðir að meðaltali á hverju ári á Íslandi. Miðað við vænta mannfjölgun þá þarf að byggja rúmlega 2.200 á ári til að mæta þörf.
Á tíma­bil­inu 2000-2016 voru byggðar um 1.800 íbúðir að með­al­tali á hverju ári á Íslandi. Miðað við vænta mann­fjölgun þá þarf að byggja rúm­lega 2.200 á ári til að mæta þörf. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fyrstu nið­ur­stöður nýs lík­ans Íbúða­lána­sjóðs, sem á að aðstoða stjórn­völd við mat á und­ir­liggj­andi þörf fyrir nýjar íbúðir, benda til þess að skortur á nýjum íbúðum hafi auk­ist frá því í byrjun síð­asta árs, meðal ann­ars vegna mik­illar mann­fjölg­unar. Alls þurfi að byggja um 2.200 íbúðir á ári til að mæta þörf. Þetta kemur fram í umsögn sjóðs­ins um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þing­manna Sam­fylk­ing­ar­innar um að rík­is­stjórnin komi að bygg­ingu fimm þús­und leigu­í­búða svo fljótt sem auðið er.

[links]Íbúð­irnar eiga að nýt­ast til þess að koma fót­unum undir leigu­markað sem er rek­inn án hagn­að­ar­sjón­ar­miða. Í grein­ar­gerð sem fylgir til­lög­unni er vitnað í áætlun Íbúða­lána­sjóðs um að til árs­loka árs­ins 2019 verði þörf fyrir níu þús­und nýjar íbúðir á land­inu öllu og rúm­lega tvö þús­und á hverju ári þar á eftir.

Byggjum 1.800 íbúðir á ári en þurfum 2.200

Í umsögn Íbúða­lána­sjóðs, sem var skilað inn 17. jan­úar, segir að Íbúða­lána­sjóður vinni nú að gerð ofan­greinds lík­ans og að end­an­legar nið­ur­stöður um þörf á nýjum íbúðum næstu tvö árin liggi ekki fyrir. Fyrstu nið­ur­stöður bendi hins vegar til þess að skort­ur­inn sé meiri en fyrri áætl­anir sjóðs­ins hafi haldið fram. Ástæðan sé meðal ann­ars mikil mann­fjölgun.

Ekki sé útlit fyrir að sú upp­bygg­ing sem spáð hafi verið á næstu tveimur árum muni duga til að mæta upp­safn­aðri þörf miðað við mann­fjölda­spá Hag­stof­unnar.

[adspot]Í umsögn­inni segir: „Eins og fram kemur í grein­ar­gerð með þeirri til­lögu sem hér er til umsagnar er það mat hag­deildar Íbúða­lána­sjóðs að byggja þurfi rúm­lega 2.000 íbúðir á ári hverju til að mæta þörf. Nánar til­tekið er það mat hag­deildar að 2.200 nýjar íbúðir þurfi á ári hverju til árs­ins 2040 til að mæta und­ir­liggj­andi þörf miðað við mann­fjölda­spá Hag­stof­unnar og breytta ald­urs­sam­setn­ingu þjóð­ar­innar. Til sam­an­burðar voru að með­al­tali byggðar um 1.800 íbúðir hér á landi á ári hverju á tíma­bil­inu 2000-2016.“

Útlendingum fjölgar hratt

Hagstofa Íslands birti nýja mann­fjölda­spá í lok októ­ber 2017. Samkvæmt henni var meðal ann­ars gert ráð fyrir því að aðfluttir íbúar verði 23.385 fleiri en brott­fluttir á tíma­bil­inu 2017-2021. Aðfluttir eru fyrst og fremst erlendir rík­is­borg­ar­ar. Í byrjun árs 2017 voru erlendir rík­is­borg­arar 30.380 hér­lend­is. Þeim mun því fjölga um 77 pró­sent á örfáum árum ef gengið er út frá því að allir aðfluttir umfram brott­flutta séu erlendir rík­is­borg­ar­ar.

Gert er ráð fyrir að aðfluttir umfram brott­flutta verði 5.119 á þessu ári í mann­fjölda­spánni. Veru­legar líkur eru á að sú tala sé van­á­ætluð í ljósi þess að raun­tölur sýna að erlendum rík­is­borg­urum fjölg­aði um 6.310 á fyrstu níu mán­uðum síð­asta árs­. Það þýðir að þeim útlend­ingum sem hingað flytja umfram þá sem flytj­ast í burtu fjölg­aði mun meira á fyrstu níu mán­uðum síð­asta árs en á öllu árinu 2016, þegar erlendum rík­is­borg­urum hér­lendis fjölg­aði um 4.090.

Sérfræðingar borgarinnar ekki sannfærðir

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, segir að þessi mikla fjölgun erlendra rík­is­borg­ara á fyrstu þremur árs­fjórð­ungum síð­asta árs veki athygli. Tölur Hag­stof­unnar sýna að fjórir af hverjum tíu erlendum rík­is­borg­urum sem sett­ust að á Íslandi á tíma­bil­inu hafi gert það í Reykja­vík. Alls hefur erlendum rík­is­borg­urum sem búa í höf­uð­borg­inni fjölgað um 5.580 á tæpum fimm árum. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2017 fjölg­aði þeim um 2.460.

Dagur segir að sú for­senda Hag­stof­unnar við end­ur­skoðun á mann­fjölda­spá, að þessi mikla hækkun muni halda áfram næstu fimm árin, sé hins vegar umdeil­an­leg. „Sér­fræð­ingar borg­ar­innar eru ekki sann­færðir um að það gangi eftir. Aðflutn­ingur fólks hefur oft­ast tengst hag­sveifl­unni náið og ef spár um heldur minni hag­vöxt gengur eftir þá má búast við að einnig muni hægja á aðflutn­ingnum. Við sláum hins vegar engu föstu í þessu efni og munum fylgj­ast vel með þró­un­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár