Fjórir af hverjum tíu nýjum útlendingum setjast að í Reykjavík

Gríð­ar­leg fjölgun hefur orðið á fjölda þeirra erlendra rík­is­borg­ara sem flust hafa til Íslands það sem af er árinu 2017. Lang­flestir þeirra hafa sest að í Reykja­vík og á Suð­ur­nesj­unum. Erlendir rík­is­borg­arar eru hins vegar sára­fáir í Garðabæ.

Hlutfall erlendra ríkisborgara er líka mismunandi eftir hverfum. Þannig eru um 30 prósent íbúa Efra-Breiðholts innflytjendur og rúmlega 22 prósent íbúa í Bakkahverfinu.
Hlutfall erlendra rík­is­borg­ara er líka mis­mun­andi eftir hverfum. Þannig eru um 30 pró­sent íbúa Efra-Breið­holts inn­flytj­endur og rúm­lega 22 pró­sent íbúa í Bakka­hverf­inu. Mynd: Samfylkingin á Flickr

Fjórir af hverjum tíu erlendum rík­is­borg­urum sem sest hafa að á Íslandi það sem af er árinu 2017 hafa gert það í Reykja­vík. Alls hefur erlendum rík­is­borg­urum sem búa í höf­uð­borg­inni fjölgað um 5.580 á tæpum fimm árum. Á þessu ári einu saman fjölg­aði þeim um 2.460. Því hefur tæp­lega helm­ingur þeirrar fjölg­unar sem orðið hefur á erlendum íbúum Reykja­víkur átt sér stað í ár.

[links]Önnur svæði eru einnig vin­sæl á meðal nýrra íbúa lands­ins sem fæðst hafa í öðrum löndum. Þannig stefnir í að hlut­fall erlendra íbúa í Reykja­nesbæ verði um eða yfir 30 pró­sent á allra næstu árum.

Svo eru það sveit­ar­fé­lögin þar sem útlend­ing­arnir eru sjald­séðir. Af stórum þétt­býl­is­kjörnum lands­ins sker Garðabær sig úr. Þar eru ein­ungis fjórir af hverjum hund­rað íbúum erlendir rík­is­borg­arar.

Þessi frétta­skýr­ing birt­ist fyrst í nóv­em­ber­út­gáfu Mannlífs.

Fjölgað um 60 prósent á fimm árum

Erlendum rík­is­borg­urum hefur fjölgað gíf­ur­lega á Íslandi á und­an­förnum árum. Sú aukn­ing hefur verið sér­stak­lega mikil í ár. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins jókst fjöldi þeirra um 6.310. Það er aukn­ing á fjölda erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi um 21 pró­sent frá því sem var um síð­ustu ára­mót. Frá 2010 til sept­em­ber­loka 2017 hafði erlendum rík­is­borg­urum fjölgað um 9.318 í 36.585, eða um 74 pró­sent.

[box]Þessi hópur nýrra íbúa lands­ins dreif­ist ekki jafnt milli sveit­ar­fé­laga á land­inu. Lang­flestir setj­ast að í höf­uð­borg­inni Reykja­vík. Í lok árs 2012 bjuggu 9.380 erlendir rík­is­borg­arar í Reykja­vík. Í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins voru þeir orðnir 14.960 tals­ins. Þeim hefur því fjölgað um 60 pró­sent á innan við fimm árum. Langmest hefur aukn­ingin verið þeim tíma sem liðin er af árinu 2017, en erlendum rík­is­borg­urum sem búa í Reykja­vík hefur fjölgað um 2.460 á þeim tíma. Það þýðir að fjórir af hverjum tíu útlend­ingum sem flytja til lands­ins það sem af er ári búa í höf­uð­borg­inni.

[adspot]Raunar er líka umtals­verður munur milli höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins ann­ars vegar og lands­byggð­ar­innar hins vegar þegar kemur að fjölgun útlend­inga. Fjöldi erlendra rík­is­borg­ara sem búa á lands­byggð­inni er nú 14.410 og hefur tvö­fald­ast frá því í byrjun árs 2011. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru útlend­ing­arnir nú 22.290 tals­ins og hefur fjölgað um 60 pró­sent á tæp­lega sjö árum.

Verða yfir 30 prósent af íbúum Suðurnesja

Utan Reykja­víkur virð­ist fjölgun erlendra rík­is­borg­ara vera lang­mest á Suð­ur­nesj­unum. Í Reykja­nesbæ, stærsta sveit­ar­fé­lagi þess svæðis, hefur fjöldi útlend­inga á meðal íbúa þre­fald­ast frá því í byrjun árs 2011 og var 3.510 í lok sept­em­ber. Þegar öll sveit­ar­fé­lögin á Suð­ur­nesj­unum eru skoðuð saman – en þau eru Reykja­nes­bær, Grinda­vík, Sand­gerði, Garður og Vogar – þá kemur í ljós að erlendum rík­is­borg­urum á svæð­inu hefur fjölgað úr 1.920 í 4.780 frá lokum árs 2010. Þá voru útlend­ingar um níu pró­sent af íbúum Suð­ur­nesja. Í dag eru þeir um 19 pró­sent þeirra.

Ástæðan er fyrst og síð­ast sú mikla aukn­ing í umsvifum sem orðið hefur á Kefla­vík­ur­flug­velli sem stað­settur er á Suð­ur­nesjum. Ferða­mönnum sem heim­sækja Íslands hefur endað fjölgað úr um 500 þús­und árið 2010 og í um 2,3 millj­ónir á þessu ári, sam­kvæmt spám.

Í nýlegri sam­an­tekt sem unnin var fyrir bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar um stöðu og horfur í sveit­ar­fé­lag­inu, var lögð fram spá um að störfum á Kefla­vík­ur­flug­velli myndi fjölga um 2.513 á næstu fjórum árum. Þau þarf að óbreyttu að manna með erlendum rík­is­borg­urum sem flytja hing­að, annað hvort einir eða með fjöl­skyldum sín­um, í ljósi þess að atvinnu­leysi hér­lendis er sára­lítið og í raun ríkir skortur á vinnu­afli.

Því má búast við að erlendum íbúum Reykja­nes­bæjar fjölgi um mörg þús­und í nán­ustu fram­tíð og verði að minnsta kosti 30 pró­sent íbúa sveit­ar­fé­lags­ins.

Garðabær sker sig úr

Það er ekki sama fjölg­unin í öllum sveit­ar­fé­lögum. Þvert á móti.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er staðan til að mynda þannig að tólf pró­sent íbúa Reykja­víkur eru erlendir rík­is­borg­arar, 9,4 pró­sent íbúa Hafn­ar­fjarðar og 8,3 pró­sent íbúa Kópavogs. Á Sel­tjarn­ar­nesi eru þeir 6,4 pró­sent íbúa og í Mos­fellsbæ ein­ungis 5,9 pró­sent.

En það sveit­ar­fé­lag höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem sker sig mest úr í þessum tölum er Garðabær. Þar búa ein­ungis 640 erlendir rík­is­borg­arar og þeir eru ein­ungis fjögur pró­sent íbúa sveit­ar­fé­lags­ins. Það þýðir að það eru 23,4 erlendir rík­is­borg­arar í Reykja­vík fyrir hvern erlendan rík­is­borg­ara í Garðabæ. Það búa tvö þús­und færri í Garðabæ en Reykja­nesbæ alls. Samt búa 2.870 fleiri erlendir rík­is­borg­arar í Reykja­nesbæ, sem er í um 40 mín­útna akst­urs­fjar­lægð frá Garðabæ, en þar.

Fjölgun erlendra rík­is­borg­ara í Garðabæ hefur verið mjög hæg. Á síð­ustu tæpu sjö árum hefur íbúum sveit­ar­fé­lags­ins fjölgað um 4.730. Af þeim eru ein­ungis 290 erlendir rík­is­borg­arar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár