Vill framlengingu á uppsagnarúrræði

For­stjóri Airport Associates von­ast til þess að ákvörðun um hertar aðgerðir á landa­mærum verði snúið við og landið opnað á ný. Hann segir ríkið geta komið til móts við fyr­ir­tæki í erf­iðri stöðu með því að lengja upp­sagnar­úr­ræðið.

Ríkið gæti komið til móts við fyr­ir­tæki í erf­iðri stöðu með því að fram­lengja launa­greiðslur fólks á upp­sagn­ar­fresti, þetta segir Sigþór Kristinn Skúlason, for­stjóri Airport Associates í sam­tali við Kjarnann.

Í vor sagði félagið upp um 130 starfs­mönnum og nýtti þá upp­sagnar­úr­ræði stjórn­valda sem felur í sér að ríkið greiði mestan hluta launa í upp­sagn­ar­fresti. Sigþór hafi talið það ábyrg­ara á sínum tíma að fara strax í upp­sagnir í stað­inn fyrir að setja starfs­fólk á hluta­bóta­leið­ina þegar óvissan um fram­tíð­ina var algjör. „Það var öll flug­um­ferð dottin niður og við sáum ekki fram á að það yrði nein flug­um­ferð í bráð. Menn voru jafn­vel að tala um margra, margra mán­aða stopp,“ segir hann.

Þegar upp­sagn­ar­frestur þessa starfs­fólks var að renna út í lok júlí hafði starf­semin tekið við sér, fjöldi véla kom og fór frá Kefla­vík­ur­flug­velli á degi hverjum og útlitið var bjart. Því var ráð­ist í end­ur­ráðn­ingar á starfs­fólki. „Það var ekk­ert sem benti til þess að stjórn­völd á þeim tíma­punkti myndu taka ákvörðun um að loka land­inu eins og nú er að ger­ast,“ segir Sigþór.

Í nákvæmlega sömu stöðu og í vor

Nú er staðan sú að lítið er á döf­inni og starfs­fólk margt hvert komið á hluta­bóta­leið­ina. „Við erum alla­vega að nýta okkur þetta úrræði rík­is­stjórn­ar­innar, við erum ekki að segja upp fólki núna því við erum að von­ast til þess að menn snúi við þess­ari ákvörðun og opni landið með ein­hverjum hætti. Við mátum stöð­una þannig að menn hlytu að opna landið aftur. Þannig að við erum ekki í neinum upp­sögnum, við erum að fara aftur í 50 pró­sent leið­ina,“ segir Sigþór.

Upp­sagnir eru auk þessi ekki fýsi­legur kostur fyrir fyr­ir­tækið, enda hefur það nú þegar notað þá þrjá mán­uði sem boðið er upp á í upp­sagnar­úr­ræð­inu fyrir starfs­fólkið sem áður hafði verið sagt upp. Sigþór væri helst til í að geta nýtt úrræðið áfram en getur það ekki. Hann seg­ist skilja að upp­haf­lega hafi úrræðið veri bundið við þrjá mán­uði, en „að sama fyr­ir­tæki lendi aftur í nákvæm­lega sömu stöðu, það er svo­lítið absúrd.“

Hann segir ríkið hæg­lega geta breytt þessu með því að lengja tíma­bilið sem upp­sagnar­úr­ræðið nær til. „Til þess að mæta þessum fyr­ir­tækjum þá væri bara hægt að lengja þessi úrræði,“ segir Sigþór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár