Þórólfur: Lögbundið þak á leiguverð óskynsamlegt

Hag­fræði­pró­fess­or­inn Þórólfur Matth­í­as­son telur mik­il­vægt að auka eft­ir­lit með verð­myndun og við­skiptum á íslenskum leigu­mark­aði sem hafi mörg ein­kenni fákeppni. Katrín Jak­obs­dóttir vill leigu­þak og Eygló Harð­ar­dóttir lætur skoða kosti og galla slíks fyr­ir­komu­lag.

Eftirlit með verð­myndun og við­skiptum á íslenskum leigu­mark­aði hefur verið lítið hingað til. Breyt­ing­arnar á mark­aðnum vegna AirBnb-væð­ing­ar­innar kalla á að þessum málum sé gef­inn meiri gaumur. 

Þetta segir Þórólfur Matth­í­as­son, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, í sam­tali við Stundina. Hann veltir fyrir sér hvort vert sé að stofna sér­staka leigu­mark­aðs­deild undir hatti Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins eða setja á fót sér­staka stofnun undir hatti Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins til að sinna rann­sóknum á leigu­mark­aðnum og eft­ir­liti með leigu­þróun.

Katrín vill leiguþak

Í síð­ustu viku skrif­aði Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, pistil í Frétta­blaðið og hvatti til þess að sett yrði þak á leigu­verð. „Stað­reyndin er sú að leigu­verð hefur hækkað mjög og öryggi leigj­enda er lítið. Margir kjósa að leigja út til skemmri tíma fyrir hærra verð. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár