Ætla sér að koma loðfílum á legg innan sex ára

Fyr­ir­tækið Colossal segir loð­fíla geta reynst vel í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum og ætla sér að búa þá til með því að blanda erfða­efni þeirra við frumur Asíufíls. Aðrir vís­inda­menn efast um ágæti verk­efn­is­ins.

Loðfílar hafa veirð útdauðir í um tíu þúsund ár.
Loðfílar hafa veirð útdauðir í um tíu þús­und ár. Mynd: EPA

Hópur vís­inda­manna og frum­kvöðla til­kynnti um það fyrr í þess­ari viku að hann ætl­aði sér að end­ur­vekja loð­fíla með hjálp erfða­tækni með það fyrir augum að loð­fíl­arnir muni flakka um freð­mýrar Síberíu. Fyrir verk­efn­inu fer fyr­ir­tækið Colossal sem nýverið tryggði sér 15 milljón dala fjár­mögnun, sem jafn­gildir tæp­lega tveimur millj­örðum króna. Vonir for­svars­manna fyr­ir­tæk­is­ins standa til þess að fjár­magnið muni gera upp­risu loð­fíls­ins mögu­lega og það innan sex ára.

Fyrir fyr­ir­tæk­inu fer Dr. George Church sem er líf­fræð­ingur við Harvard háskóla. Hann viðr­aði hug­mynd­ina fyrst opin­ber­lega í Ted fyr­ir­lestri árið 2013 en um það leyti hafði orðið mikil fram­þróun í rann­sóknum á erfða­fræði útdauðra dýra. Á þeim tíma varð í fyrsta sinn hægt að end­ur­gera gena­mengi útdauðra dýra með því að nota deo­xýrí­bósa­kjarn­sýru dýr­anna, DNA þeirra, sem fengið var úr stein­gerv­ingum. Þar með var orðið mögu­legt að skoða hvað það er í erfða­efni útdauðu dýr­anna sem greinir þau frá náskyldum dýra­teg­undum sem enn eru til staðar.

Blanda erfðaefni loðfíls í frumur Asíufíls

Á heima­síðu Colossal segir að fyr­ir­tækið ætli sér ekki bein­línis að reisa loð­fíl­inn upp frá dauðum, heldur sé mark­miðið að búa til kulda­þol­inn fíl sem er líf­fræði­leg hlið­stæða loð­fíls­ins. „Dýrið mun ganga eins og loð­fíll, líta út eins og hann og hljóma eins og hann en það sem skiptir mestu máli er að dýrið mun búa í þeim vist­kerfum sem útrým­ing loð­fíls­ins skildi eftir yfir­gefin,“ segir á vef Colossal.

Vonir vís­inda­mann­anna sem fara fyrir verk­efn­inu er að dýrið verði eins konar blend­ingur loð­fíls og Asíufíls sem mun stand­ast níst­ings­kulda freð­mýr­anna. Asíu­fíll­inn er náskyldur loð­fílum og í útrým­ing­ar­hættu. Vís­inda­menn­irnir ætla að búa til fóst­ur­vísi á til­rauna­stofu sem mun bera erfða­efni loð­fíls. Til að byrja með eru húð­frumur Asíufíls teknar og þær erfða­breyttar þannig að þær beri erfða­efni loð­fíla.

Vís­inda­menn­irnir bera saman gena­mengi loð­fíls­ins, sem eru fengin úr loð­fílum sem fund­ist hafa varð­veitt í freð­mýrum, og Asíu­fíls­ins og ætla þannig að ein­angra þá erfða­vísa loð­fíl­anna sem gera það að verkum að þeim vex feldur og þeir hafa þykkt fitu­lag sem gerir þeim kleift að búa við mik­inn kulda. Úr þessu verður til egg sem ber erfða­efni loð­fíls­ins í kjarna og ef vís­inda­mönn­unum tekst að láta það skipta sér verður til fóst­ur­vísir.

Eftir að fóst­ur­vísir­inn er til­bú­inn er næsta skref tækni­frjóvgun. Samkvæmt heima­síðu verk­efn­is­ins mun Afr­íku­fíll ganga með fóstrið sem er blend­ingur loð­fíls og Asíufíls. Afr­íku­fíll­inn varð fyrir val­inu vegna þess að sú teg­und er stærri en Asíu­fíll­inn og því tal­inn henta betur til að ganga með loð­fíla­fóstrið. Þar að auki er teg­undin ekki í útrým­ing­ar­hættu líkt og Asíu­fíll­inn. Tegundin er vissu­lega í hættu, sem er næsta þrep fyrir neðan í flokkun dýra í útrým­ing­ar­hættu.

Hafa beint sjónum sínum að „af-útrýmingu“

Samkvæmt umfjöllun New York Times hefur Dr. George Church bakkað með þá hug­mynd að láta kýr af teg­und Afr­íku­fíla gegna hlut­verki stað­göngu­mæðra í verk­efn­inu, enda þyrfti tölu­verða hjörð til þess að koma hinni nýju teg­und á legg. Því hefur önnur lausn orðið ofan á, að hrein­lega búa til eins konar til­búið leg sem verður fóðrað með legs­lím­húð sem búin verður til úr stofn­frumum. Dr. Church er bjart­sýnn á að það muni ganga eftir, þrátt fyrir að slík til­búin leg eigi sér fá for­dæmi sem eru öllu minni að gerð en þau sem munu verða notuð á með­göngu loð­fíls­ins. Með­gangan tekur um tvö ár og undir það síð­asta er þyngd fóst­urs­ins orðin hátt í 100 kíló.

Á vef­síðu Colossal er loð­fíll­inn sagður vera mik­il­vægur vernd­ari jarð­ar­innar. Þar segir að verk­efnið marki þátta­skil í af-útrým­ingu (e. de-extinction) sem fyr­ir­tækið hefur beint sjónum sínum að. Að mati Colossal sé útrým­ing dýra­teg­unda gríð­ar­stórt vanda­mál sem heim­ur­inn standi frammi fyrir og að fyr­ir­tækið ætli sér að laga það.

Það sem vakir fyrir for­svars­mönnum verk­efn­is­ins er að breyta ásýnd freð­mýr­anna með hjálp loð­fíl­anna og þar með leggja lóð á vog­ar­skál­arnar í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum. Að sögn Colossal breytt­ist umhverfi túndr­anna eftir að loð­fíl­arnir hurfu af sjón­ar­svið­inu. Mosa­vaxnir skógar og vot­lendi urðu ríkj­andi á stórum svæðum sem áður höfðu verið gresjur sem bundu kolefni. Stjórn­endur Colossal vilja meina að með því að end­ur­vekja loð­fíl­anna og koma stórum hjörðum þeirra fyrir á fyrri heim­kynnum megi snúa við þiðnun þess­ara svæða. Þeir geti til að mynda hjálpað til við það að halda jarð­vegi sífreðnum með því að ryðja skóg­ana og end­ur­heimta gresjurnar sem að sögn Colossal þiðna síður.

Aðrir vísindamenn efast um ágæti verkefnisins

Í áður­nefndri umfjöllun New York Times er vitnað til ann­arra vís­inda­manna sem efast mjög um það að Colossal tak­ist ætl­un­ar­verk sitt við að koma loð­fílum á legg. En ef af því verður standa for­svars­menn verk­efn­is­ins auk þessi frammi fyrir stórum sið­ferði­legum spurn­ingum. Spurn­ingum sem snúa meðal ann­ars að því hvort það geti talist mann­úð­legt að búa til dýr á rann­sókn­ar­stofu, dýr sem lítil þekk­ing er á. Önnur spurn­ing sem enn á eftir að svara snýr að því hvort að fyr­ir­tækið megi hrein­lega sleppa loð­fíl­unum lausum, enda sé það ófyr­ir­séð hvaða áhrif dýrin munu hafa á vist­kerfið á þeim svæðum sem yrðu að heim­kynnum þeirra.

Önnur spurn­ing, sem eflaust liggur beint við að spyrja, er sú hvort að þetta sé skil­virkasta leiðin til að end­ur­heimta túndr­urnar og tryggja sífrera í jörðu. Í umfjöllun The Guardian er vitnað í dr. Victoriu Herride, þró­un­ar­líf­fræð­ing við breska nátt­úru­minja­safnið í London en hún telur verk­efnið ekki ger­legt. „Til þess að þetta myndi ganga upp þyrfti skali verk­efn­is­ins að vera gríð­ar­legur. Við erum að tala um að það þyrfti hund­ruð þús­unda loð­fíla, með­ganga hvers og eins er um 22 mán­uðir og svo tekur þá 30 ár að verða full­vaxta,“ segir Dr. Victoria Herridge.

Svo eru aðrir vís­inda­menn sem efast um gagn­semi loð­fíl­anna til þess að vernda sífrer­ann. Gareth Phoenix, pró­fessor við Sheffi­eld háskóla, bendir á það í grein The Guardian að marg­þættar lausnir séu nauð­syn­legar til þess að stemma stigu við lofts­lags­vánni en að stíga þurfi var­lega til jarðar á heim­skauta­svæðum til þess að valda ekki skaða.

„Loðfílar eru nefndir sem lausn til þess að stöðva þiðnun sífrer­ans því þeir fella tré, traðka niður og þjappa jarð­veg­inn og ummynda lands­lag­inu í gresjur sem getur stuðlað að því að jarð­veg­ur­inn hald­ist kaldur,“ segir Gareth Phoenix. „Aftur á móti þá vitum við að í skógum á heim­skauta­svæðum gegna tré og mosi lyk­il­hlut­verki í að verja sífrer­ann svo því væri það að fjar­lægja trén og traðka niður mos­ann það síð­asta sem þú myndir vilja gera“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár