Nýskráðum fólksbifreiðum fækkar um 36 prósent milli ára

Þrátt fyrir að það dragi úr nýskrán­ingu bif­reiða hér á landi þá eru vist­vænir bílar vin­sælli en nokkru sinni fyrr.

Nýskráðum fólks­bif­reiðum fækkar á Íslandi á sama tíma og bílum knúnum áfram af vist­vænum orku­gjöfum fjölgar hlut­falls­lega mikið. Í fyrra voru um 13.700 bif­reiðar nýskráðar hér á landi og fækk­aði skrán­ingum um 36 pró­sent milli ára. Þetta kemur fram hjá hag­fræði­deild Lands­bank­ans.

Samkvæmt þeim kemur þessi mikli sam­dráttur kemur þó ekki sér­stak­lega á óvart þar sem nýskrán­ingum hafði fjölgað veru­lega á síð­ustu árum, meðal ann­ars í takt við fjölgun ferða­manna.

„Nýskrán­ingum fækkar, en þær taka einnig breyt­ingum í átt að auknu vægi vist­vænni bíla. Rúmlega 30 pró­sent allra nýskráðra bif­reiða í fyrra voru raf- eða tvinn­bílar sam­an­borið við 5 pró­sent árið 2014. Vin­sældir bíla sem eru að hluta til, eða öllu leyti, knúnir áfram af orku­gjöfum öðrum en bens­íni eða dísel hafa þannig auk­ist veru­lega á síð­ustu árum.“

Jafn­framt kemur fram að árið 2014 hafi um 480 raf- eða tvinn­bílar verið nýskráðir hér á landi. Árið 2018 hefði fjöld­inn tífald­ast en þá hafi rúm­lega 4.800 bílar verið af slíkri gerð nýskráðir. Í fyrra hafi fjöld­inn dreg­ist örlítið saman en þá hefðu nýskráðir verið 4.200 raf- og tvinn­bílar.

Samkvæmt hag­fræði­deild­inni benda fyrstu gögn varð­andi árið í ár til þess að vist­vænir bílar verði vin­sælli en nokkru sinni fyrr. Af þeim 823 fólks­bif­reiðum sem voru nýskráðar í jan­úar voru raf- eða tvinn­bílar 55 pró­sent, eða 451 tals­ins.

Stefnt að því að Ísland verði framarlega í notkun á endurnýjanlegum orkugjöfum

[links]Aðgerð­ar­á­ætlun um orku­skipti var sam­þykkt af Alþingi þann 31. maí árið 2017 en í henni var stefnt að því að auka hlut­deild inn­lendra end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa á kostnað jarð­efna­eld­neytis. Orku­skiptin eiga að leiða til orku­sparn­aðar, auk­ins orku­ör­yggis, gjald­eyr­is­sparn­aðar og minni los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

„Að því skal stefnt að Ísland verði fram­ar­lega í notkun á end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum á öllum sviðum. Heild­ar­hlut­deild end­ur­nýj­an­legrar orku í orku­bú­skap lands­ins er um 70%. Hlutfall end­ur­nýj­an­legrar orku í sam­göngum á landi er nú um 6%. Stefnt er að 10% hlut­falli end­ur­nýj­an­legrar orku í sam­göngum á landi fyrir árið 2020 og 40% árið 2030. End­ur­nýj­an­leg orka sem notuð er á inn­lendum fiski­skipum er 0,1%. Stefnt er að 10% hlut­falli fyrir haf­tengda starf­semi árið 2030,“ segir í aðgerða­á­ætl­un­inni.

1,5 millj­arðar til orku­skipta

Þrír ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­inn­ar, þau Guð­mundur Ingi Guð­brands­son­, Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dóttir og Sig­urður Ingi Jóhanns­son­, kynntu síð­asta sumar næstu skref varð­andi orku­skipti í sam­göngum á Íslandi.

Þá kom fram hjá ráð­herr­unum að hrað­hleðslu­stöðvum við þjóð­veg­inn yrði fjölgað veru­lega og blásið yrði til átaks með ferða­þjón­ust­unni til að stuðla að orku­skiptum hjá bíla­leig­um.

Í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­unum þremur kom fram að verk­efnin byggðu á til­lögum starfs­hóps sem umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra og ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra skip­uðu í byrjun síð­asta árs og var falið að móta til­lögur um aðgerðir til að hraða orku­skiptum hér á landi, í sam­ræmi við aðgerða­á­ætl­anir um lofts­lags­mál og orku­skipti.

Jafn­framt var til­kynnt um ráð­stöfun 450 millj­óna króna vegna orku­skipta í sam­göngum á árunum 2019 til 2020 en sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun er áætlað að verja 1,5 millj­arði króna til orku­skipta á fimm ára tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár