Fjölga hraðhleðslustöðvum við þjóðveginn

Þrír ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar kynntu næstu skref varð­andi orku­skipti í sam­göngum á Íslandi á blaða­manna­fundi í dag.

Blaðamannafundur 4. júní 2019
Blaða­manna­fundur 4. júní 2019 Mynd: Bára Huld Beck

Hrað­hleðslu­stöðvum við þjóð­veg­inn verður fjölgað veru­lega og blásið verður til átaks með ferða­þjón­ust­unni til að stuðla að orku­skiptum hjá bíla­leigum. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi þriggja ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar, þeirra Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur og Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, þar sem kynnt voru næstu skref varð­andi orku­skipti í sam­göngum á Íslandi.

Í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­unum þremur kemur fram að verk­efnin byggi á til­lögum starfs­hóps sem umhverfis- og auð­linda­ráð­herra og ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra skip­uðu í byrjun árs og var falið að móta til­lögur um aðgerðir til að hraða orku­skiptum hér á landi, í sam­ræmi við aðgerða­á­ætl­anir um lofts­lags­mál og orku­skipti.

Jafn­framt var til­kynnt um ráð­stöfun 450 millj­óna króna vegna orku­skipta í sam­göngum á árunum 2019 til 2020 en sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun er áætlað að verja 1,5 millj­arði króna til orku­skipta á fimm ára tíma­bili.

Formaður starfs­hóps­ins var Sigurður Ingi Frið­leifs­son, fram­kvæmda­stjóri Orku­set­urs en auk hans sátu í hópnum full­trúar úr atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­inu, sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu og fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Hópnum var ein­ungis ætlað að taka fyrir orku­skipti í sam­göngum en ekki breyttar ferða­venjur fólks og efl­ingu almenn­ings­sam­gangna en unnið er að því ann­ars staðar í stjórn­kerf­inu.

Á kynn­ing­unni kom fram að þriðj­ungur þeirrar los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda komi frá vega­sam­göngum. Stærsta ein­staka aðgerðin sem mögu­legt væri að ráð­ast í til að mæta skuld­bind­ingum Íslands sé því að draga úr þess­ari losun – með breyttum ferða­venjum og orku­skiptum í vega­sam­göngum. Raf­væð­ing fólks­bíla­flot­ans muni skila mestu í orku­skipt­unum en gert er ráð fyrir að hún geti skilað allt að 250.000 tonna árlegum sam­drætti í losun.

Kalla eftir umsóknum um fjárfestingarstyrki

Helstu aðgerðir varð­andi orku­skipti eru í þremur liðum. Í fyrsta lagi er um að ræða hindr­un­ar­lausar ferðir raf­bíla milli lands­hluta en raf­bílum fjölgar hratt hér á landi og er Ísland er nú í öðru sæti í heim­inum á eftir Noregi hvað varðar hlut­fall raf­bíla af fjölda nýskráðra bif­reiða. „Mik­il­vægt er að koma í veg fyrir að flösku­hálsar mynd­ist á fjöl­förnum stöðum og tryggja hindr­un­ar­lausar ferðir milli lands­hluta. Kallað verður eftir umsóknum um fjár­fest­ing­ar­styrki til upp­bygg­ingar hrað­hleðslu­stöðva á lyk­il­stöðum við þjóð­vegi lands­ins, með áherslu á næstu kyn­slóð hleðslu­stöðva sem bjóða upp á mun styttri hleðslu­tíma en núver­andi stöðvar gera,“ segir í til­kynn­ingu ráð­herr­anna.

Til úthlut­unar til þessa verk­efnis eru sam­tals 200 millj­ónir króna og hefur Orku­sjóði verið falið að sjá um úthlutun styrkja til átaks­verk­efn­is­ins. Vegna mót­fram­lags umsækj­enda má áætla að heild­ar­upp­hæð upp­bygg­ing­ar­innar verði að lág­marki 400 millj­ónir króna.

Fjölga hleðslumöguleikum við gististaði

Í öðru lagi er talað um hleðslu­mögu­leika við gisti­staði og eft­ir­markað raf­bíla en ráð­ist verður í átaks­verk­efni um að fjölga hleðslu­mögu­leikum við gisti­staði vítt og breitt um landið. Til­gang­ur­inn er að liðka fyrir orku­skiptum hjá bíla­leigum en áhrif inn­kaupa bíla­leiga á sam­setn­ingu bíla­flot­ans hér á landi eru veru­leg þar sem bíla­leigu­bílar eru tæpur helm­ingur allra nýskráðra bif­reiða á Íslandi.

Í til­kynn­ing­unni er fjallað um áhrif á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda en þau eru tví­þætt. Annars vegar vegna akst­urs ferða­manna sem er að minnsta kosti fjórð­ungur af öllum einka­akstri á land­inu og hins vegar þegar fyrr­ver­andi bíla­leigu­bílar verða að heim­il­is­bílum lands­manna á eft­ir­mark­aði.

Gisti­stöðum og hót­elum um land allt býðst að sækja um fjár­fest­ing­ar­styrki í gegnum Orkusjóð til að setja upp hleðslu­stöðvar svo gestir geti hlaðið þar raf­bíla yfir nótt. Til úthlut­unar eru sam­tals 50 millj­ónir króna. Vegna mót­fram­lags umsækj­enda má áætla að heild­ar­fjár­hæðin verði að lág­marki 100 millj­ónir króna og hleðslu­stöðvum við gisti­staði fjölgi um allt að 500 vegna þessa. Verk­efnið verður unnið í sam­starfi við Samtök ferða­þjón­ust­unnar.

Í þriðja lagi er um að ræða almennar aðgerðir og aðra orku­gjafa en haf­inn er und­ir­bún­ingur í félags­mála­ráðu­neyt­inu að því að breyta lögum um fjöl­eign­ar­hús með það að leið­ar­ljósi að liðka fyrir raf­bíla­væð­ingu.

Verðum að gjörbreyta ferðavenjum

Guð­mundur Ingi, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, segir við til­efnið að Íslend­ingar verði að gjör­breyta ferða­venjum og skipta út meng­andi jarð­efna­elds­neyti fyrir umhverf­is­væna orku­gjafa. „Ísland er nú í öðru sæti hvað varðar nýskrán­ingar raf­bíla og þær aðgerðir sem hér eru kynntar skipta veru­legu máli til að tryggja að orku­skipti hér á landi gangi hratt og örugg­lega fyrir sig. Við höfum allt sem þarf til að vera í far­ar­broddi í heim­inum í orku­skiptum í sam­göngum,“ segir hann.

„Í dag kynnum við aðgerðir um áfram­hald­andi átak í orku­skiptum og mark­vissa upp­bygg­ingu inn­viða. Meðal ann­ars er lögð sér­stök áhersla á orku­skipti í ferða­þjón­ustu í sam­starfi við Samtök ferða­þjón­ust­unnar. Í því fel­ast fjöl­mörg tæki­færi og við eigum að stuðla að því að ferða­menn geti ferð­ast um landið með umhverf­is­vænum hætti,“ segir Þórdís Kolbrún Gylfa­dóttir Reyk­fjörð, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra, telur að með raf­bíla­væð­ingu nýti Íslend­ingar hreina og ódýra inn­lenda orku í stað meng­andi inn­flutts elds­neytis. „Það skiptir máli að fólki standi til boða að reka og hlaða raf­bíl, óháð búsetu. Ég fagna mark­vissri upp­bygg­ingu um allt land, sem styður við þá þróun,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár