Stjórnarmyndunarviðræðurnar orðnar þær næst lengstu í 30 ár

Orkumál, skatt­kerf­is­breyt­ingar, kostn­að­ar­söm kosn­inga­lof­orð og heil­brigð­is­mál eru stærstu ásteyt­ing­ar­stein­arnir í við­ræðum milli stjórn­ar­flokk­anna um end­ur­nýjað sam­starf.

Í dag eru 37 dagar frá síð­ustu kosn­ingum. Einu stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­urnar sem átt hafa sér stað eftir þær eru á milli þeirra þriggja flokka sem störf­uðu saman í rík­is­stjórn á síð­asta kjör­tíma­bili: Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna. Viðræður þeirra hafa nú staðið yfir í lengri tíma en það tók að mynda rík­is­stjórn eftir kosn­ing­arnar 2017, þrátt fyrir að reynt hafi verið við tvö mis­mun­andi form þá.

Fyrst ræddu Vinstri græn, Fram­sókn­ar­flokkur, Sam­fylk­ing og Píratar saman um myndun rík­is­stjórnar en þeim við­ræðum var slitið 6. nóv­em­ber, tíu dögum eftir kosn­ingar. Við tóku við­ræður Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks við Sjálf­stæð­is­flokk og þann 30. nóv­em­ber 2017 var stjórn­ar­sátt­máli þeirra kynntur. Þá voru liðnir 33 dagar frá kosn­ingum.

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, benti á það í stöðu­upp­færslu á Twitter á föstu­dag að yfir­stand­andi stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður væru þá orðnar þær næst lengstu í 30 ár. Einu við­ræð­urnar sem hefðu tekið lengri tíma var eftir kosn­ing­arnar 2016.

Þá var afar erfitt að mynda rík­is­stjórn og allir flokkar sem náðu inn á þing reyndu fyrir sér við stjórn­ar­myndun á þeim 74 dögum sem liðu frá því að kosið var og þar til rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar, var kynnt til leiks í jan­úar 2018. Sú stjórn hafði minnsta mögu­lega meiri­hluta og sprakk um miðjan sept­em­ber sama ár vegna upp­reist æru-máls­ins.

Ríkisstjórnarflokkarnir styrktu stöðu sína

Sú staða er ekki uppi í dag. Rík­is­stjórnin ríg­hélt í kosn­ing­unum sem fóru fram í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins og bætti sam­an­lagt við sig þing­mönnum þrátt fyrir að heild­ar­fylgi hennar hafi ekki vaxið mikið.

Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson reyna nú að mynda þriðju ríkisstjórnina sem þeir sitja í saman. Báðir hafa áður verið forsætisráðherrar um skamma hríð en eiga enga möguleika á þeirri stöðu í ríkisstjórn með Vinstri grænum.
Bjarni Bene­dikts­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son reyna nú að mynda þriðju rík­is­stjórn­ina sem þeir sitja í saman. Báðir hafa áður verið for­sæt­is­ráð­herrar um skamma hríð en eiga enga mögu­leika á þeirri stöðu í rík­is­stjórn með Vinstri grænum.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn var óum­deildur sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna. Hann bætti við sig 6,6 pró­sent fylgi og fimm þing­mönn­um, en alls 13 verða á hans vegum á Alþingi á kom­andi kjör­tíma­bili. Það er besta nið­ur­staða hans í kosn­ingum frá árinu 2013, en vert er þó að taka fram að árin 2016 og 2017 fékk Fram­sókn sína verstu útreið í sögu flokks­ins sem spannar nú meira en eitt hund­rað ár.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk sína næst verstu nið­ur­stöðu í sög­unni og missti fyrsta þing­mann í tveimur kjör­dæmum, en er áfram stærsti flokkur lands­ins. Vinstri græn töp­uðu fylgi en í reynd ein­ungis einum þing­manni, þar sem tveir yfir­gáfu flokk­inn á síð­asta kjör­tíma­bili vegna and­stöðu við stjórn­ar­sam­starfið.

Þessi nið­ur­staða kallar á breytt valda­jafn­vægi milli flokk­anna.

Orkuöflun erfitt viðfangsefni

Óform­legar við­ræður um áfram­hald­andi stjórn­ar­sam­starf hófust strax að loknum kosn­ingum og gengið var út frá því að Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og lang­vin­sæl­asti stjórn­mála­maður lands­ins, yrði áfram for­sæt­is­ráð­herra. Ómögu­legt er fyrir Vinstri græn að taka þátt í stjórn­ar­sam­starfi með Sjálf­stæð­is­flokki, sem flokk­ur­inn skil­greindi sem höf­uð­and­stæð­ing sinn í íslenskum stjórn­málum í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2017, nema að sú stjórn sé leidd af Katrínu.

Við­ræð­urnar hafa þó gengið hægt og lítið form­fast komið út úr þeim, þótt byrjað sé að vinna með ein­hver texta til að máta við nýjan stjórn­ar­sátt­mála sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Það eru stór og krefj­andi verk­efni framundan. End­ur­reisn efna­hags­lífs­ins eftir kór­ónu­veiru­far­aldur og næsta stóra lota kjara­samn­inga­við­ræðna, sem hefst á fullu á næsta ári, skipta þar miklu.

Svo eru það skatta- og lofts­lags­mál og sam­spili þeirra við efna­hags­stefnu næstu rík­is­stjórn­ar.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður Vinstri grænna og umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, vara­for­maður Vinstri grænna og umhverfis- og auð­linda­ráð­herra.

Þar eiga stjórn­ar­flokk­arnir erf­ið­ara að ná saman en ann­ars­staðar. Hug­myndir Vinstri grænna um aðgerðir til að bregð­ast við loft­lags­vánni eru allt aðrar en hug­myndir hinna flokk­anna tveggja, sem snú­ast um að uppi­stöðu um að virkja meira til að auka það magn af end­ur­nýj­an­legri orku sem Ísland getur nýtt, eða selt. Í stefnu­skrá Vinstri grænna er hins vegar sagt að neyð­ar­á­stand ríki vegna loft­lags­mála, að flokk­ur­inn vilji við­halda ramma­á­ætlun sem stjórn­tæki til að ákveða hvað verði virkjað og ef það þurfi nýjar virkj­anir þurfi að ríkja sátt um það hvernig orkunnar er aflað. „Mestu skiptir að það verði gert af var­færni gagn­vart við­kvæmri nátt­úru lands­ins og í takti við vax­andi notkun, til að mæta fólks­fjölgun og þörfum grænna og með­al­stórra fyr­ir­tækja en ekki í ein­staka stórum stökkum.“

Uggur vegna loftlagsmálaskýrslu

Það hversu við­kvæm þessi mál eru sést vel á því að þegar íslensk stjórn­völd skil­uðu skýrslu sinni um lang­tíma­á­ætlun í loft­lags­málum til Lofts­lags­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNFCCC) í aðdrag­anda COP26, lofts­lags­fundar Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem hefst í Glasgow í Skotlandi í dag. Skýrslan var birt fyrir helgi og olli miklum titr­ingi á bak­við tjöldin, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Í frétt stjórn­ar­ráðs­ins vegna birt­ingu skýrsl­unnar segir að hún byggi á fyr­ir­liggj­andi stefnu­mörkun og áætl­unum og varpi „ljósi á þær ákvarð­anir sem þarf að taka á næstu árum til að mark­mið Íslands um kolefn­is­hlut­leysi náist. Í skýrsl­unni er greint frá þegar sam­þykktum mark­miðum stjórn­valda og síðan fjallað um mögu­legar leiðir að kolefn­is­hlut­leysi.“

Í skýrsl­unni, sem birt var af umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­inu sem lýtur stjórn Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, vara­for­manns Vinstri grænna, var gerð grein fyrir fimm mis­mun­andi sviðs­myndum um þróun sam­fé­lags­ins og rýnt í áhrif þeirra á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og bind­ingu kolefnis fram til árs­ins 2040. Í einni sviðs­mynd­inni er gert ráð fyrir að álf­ram­leiðsla á Íslandi drag­ist saman um helm­ing og í annarri að hún hverfi alveg. Þetta hefur farið öfugt ofan í hags­muna­sam­tök atvinnu­lífs­ins, sér­stak­lega þau sem gæta hags­muna áliðn­að­ar­ins, og ýmsa innan stjórn­ar­flokk­anna sem líta á orku­skipti sem tæki­færi til auk­ins hag­vaxtar, en ekki sem tæki­færi til að draga úr starf­semi meng­andi iðn­aðar á Íslandi. Heim­il­i­dir Kjarnans herma að þessar sviðs­myndir hafi ekki verið ræddar sem neinu nemur milli stjórn­ar­flokk­anna áður en þær voru settar fram.

Skattamál, aukin kostnaður og heilbrigðismál

Skatta­mál verða líka erfið viður­eignar hjá næstu rík­is­stjórn. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn lof­aði til að mynda því að taka upp þrepa­skipt trygg­inga­gjald og fleiri þrep í tekju­skatti fyr­ir­tækja þar sem hreinn hagn­aður fyr­ir­tækja umfram 200 millj­ónir króna verður skatt­lagður á móti lækkun til lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja.

Vinstri græn lof­uðu því að taka upp þrepa­skiptan fjár­magnstekju­skatt, nota skatt­kerfið frekar til að jafna kjör og nýta það til að styðja við mark­mið í loft­lags­mál­um.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er enda með ólíkar áherslur en ofan­greindar í flestum þessum mála­flokk­um.

Heil­brigð­is­málin eru líka flókið við­fangs­efni. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur mik­inn áhuga á að taka yfir heil­brigð­is­ráðu­neytið og hefur talað fyrir auknum einka­rekstri innan þess kerfis.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tók að hluta til undir þær áherslur í aðdrag­anda kosn­inga og sagð­ist vilja skoða „hvort frek­ari til­efni sé til auk­ins einka­rekst­urs innan heil­brigð­is­geirans.“

Vinstri græn vilja hins vegar auka fjár­fest­ingu í innviðum heil­brigð­is­kerf­is­ins og auka geta opin­bera hluta þess, í stað þess að auka hluta einka­geirans. Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra þurfti að sæta mik­illi gagn­rýni frá Sjálf­stæð­is­flokknum á síð­asta kjör­tíma­bili vegna stefnu sinnar í mála­flokknum og þykir ólík­leg til að sam­þykkja kúvend­ingu innan hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár