Náttúrufræðistofnun telur gagnslítið að stinga á egg máfa í Garðabæ

Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands leggst gegn því að bæj­ar­yf­ir­völdum í Garðabæ verði veitt leyfi til að stinga á egg síla­máfa í Gálga­hrauni og hefur ekki mikla trú á að sú aðgerð muni fækka máfum sem gera íbúum í Sjá­lands­hverfi lífið leitt.

Sílamáfurinn hefur verið íbúum í Sjálandshverfi til nokkur ama að undanförnu, og jafnvel ráðist á fólk.
Síla­máf­ur­inn hefur verið íbúum í Sjá­lands­hverfi til nokkur ama að und­an­förnu, og jafn­vel ráð­ist á fólk. Mynd: Pexels

Íbúar í Sjá­lands­hverfi í Garðabæ fá sumir ekki svefn­frið á nótt­unni vegna hávaða í máfum – og mörg dæmi eru um að máfarnir hafi hrein­lega ráð­ist á fólk í hverf­inu, sam­kvæmt bréfi sem íbúi sendi til bæj­ar­stjórn­ar­innar í Garðabæ í upp­hafi þessa mán­aðar.

„[Þ]etta ástand er algjör­lega óþol­andi,“ skrif­aði íbú­inn, sem vildi fá að vita hvað bæj­ar­stjórnin ætl­aði sér að gera í þessum málum.

Málefni máfa við Sjá­lands­hverfið voru svo til umræðu á fundi bæj­ar­ráðs Garða­bæjar í dag og ljóst er, sam­kvæmt því sem fram kemur í fund­ar­gerð, að bæj­ar­yf­ir­völd hafa verið að velta fyrir sér að grípa til aðgerða vegna ónæðis frá síla­máfum á þessum slóðum um nokkra hríð. Frá hinu sama var sagt í fréttum í lok vetrar.

Á fundi bæj­ar­ráðs var farið yfir það að í vor sendi Garðabær inn umsókn til Umhverf­is­stofn­unar um að fá und­an­þágu frá frið­lýs­ing­ar­skil­málum Gálga­hrauns og leyfi til að fækka síla­máf á svæð­inu með því að stinga á egg máf­anna, svo færri máfar kæmust á legg.

Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands líst hins vegar lítið á þau áform, sam­kvæmt því sem segir í umsögn stofn­un­ar­innar um þessa umsókn Garða­bæjar.

Máfurinn fer víða

Í umsögn Nátt­úru­fræði­stofn­unar kemur fram að stofn­un­ina vanti upp­lýs­ingar um stofn­stærð síla­máfa á helstu varp­stöðvum á Suð­vest­ur­landi og því sé erfitt að spá fyrir um hvaða áhrif stað­bundnar aðgerðir myndu hafa, en um leið stofn­unin hafi „ekki mikla trú á að þessar áætl­uðu aðgerðir um að stinga á egg í hreiðrum í hluta Gálga­hrauns muni skila árangri við að fækka síla­máfi við Arn­ar­nes­vog.“

[adspot]

Þar er þess að auki getið að varpið í Gálga­hrauni sé ein­ungis eitt af varp­svæðum síla­máfs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en stærsta varpið er á Rosmhvala­nesi og þaðan ferð­ast fuglar „vítt og breitt um sunn­an­verðan Faxaflóa“ að sögn Nátt­úru­fræði­stofn­unar.

„Því er ólík­legt að máf­inum muni fækka við þessar stað­bundnu aðgerðir því síla­máfar geta farið víða og geld­fugl sér­stak­lega heldur sig ekki endi­lega næst varp­stöðvum. Mögulegt er að aðgerðin geti skilað árangri við að til­færsla verði á varp­inu ef það er mark­mið, en vænt­an­lega þyrfti að fylgja því eftir ein­hver ár fram í tím­ann,“ segir í umsögn stofn­un­ar­innar.

Sveitarfélög þurfi að fræða íbúa um samneyti við náttúru

Nátt­úru­fræði­stofnun segir einnig að sam­neyti við villta nátt­úru sé „hluti af veru­leika sem horfast þarf í augu við“ og að sam­neyt­inu geti fylgt „árekstrar og ónæði.“

„Að mati Nátt­úru­fræði­stofn­unar er nauð­syn­legt að sveit­ar­fé­lög miðli upp­lýs­ingum til almenn­ings um þetta, að þétt­býli úti­lokar ekki nánd við villt dýr og að sýna þurfi lífs­bar­áttu þeirra skiln­ing,“ segir í umsögn­inni, og því bætt við að til að draga úr ágangi síla­máfa megi huga betur að frá­gangi úrgangs og með­höndlun mat­væla utandyra, því það sé það sem laðar að síla­máfa sem og aðra fugla.

Á fundi bæj­ar­ráðs Garða­bæjar í dag var Almari Guð­munds­syni bæj­ar­stjóra falið að bregð­ast við umsögn Nátt­úru­fræði­stofn­unar, ásamt því að vinna að til­lögum um aðgerðir til að draga megi úr ágangi máfa innan bæj­ar­markanna. Bæj­ar­ráðið fól bæj­ar­stjóra jafn­framt að taka málið upp á vett­vangi stjórnar Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Vorboðinn hrjúfi

Síla­máf­ur­inn er far­fugl, sem er til­tölu­lega nýr land­nemi á Íslandi, en fugl­arnir hófu ekki að verpa hér á landi fyrr en á þriðja ára­tug síð­ustu aldar. Nú verpir hann víða um land og fer síla­máfum fjölg­andi í nátt­úru Íslands.

Máfarnir koma venju­lega hingað til lands snemma árs, og sam­kvæmt upp­lýs­ingum á Fugla­vefnum var með­al­komu­tími fyrstu fugla 25. febr­úar. Því hefur síla­máf­ur­inn fengið við­ur­nefnið „vor­boð­inn hrjúfi“ til mót­vægis við skóg­ar­þröst­inn, sem er sá ljúfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fuglar

Fólk

Spil sem inni­heldur fróð­leik um íslenska varp­fugla

Birgitta Stein­gríms­dóttir, meist­ara­nemi í umhverfis- og auð­linda­fræði, og Heiðdís Inga Hilm­ars­dóttir, vöru­hönn­un­ar­nemi, hafa verið vin­konur frá unga aldri. Þær náðu að sam­eina áhuga­mál sín þegar þær unnu saman að gerð fjöl­skyldu­spils­ins Fugla­fárs sem inni­heldur fróð­leik um íslenska varp­fugla. Um þessar mundir standa þær fyrir hóp­fjár­mögnun á spil­inu á Karolina Fund þar sem áhuga­sömum gefst tæki­færi á að næla sér í...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár