Spil sem inniheldur fróðleik um íslenska varpfugla

Birgitta Stein­gríms­dóttir, meist­ara­nemi í umhverfis- og auð­linda­fræði, og Heiðdís Inga Hilm­ars­dóttir, vöru­hönn­un­ar­nemi, hafa verið vin­konur frá unga aldri. Þær náðu að sam­eina áhuga­mál sín þegar þær unnu saman að gerð fjöl­skyldu­spils­ins Fugla­fárs sem inni­heldur fróð­leik um íslenska varp­fugla. Um þessar mundir standa þær fyrir hóp­fjár­mögnun á spil­inu á Karolina Fund þar sem áhuga­sömum gefst tæki­færi á að næla sér í spilið í for­sölu. Fjár­mögn­unin hefur að þeirra sögn gengið vonum framar en þær náðu mark­miði sínu eftir aðeins tvær vikur. Ekkert lát er á eft­ir­spurn eftir Fugla­fári og benda þær stöllur á að enn eru 2 vikur eftir af for­söl­unni. Kjarninn hitti Birgittu og Heiðdísi og tók þær tali.

Hvaðan kemur hug­myndin að spil­inu?

„Við getum ekki státað okkur af því að hafa verið miklir fuglanördar hér áður fyrr. Vorið 2015 þegar við fórum að huga að sum­ar­vinnu lang­aði okkur að leiða saman hesta okkar og gera eitt­hvað skemmti­legt saman. Á þessum tíma var ég að læra líf­fræði upp í HÍ og Heiðdís vöru­hönnun í LHÍ. Við áttum nokkra „brain­storm„ fundi þar sem ansi margar lélegar hug­myndir fædd­ust þangað til hug­myndin að spil­inu dúkk­aði upp. Við vorum báðar sam­mála um að þetta væri eitt­hvað sem okkur lang­aði að taka lengra og nú, einu og hálfu ári síðar, er spilið farið í fram­leiðslu og er settur dagur í byrjun des­em­ber.

Ástæðan fyrir því að okkur lang­aði að gera fugla­spil er afar ein­föld - við vissum ekki neitt um fugla og grun­aði að fleiri væru í sömu sporum. Við vildum kveikja áhuga land­ans á fugl­unum okkar og sömu­leiðis for­vitni til að vita meira. Því varð spil fyrir val­inu en þau hafa þann eig­in­leika að gera við­fangs­efnið bæði skemmti­legt og fræð­andi í senn.“

Hvernig spilar maður það?

„Við vildum ekki gera hefð­bundið spurn­inga- eða ten­inga­spil og sömu­leiðis fannst okkur mik­il­vægt að leik­menn þyrftu ekki að vita neitt um fugla til að geta tekið þátt í spil­inu. Þannig koma allir jafnir inn í spilið sem reynir fremur á her­kænsku og klók­indi leik­manna. Fuglafár er tví­þætt spil og inni­heldur 30 íslenska varp­fugla. Spilið er fyrir 7 ára og eldri og geta leik­menn verið 2-4. Leik­irnir tveir sem hægt er að spila í Fugla­fári eru Gettu hver fugl­inn er og Fuglatromp og eru þeir byggðir á hinum sívin­sælu spilum Guess Who og Top Trumps.“

Út á hvað gengur spilið?

„Fuglafár hefur það að mark­miði að kveikja áhuga á íslensku fugl­unum. Leikmenn læra að þekkja nöfn og útlit fugl­anna auk þess sem ýmis skemmti­legur fugla­fróð­leikur leyn­ist í spil­inu. Fuglafár skapar kjör­inn vett­vang fyrir fjöl­skyldur og vini til að sam­ein­ast í leik og skapa góðar minn­ingar - og von­andi smit­ast af fugla­bakt­er­í­unni í leið­inni!“

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fuglar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár