Geimferðir, vatnsskortur og hamfarir - myndir

Íbúar stjál­býlla svæða í Kenía munu þurfa á neyð­ar­að­stoð að halda á næstu sex mán­uðum ef sama munstur í veð­ur­fari þar heldur áfram. Íbúar lands­ins segj­ast ekki hafa séð regn­dropa í fjóra mán­uði. Alþjóð­legur dagur vatns­ins var hald­inn á sunnu­dag­inn til að minna á vand­ann sem steðjar að íbúum þurra svæða í heim­inum.

Hér að neðan má sjá valdar myndir frá frétt­næmum atburðum af erlendum vett­vangi und­an­farna daga.

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Soyuz-geim­far Rússa var reist á skot­palli í Kasakstan í morgun. Flaugin mun rísa frá jörðu, ef allt gengur að óskum, 28. mars með þrjá geim­fara inn­an­borðs. Það eru Scott Kelly frá NASA, Mikhail Korni­enko og Gennady Padalka frá rúss­nesku geim­ferða­stofn­un­inni. Þeir ferð­ast til Alþjóða­geim­stöðv­ar­innar og skilja Kelly og Korni­enko eftir til að búa í geim­stöð­inni þar til í mars 2016.[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Virkni eld­fjalls­ins Villarrica í Chile hefur ekki verið meiri síðan það fór að bæra á sér í byrjun síð­asta mán­aðar. Þar hófst svo eld­gos 3. mars. Flytja þurfti hátt í 4.000 manns í nálægum byggðum á brott af örygg­is­á­stæðum. (Mynd: EPA)[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Ungur drengur sækir vatn í litla laug í ann­ars þurrum árfar­vegi í suð­austur Kenía á sunnu­dag­inn þegar alþjóð­legur dagur vatns­ins var hald­inn. Íbúar þurra svæða í Kenía og víðar hafa þurft að eiga við veru­lega lélega regn­tíð und­an­farið ár. Stjórn­völd í Kenía segja að 1,6 millj­ónir manna sjái fram á alvar­legan fæðu­skort að þar þurfi neyð­ar­að­stoð innan sex mán­aða. Íbúar Mat­inyani-hér­aðs í Kenía segj­ast ekki hafa séð regn­dropa í fjó­ara mán­uði. Þúsundir Keníubúa þurfa auk­inn heldur að ganga tugi kíló­metra til að kom­ast í drykkj­ar­hæft vatn. (Mynd: EPA)[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Áströlsk þyrla lendir á her­skipi eftir hjálp­ar­leið­angur til Vanuatu þar sem felli­byl­ur­inn Pam fór yfir á dög­unum og skyldi mörg þorp eyj­anna í rúst. Ástralir veittu eyja­skeggjum strax aðstoð um miðjan þennan mánuð og sigldu her­skip­inu HMAS Tobruk til eyj­anna hlöðnu af nauð­synja­vörum.[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Dreng­ur­inn Samuel stendur hér með föður sínum Phillip í rústum heim­ilis þeirra í Port Villa, höf­uð­borg Vanuatu, eftir að felli­byl­ur­inn Pam gekk yfir eyj­arnar. Veðrið hvarf af veð­ursjám 22. mars en hafði þá lagt fjöl­mörg þorp í rúst á eyjum í sunn­an­verðu Kyrra­hafi. Ham­far­irnar eru taldar vera þær verstu í sögu Vanuatu.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár